09.03.1988
Neðri deild: 69. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5632 í B-deild Alþingistíðinda. (3763)

329. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Flm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 60/1984, með síðari breytingum. Þetta er 329. mál þingsins og er á þskj. 653. Meðflm. er hv. 3. þm. Austurl.

Þegar breyting var gerð á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 54/1986, í framhaldi af samningum við aðila vinnumarkaðarins sem gjörbreyttu hinu almenna húsnæðislánakerfi, þar sem lán hækkuðu úr 29% í allt að 70% af byggingarkostnaði eða kaupverði húsa og fjármagn lífeyrissjóða allt að 55% af ráðstöfunarfé þeirra gerði þessa breytingu að veruleika. Gert var ráð fyrir því af þeim sem sömdu þau lög að þrjú til fimm ár þyrfti til þess að ná jöfnuði um eðlilega eftirspurn í sambandi við húsnæðislánakerfið. Ýmislegt varð til þess að eftirspurn eftir þessum hækkunum lána varð langt fram yfir þær áætlanir sem voru lagðar til grundvallar við þessar kerfisbreytingar sem hafa að sjálfsögðu orsakað langa bið eftir lánum en engin breyting hefur orðið á hækkun lánanna í almenna kerfinu við afgreiðslu þeirra.

En það sem var annað atriði í þessu samkomulagi á sínum tíma og við þessa lagabreytingu var að gert var ráð fyrir því að endurskoða félagslega kerfið. Fyrrv. ríkisstjórn lauk ekki við það verkefni, en mikil gagnaöflun fór fram á vegum milliþinganefnda 1986, sem þingflokkarnir skipuðu, sem voru skipaðar samkvæmt tilnefningu þeirra, og þessi gagnaöflun er að sjálfsögðu mikilvægt innlegg í þessi mál.

Í starfssamningi núverandi ríkisstjórnar er lögð áhersla á endurskoðun á uppbyggingu og fjármögnun félagslega íbúðakerfisins. Sú endurskoðun er afar mikilvæg, en tekur að sjálfsögðu og eðlilega alllangan tíma.

Það er flestum ljóst að mikill og vaxandi skortur er á leiguíbúðum á húsnæðismarkaðnum hvort sem um er að ræða þéttbýli eða dreifbýli. Þess vegna verður að veita auknu fjármagni til lausnar á þessu vandamáli svo hægt verði að byggja leiguhúsnæði sem hægt er að leigja út á hóflegu verði sem fólk ræður við að greiða. En skortur á leiguíbúðum sprengir upp verðlag á leigu sem ekki er verjandi að láta þannig viðgangast í þessu þjóðfélagi.

Í IV. kafla laga nr. 60/1984 er skilgreint hlutverk Byggingarsjóðs verkamanna um félagslegar íbúðarbyggingar. Þar stendur í 33. gr., með leyfi forseta:

„Hlutverk Byggingarsjóðs verkamanna er að annast lánveitingar til félagslegra íbúðabygginga með það að markmiði að bæta úr húsnæðisþörfum láglaunafólks. Félagslegar íbúðir teljast samkvæmt lögum þessum:

a. Íbúðir í verkamannabústöðum sem byggðar eru eða keyptar á vegum stjórna verkamannabústaða og ætlaðar eru til sölu handa láglaunafólki sem fullnægir skilyrðum þeim sem sett eru í þessum kafla laganna.“ — En lán til þessara íbúða eru til 43 ára með 1% vöxtum.

„b. Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum handa láglaunafólki eða öðrum þeim sem þarfnast af félagslegum ástæðum aðstoðar við húsnæðisöflun.“ — Þessi lán eru í núgildandi lögum til 31 árs með 1% vöxtum.

„c. Leiguíbúðir sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða félagssamtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða og öryrkja.“ — Þessi lán eru sömuleiðis til 31 árs, en þessi lán skv. b- og c- liðum eru miðuð við 85% lán.

Ég þarf ekki að lýsa hér gildi a-liðar um íbúðir í verkamannabústöðum. Þetta byggingarform stendur á traustum grunni eldri laga og hefur skilað mikilvægum árangri í húsnæðismálum láglaunafólks í landinu í áratugi. Bygging leiguíbúða á vegum sveitarfélaga skv. b-lið, til útleigu á hóflegum kjörum, er mikilvæg aðgerð í hverju sveitarfélagi og getur um leið jafnað sveiflur og komið í veg fyrir alvarlega röskun í atvinnulífi og þjónustu vegna skorts á húsnæði. Þess vegna þarf að vera aðgangur að hagkvæmum lánum svo leiga sé viðráðanleg. Eins er með c-liðinn. Ég tel að þarna hafi náðst með lögunum 1984 mjög mikilvæg breyting þar sem gert er mögulegt að lána til aðila sem vilja leysa húsnæðisvanda öryrkja, námsmanna og aldraðra og það nær jafnt til sveitarfélaga, ríkisstofnana eða félagasamtaka sem bera hag þessa fólks fyrir brjósti.

