02.11.1987
Neðri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (377)
54. mál, útflutningsleyfi
Utanríkisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Ég vil taka það fram að sjálfsagt er, sem kom fram hjá hv. 4. þm. Norðurl. e., að leitað verði umsagna og málið vandlega skoðað. Mér hefur aldrei dottið annað í hug.
Hv. þm. spurði um kostnaðinn. Í fjárlagafrv. eru ætlaðar 16 millj. kr. í þessa deild. Af fjórum, við getum kallað það sérhæfðum mönnum, koma tveir a.m.k. frá viðskrn. og ekki er ráðið með þann þriðja. Við teljum þetta að vísu æði lítið fjármagn miðað við margar og miklar ferðir og fundi.
Varðandi það sem hv. 5. þm. Reykv. sagði vil ég taka undir með honum að mér finnst alveg sjálfsagt að krefjast trúnaðar. Hann á vitanlega að vera og ég hef alltaf litið á það sem sjálfsagt mál. 1. gr. var breytt í nokkru og hún orðuð þannig að það lægi betur í orðunum leyfi en undantekning. Utanrrn. getur ákveðið að leyfi skuli veitt, þ.e. útflutningur er ekki háður leyfum nema utanrrn. ákveði annað. Það var nú hugmyndin í þessu.
Ég vil geta þess sérstaklega, vegna þess sem hv. þm. sagði um viðræður mínar við sendiherra Sovétríkjanna, að heiðurinn af samningunum um sölu síldar eiga fyrst og fremst fulltrúar okkar sem þarna sömdu og stóðu sig með afburðum vel. Hitt er svo annað mál, að þegar komið er í slík vandræði sem þessi er það utanrrh. sem talar við viðkomandi sendiherra. Það gerði ég þennan morgun og gerði honum grein fyrir því sem ég taldi algjörlega ljóst, að ef ekki yrði af þessum viðskiptum hlyti það að hafa mjög mikil áhrif á heildarviðskipti landanna, t.d. olíukaup og fleira. Ég hafði samráð við hæstv. viðskrh. um það og við töldum ljóst að viðræðum um olíukaupin yrði frestað.
Ég heimsótti Sovétríkin sem forsrh. í mars og átti þá mjög ítarlegar viðræður við forsrh. Sovétríkjanna um þessi viðskipti og forsrh., Ryskof, lagði á það mikla áherslu að jafnvægi væri í viðskiptum á milli landanna. Því var vitanlega mjög auðvelt fyrir mig að vekja athygli sendiherrans á því að ekki yrði jafnvægi milli landanna í viðskiptum ef úr síldarkaupum yrði ekki. Hvort þetta hefur haft einhver áhrif skal ég ekkert um segja.