10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5652 í B-deild Alþingistíðinda. (3786)

289. mál, mat á heimilisstörfum

Flm. (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka þeim þm. sem tekið hafa til máls um þessa till. hv. þm. Borgarafl., en þó að nefnd sé starfandi á vegum hæstv. forsrh. hefur hún ekki beint það verkefni, sem till. gerir ráð fyrir að verði unnið, í sínum verkahring. Þetta gæti orðið til viðbótar við störf þeirrar nefndar. Ég held að till. eigi alveg jafnt erindi þrátt fyrir nefndina. (SalÞ: Það voru ekki mín orð.) Ég er bara að bæta við hugsun sem kom frá hv. 6. þm. Reykn., en ég tek undir það með henni að það eru ekki langar eða stuttar ræður sem skipta máli. Hv. 7. þm. Norðurl. e. flutti langa yfirlitsræðu um hvað gert hafi verið í tillöguflutningi í þessum málaflokki. Það er ekki það sem skiptir máli heldur hvað er sagt. Ég verð að harma það sem kemur svo oft fram hjá kvennalistakonum og kannski konum almennt. Hún sagði: Það loðir enn við lítilsvirðing á heimilisstörfunum. Hvar kemur það fram? Það er eins og verið sé að tala til karlmanna. Ég vil mótmæla því. Karlmenn kunna vel að meta störf ömmunnar, móðurinnar, systurinnar, kærustunnar og eiginkonunnar. Ég sný þessu heim til föðurhúsanna. Það hlýtur þá að vera frá öðrum konum, konum sem ekki ætla sér að vinna heima, að þær sýni hinum konunum lítilsvirðingu. (ÞÞ: Hvaða kona vinnur ekki heima?) Það eru margar konur sem ekki vinna heima eins og það er kallað. Við skulum bara láta það koma fram. Ég er orðinn dauðþreyttur á að liggja undir því að til karlmanna sé almennt talað eins og þeir meti ekki störf heimavinnandi kvenna. Þetta er rangt. Við skulum hætta að tala í þeim tón til hvers annars. Tillagan er flutt í fullri alvöru, hv. 7. þm. Norðurl. e., og við munum reyna að fylgja henni eftir eftir bestu getu.

En ég vil láta það koma fram að ég sem karlmaður, og ég hugsa allir þeir karlmenn sem ég þekki til, hef aldrei vanmetið störf heimavinnandi kvenna. Það er langt frá því.