Hins vegar hefur ekki einvörðungu skortur á fjármagni í Byggingarsjóði verkamanna hamlað byggingum samkvæmt þessum lögum, heldur ekki síður að sveitarfélög og samtök öryrkja, námsmanna og aldraðra telja að lánstími í gildandi lögum sé of skammur og hafa samtök sveitarfélaga og samtök þessara aðila lagt ítrekað þunga áherslu á að þetta verði lagfært með breytingum á núgildandi lögum. Raunar hafa samtök launþega, þ.e. Alþýðusamband Íslands, lagt áherslu á þetta einnig. Í þessu tilfelli er hægt að vitna í samtök sem kalla sig Húsnæðishóp - þak yfir höfuðið, þar sem þátttakendur eru Öryrkjabandalag Íslands, Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Samtök aldraðra, Stúdentaráð Háskóla Íslands, Bandalag íslenskra sérskólanema, Leigjendasamtökin og Búseti landssamband húsnæðissamvinnufélaga. Í bréfi og samþykktum sem þessi samtök hafa nýlega gert leggja þau mikla áherslu á að lán til leiguíbúða skv. b- og c-lið 33. gr. núgildandi laga um Húsnæðisstofnun ríkisins verði lengd úr 30 árum í 43 ár til samræmis við lánskjör í félagslega kaupleigukerfinu.

Samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðisstofnun ríkisins hafa lán samkvæmt þessum stafliðum sem ég hef nefnt, b- og c-lið, á árabilinu 1986–1987 og það sem af er þessu ári, verið veitt til 412 íbúða. Þar af til nýrra stúdentagarða í 160 íbúðir. En það er ljóst að hér er um valkost að ræða sem getur haft jákvæð áhrif til þess að leysa vandamál og ekki síst vandamál þess fólks sem að þessum samtökum stendur.

Það er hægt að framkvæma hratt lausn á þessu sviði skv. 33. gr. laganna ef fjármagn fæst. Eins og fram hefur komið þá er þörfin mjög mikil og bið eftir endurskoðun félagslega kerfisins í heild er of löng til að leysa þetta mál, að mínu mati. Þess vegna er þetta frv. flutt nú í trausti þess að það verði samþykkt og Húsnæðisstofnun geti þannig lagt til fjármagn til að auka lánveitingu til byggingar leiguíbúða úr Byggingarsjóði verkamanna til þessara aðila skv. b- og c-lið og þannig leyst úr miklum húsnæðisvanda, ekki síst í mörgum sveitarfélögum úti á landi. Þess vegna er þessi einfalda lagabreyting mikilvæg.

Með frv. fylgja fylgiskjal I og II sem er útreikningur á fjármagnsleigu miðað við 4 millj. kr. söluverð eða verð á íbúð. Þarna eru sett upp dæmi í sambandi við lán með 1% vöxtum til 43ja ára og svo lán fyrir 15% sem er þá miðað við 7% vexti í öðru dæminu sem mundi þýða að leigugjald af þessu fjármagni mundi nema um 11 800 kr. á mánuði, en í síðara dæminu ef lánafyrirgreiðsla væri á sama hátt fyrir 15% eins og er úr Byggingarsjóði ríkisins, þ.e. 3,5% vextir, þá yrði leigugjald af fjármagninu 10 þús. kr. á mánuði.

Mismunurinn á þessu frv. sem hér er lagt til, þ.e. að lengja lánin úr 31 ári í 43 ár, hann er nálægt því að vera 48 þús. kr. á ári sem leigan mundi lækka miðað við núgildandi lög. Þetta hefur að sjálfsögðu talsvert mikla þýðingu í sambandi við það sem ég áður sagði. Bæði sveitarfélögin í heild og samtök þessara aðila sem ég lýsti hér hafa lýst áhyggjum yfir því að fá ekki þennan möguleika, þ.e. sömu kjör og í byggingu verkamannabústaða og þannig gert kleift að byggja leiguíbúðir og leigja þær út með viðunandi hætti þannig að lágtekjufólk í landinu, sem við hljótum fyrst og fremst að vilja verja, geti átt kost á viðunandi húsnæði með kjörum sem það ræður við.

Þess vegna leggjum við flm. áherslu á að þetta frv. fái framgang hér á Alþingi og ég efast ekkert um það að menn eru sammála um gildi þess.

Herra forseti. Ég tel ástæðulaust að vera að flytja hér langa ræðu um þessi mál. Þetta er eitt af þeim atriðum í húsnæðislöggjöfinni sem er þörf á að lagfæra og var gert ráð fyrir að yrði lagfært í endurskoðun á félagslega kerfinu. En eins og ég sagði áður þá mun það dragast. En þetta er þáttur sem gæti orðið til þess að leysa viss vandamál ef að lögum yrði á þessu þingi.

Ég vil í lok þessarar umræðu gera tillögu um það að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.