02.11.1987
Neðri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 558 í B-deild Alþingistíðinda. (374)

54. mál, útflutningsleyfi

Utanríkisráðherra (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Sjálfsagt er að svara eins og ég get ýmsum spurningum frá hv. 4. þm. Norðurl. e.

Í fyrsta lagi þá sagði hv. þm. að öll utanríkisviðskipti hefðu verið flutt. Það er nú reyndar ekki svo. Útflutningsviðskiptin voru flutt. Ákveðið var að skilja innflutningsviðskipti eftir hjá viðskrn. Þau eru að vísu ákaflega lítið háð afskiptum ráðuneytisins, það er helst olíuinnflutningur og þess háttar frá Sovétríkjunum.

Utanríkisþjónustan vannýtt? Nei, ég tek undir það með hv. þm., ég get alls ekki sagt að utanríkisþjónustan hafi verið vannýtt. En ég sagði áðan og ég tel að hana megi nýta betur með því að tengja þetta fastar saman en áður hefur verið. Ég vek athygli á því að til að nýta hana betur þá er þegar búið að setja á fót í utanrrn. sérstaka deild sem fjallar um útflutningsviðskiptin. Í þessari deild verða samtals með skrifstofuliði líklega sex manns. Sumt af því kemur frá viðskrn. og annað frá utanrrn., en segja má að þar verði nokkur sérhæfing á þessu sviði. Yfirmaður þeirrar deildar er fyrrv. starfsmaður viðskrn., sem fyrir nokkru var kominn til utanrrn., Valgeir Ársælsson, og hefur sendiherranafnbót. Hann er að sjálfsögðu mjög kunnugur þessum störfum bæði innanlands og erlendis.

Ég held ekki að hægt sé að segja að menn kvarti undan samstarfi við viðskrn., ég tek undir það að ég hef ekki heyrt það. Viðskrn. hefur gert fjölmargt ágætt á þessum sviðum.

Hv. þm. rakti andmæli nokkurra stórra útflutningsaðila við hugmyndir sem ákveðin nefnd lagði fram sem starfaði á mínum vegum á síðasta kjörtímabili. Jú, það er alveg rétt. Skorin var upp herör og andmælt. En ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég átti bæði þá og hef átt síðan viðræður við ýmsa aðila sem þarna skrifuðu undir og ég hef ekki heyrt, leyfi ég mér að segja, að mikill hugur hafi í raun fylgt máli. Menn eru stundum hikandi við að breyta til. Menn telja það gott sem er og vilja ekki breyta til. Ég hef t.d. rætt mjög ítarlega við formann Útflutningsráðs á mörgum fundum um þetta mál og skipulag og ég held ég megi fullyrða að þar er mjög ákveðinn stuðningur við málið, bæði hjá formanni og sömuleiðis framkvæmdastjóra Útflutningsráðs. Ég hef rætt við suma af þeim stóru aðilum sem nefndir voru og ég verð ekki var við annað en að ríkur vilji sé til samstarfs. Núna fyrir örfáum dögum var haldið upp á ársafmæli Útflutningsráðs og þar voru allir þessir aðilar mættir. Þar var þetta til umræðu. Ég flutti þar framsögu og gerði grein fyrir breytingum og ekki einn einasti aðili andmælti. Þvert á móti kom fram áhugi hjá mönnum á ýmsum þeim hugmyndum sem eru uppi um breytingar.

En það er hins vegar mjög eðlileg spurning: Hvers vegna er verið að breyta? Vel má vera að í þeim orðum sem ég sagði áðan hafi það ekki komið nægilega vel fram. Að sjálfsögðu er ekki eingöngu um að ræða, að því er ég vona, bætta þjónustu utanrrn. og sendiráða við útflytjendur, sem er víða verið að koma á fót. Ég nefni sem dæmi í Brussel þar sem sérstök skrifstofa hefur verið innréttuð fyrir sendiráð þar sem aðstaða verður fyrir útflytjendur að koma og sitja og njóta þeirra starfskrafta sem þar eru. Þar verður sérstakt herbergi til reiðu. Vitanlega má segja að svo hefði getað verið að óbreyttu, en auðveldara er um vik þegar greitt er af sama ráðuneyti. Þetta kostar að sjálfsögðu utanrrn. nokkuð að koma þessari aðstöðu á, bæði fundaaðstöðu, skrifstofuaðstöðu og ýmsa þjónustu í því sambandi. Það sama er nú verið að gera í Danmörku. Kvartað hefur verið undan því að línur væru ekki nógu skýrar, að viðskiptafulltrúi hafi verið utan við hina almennu starfsemi sendiráðsins, ekki verið nægilega tengdur inn í það. Með þessu mun að sjálfsögðu annað starfslið sendiráðsins, þar með talinn t.d. sendiherra, vera til reiðu í þessu sambandi sem ekki var eins mikið áður.

En það er fleira sem þarna kemur til. Nú er það svo samkvæmt lögum að utanrrn. fer með alla milliríkjasamninga og utanrrn. hefur tekið mikinn þátt í t.d. samningum við Sovétríkin. Sendiherra okkar í Moskvu hefur sömuleiðis verið þar lykilaðili þó að viðskrn. hafi að sjálfsögðu verið sá aðili sem farið hefur með málefnin.

