09.03.1988
Neðri deild: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5631 í B-deild Alþingistíðinda. (3760)
324. mál, Öryggismálanefnd sjómanna
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég kveð mér ekki hljóðs til þess að halda hér langa ræðu um það frv. sem hér er lagt fram af hv. þm. Árna Johnsen o.fl. á þskj. 640, ekki vegna þess að ég hafi undirbúið langa ræðu og merka, heldur vegna þess að málið er það gott og í fullu samræmi við annað hliðstætt mál sem flm. gat um, sem er flutt af þm. Borgarafl. og hefur verið dreift hér. Mér finnst eiginlega vanta umræður um málið. Þess vegna kveð ég mér hljóðs að mér finnst vanta umræður um málið. Málið er þess eðlis. Öryggi sjómanna á hafinu og aðgerðir til að draga úr slysum á sjó, og á landi þá kannski líka, aðgerðir til að bæta öryggi og aðbúnað sjómanna eru þess eðlis að ég hélt að það yrðu meiri umræður og kannski umræður frá þeim sem þekkja meira til þessara mála af eigin reynslu en ég geri, þó að allir Íslendingar viti hvað það þýðir að kunna réttu handbrögðin og réttu viðbrögðin þegar slys eða óhamingju ber að höndum. En úr því að umræðurnar eru ekki meiri en þetta að enginn hefur kvatt sér hljóðs, þá vil ég lýsa stuðningi mínum við þetta mál og vona að sams konar stuðningur komi frá þm. almennt við það mál sem, hv. þm. Ólafur Gränz mun flytja í líkum dúr þegar það kemst á dagskrá.