02.11.1987
Neðri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (379)

54. mál, útflutningsleyfi

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að svara með örstuttri athugasemd pví sem hv. 4. þm. Norðurl. e. beindi til mín. Ástæðan til þess að ég stóð ekki upp fyrr er ákaflega einföld. Flest það sem segja þurfti um málið kom fram í framsögu hæstv. utanrrh. og í síðari skýringum hans.

Tilgangurinn með þessari breytingu á verkaskiptingunni milli ráðuneyta er augljós. Hann er sá að virkja starfskrafta Stjórnarráðsins enn betur til hagsbóta fyrir og í þágu útflutningsstarfseminnar. Breytingin sem nú er gerð orkar tvímælis eins og jafnan þá stjórnaraðferð er breytt. Þar er erfitt að vitna til — hvað á ég að segja — algildra meginreglna eða hugsjónamála. Þar verða menn að þreifa sig áfram og finna það sem best fram fer. Ég er ekki sannfærður um að við höfum fundið bestu lausnina, en þetta er áreiðanlega tilraun sem er þess virði að hún verði gerð. Að við færum þessi verk undir meginreglu stjórnarráðslaganna sem er sú að það sé utanrrn. sem fer með samninga Íslands við erlend ríki. Þar er ég kominn að því sem er kannski besta pólitíska röksemdin fyrir breytingunni. Hún er þessi: Á næstunni skiptir það afar miklu máli fyrir hagsmuni okkar, bæði pólitískt og frá sjónarmiði efnahags- og utanríkisverslunar, að ná sem hagstæðustum samningum og samstarfi við Evrópubandalagið. Þetta er meginröksemdin í mínum huga fyrir þeirri verkaskiptingarbreytingu sem nú hefur orðið. Þetta mál er svo samofið okkar utanríkisstefnu að þar þarf sá maður að hafa forræði sem um leið ber ábyrgð á framkvæmd utanríkisstefnunnar. Þetta er kjarninn í málinu eins og ég lít á hann. Ég tek hins vegar undir það með hv. 4. þm. Norðurl. e. að þess þarf að gæta afar vel að við stillum okkar krafta, stillum okkar strengi vel saman við EFTA-löndin og gætum þess að samstarfið við þau verði sem allra best. Þar er áreiðanlega rétt ábendingin, sem fram kom í máli hv. 4. þm. Norðurl. e., að sjálfstæð staða fyrir utanríkisviðskiptin innan utanrrn. er mjög æskileg, sem tengist reyndar því sem hv. 5. þm. Reykv. vék að í sínu máli. Ég tek undir það með hv. 5. þm. Reykv., að það er mikil þörf á því að auka frjálsræði í útflutningi, þar sem því verður við komið og markaðsaðstæður erlendis leyfa, eins og reyndar er á stefnuskrá þessarar stjórnar.

Ég vildi með þessum fáu orðum svara því að nokkru sem til mín var beint af hv. 4. þm. Norðurl. e. en ítreka að ég tel að þetta sé breyting sem geti leitt af sér góða hluti og við eigum svo sannarlega ekki að skirrast við að breyta þessu fyrirkomulagi þótt lengi hafi það verið í farsælum farvegi, það má lengi betur gera.