Fram undan eru áreiðanlegar mjög miklar viðræður við Evrópubandalagið. Þar eru að gerast stórir hlutir, kannski varhugaverðir hlutir að sumu leyti fyrir okkur. Til þess er ætlast að sendiherra okkar í Brussel, og hans starfslið, fylgist mjög náið með því sem er að gerast þar og þar verði nánast stöðugar viðræður í gangi, eins og sagt er. M.a. er ráðgert að ég eigi fund með aðalframkvæmdastjóra Evrópubandalagsins nú í desember um þróun viðskiptamála þar. Núna kemst þetta á eina hendi. Nú er þetta hjá utanríkisviðskiptadeild utanrrn. þannig að ekki þarf að kalla aðra til. Vitanlega verður, eins og ég sagði áðan, náið samráð þá haft t.d. sérstaklega við Útflutningsráð. Það verður í raun hægri hönd utanríkisviðskiptadeildarinnar eða útflutningsviðskiptadeildarinnar í þessu sambandi.

Hv. þm. gerði nokkuð úr því að að samningar við Sovétríkin kynnu að hafa orðið erfiðari við aðrar aðstæður o.s.frv. Jú, ég hef heyrt þessi rök en ég verð að segja fyrir mitt leyti að ég held að Sovétríkin hljóti að líta á íslensk stjórnvöld sem nokkurn veginn eina heild. Ef verið er að tala um að óvingjarnlegur, eða hvað við eigum að kalla það, utanrrh. kynni að valda vandræðum í viðskiptum, þá held ég satt að segja að erfitt sé að gera því skóna því að íslensk stjórnvöld hljóta að koma fram sem ein heild að þessu leyti og á þau litið sem svo. — Það gæti líka komið viðskrh. sem af einhverjum ástæðum væri ekki talinn velviljaður Sovétríkjunum.

Hv. þm. spurði hverjir væru hvatamenn þessarar breytingar. Ég gæti út af fyrir sig nefnt marga einstaklinga þó að ekki hafi verið leitað til stofnana. Ég nefndi áðan t.d. formann Útflutningsráðs sem hefur mikið samband haft við mig um þessi mál og allt skipulag. Ég lít svo á að hann, sem er líka forstjóri stórra útflutningssamtaka, sé mikill hvatamaður þessara breytinga. Og ef ég má orða það svo, þá hefur mér heyrst að allir séu það nema helst þessir stóru, SÍS og SH, þeir eru svo sjálfstæðir — það getur verið að hv. þm. beri þá fyrir brjósti — ég held að þeir telji sig ekki þurfa neitt ráðuneyti í raun og vilji helst fá að ráða þessum málum sem mest sjálfir.

Það er hárrétt hjá hv. þm. að víðast erlendis eru utanríkisviðskiptin annaðhvort í sérstöku ráðuneyti eða ráðuneyti sem er mjög sjálfstætt en í nánum tengslum við utanríkisráðuneytið. Svo er í Svíþjóð, og hefur verið lengi. Svo er í Kanada, eins og hv. þm. sagði. Og nú er verið að breyta þessu þannig í Noregi með því að leggja niður viðskiptaráðuneytið. En það er rétt að þeir hafa sérstakan ráðherra yfir utanríkisviðskipti. Hins vegar hef ég einmitt rætt þetta töluvert við þá sem ég þekki orðið nokkuð vel í þessum löndum og mér er tjáð að þessir ráðherrar starfi í raun innan utanríkisráðuneytisins þótt skipt sé á tvo ráðherra, en samstarf þeirra sé náið og þeir nýti sameiginlega þá starfskrafta sem eru til taks í utanrrn. Reyndar var mér tjáð í fleiri af þessum löndum að utanrríkisviðskrh. væri sums staðar eins konar aðstoðarráðherra utanrrh.

Við höfum ekki talið kleift að fjölga ráðherrum hér og hljótum að treysta á þann sendiherra sem veitir þessari deild forustu. En þetta er góð spurning. Utanríkisverslun okkar vegur hátt í helming af þjóðarframleiðslunni, þ.e. hátt í helmingur af okkar þjóðarframleiðslu er fluttur úr landi og þjóðartekjur má rekja þangað. Því kæmi til greina að hafa þetta sjálfstætt ráðuneyti en þó í sterkum tengslum við utanrrn.

Hv, þm. dró í efa að þetta stæðist samkvæmt grundvallarhugsun stjórnarráðslaganna. Um þetta var mjög mikið fjallað bæði af nefndinni sem hv. þm. vísaði til og einnig nú. Það er rétt að það er eitt grundvallarsjónarmið að skipta ekki verkefnum, en ég gat þess áðan að samningar erlendis eru tvímælalaust í höndum utanrrh. Hann gerir slíka samninga. Því má einnig segja að þessu hafi verið nokkuð skipt þegar utanrrh. fór með viðskiptasamninga en aðrir sáu svo um framkvæmd þeirra. Nú er verið að færa það á eina hendi, en hins vegar skipt á milli innanlandsviðskipta og utanríkisviðskipta. Ýmsir töldu það hreinni skiptingu en það sem áður var sem má segja að hafi gengið þvert á sviðin.

Ég vona að ég hafi svarað flestum spurningum hv. þm. Ég hef getið þess að nokkru hvar annars staðar þetta er svona og ég gæti reyndar nefnt fleiri lönd þar sem þetta er þannig. Á Ítalíu kynntist ég því nýlega t.d. að þannig er með mál farið. Ég skal viðurkenna að ég hef ekki skoðað hin EFTA-löndin, en Noregur er að breyta í þessa veru og það er innan EFTA.

Allt orkar tvímælis þá gert er, eins og stundum er sagt, og ég tek skýrt fram að vitanlega hefur viðskrn. sinnt þessum málum með ágætum í samstarfi við utanrrn. En ég held ég megi fullyrða að yfir þessu hefur verið setið af fjölmörgum aðilum undanfarin fjögur ár. Ég fór gegnum þær umsagnir sem bárust og mér fannst vera yfirgnæfandi að menn teldu að þetta skref ætti að stíga.