10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5664 í B-deild Alþingistíðinda. (3803)
288. mál, efling Ríkisútvarpsins
Flm. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Á þskj. 590 flytjum við þm. Alþb. till. til þál. um eflingu Ríkisútvarpsins. Till. er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að kjósa níu manna nefnd er hafi það hlutverk að gera tillögur til næsta þings um eflingu Ríkisútvarpsins.
Nefndin skal í starfi sínu leitast við að svara eftirtöldum spurningum:
1. Hver hafa áhrif nýju útvarpslaganna orðið á starfsemi Ríkisútvarpsins?
2. Hvernig hafa tekjur og útgjöld Ríkisútvarpsins þróast á undanförnum árum?
3. Er rétt að gera Ríkisútvarpið að sjálfseignarstofnun með verulegu sjálfstæði um eigin fjárhag og rekstur?
4. Hvernig nýtist það fé sem Ríkisútvarpið hefur til dagskrárgerðar?
5. Hve miklu hefur sjónvarpið varið til kaupa á fullbúnu innlendu dagskrárefni frá öðrum framleiðendum?
Nefndin skal jafnframt gera tillögur að áætlun um framtíð Ríkisútvarpsins að því er varðar starfsaðstöðu, svæðisútvörp, dreifikerfi og þátt Ríkisútvarpsins í menningarþróun þjóðarinnar. Þá skal nefndin gera tillögur um tekjustofna handa Ríkisútvarpinu sem skapa því forsendur til þess að sú áætlun um eflingu Ríkisútvarpsins, sem nefndin gerir tillögur um, verði framkvæmd. Í áliti sínu skal nefndin gera grein fyrir þeim skyldum sem Ríkisútvarpið á að gegna í menningarlegum efnum m.a. öryggisskyldur útvarpsins við alla landsmenn.
Nefndin skal ræða við starfsfólk Ríkisútvarpsins og útvarpsráð og hún á rétt á öllum fáanlegum upplýsingum um Ríkisútvarpið.
Nefndin skal skila af sér svo snemma að unnt verði að hafa hliðsjón af áliti hennar við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989.
Nefndin kýs sér sjálf formann. Kostnaður við störf nefndarinnar verði greiddur af Alþingi. Nefndinni verði heimilað að ráða sér starfsmann til þess að sinna gagnaöflun og samantekt á skýrslu hennar.“
Þessi till., herra forseti, er flutt í framhaldi af miklum umræðum sem orðið hafa á hv. Alþingi nú um nokkurt skeið um stöðu Ríkisútvarpsins. Þessar umræður hafa auðvitað fyrst og fremst átt rætur að rekja til róttækra lagabreytinga varðandi heimild til rekstrar og eignarhalds ljósvakamiðla, lagabreytinga sem voru samþykktar hér fyrir fáeinum árum.
Ef ég fer aðeins yfir efni till. tel ég að hún snerti í raun og veru ákveðna grundvallarþætti í okkar þjóðlífi. Í fyrsta lagi menningarmál vegna þess að Ríkisútvarpið er ein mikilvægasta menningarstofnun þjóðarinnar og okkur er þar af leiðandi skylt að sjá til þess að rekstur þeirrar stofnunar geti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti. Í öðru lagi snertir þessi till. öryggismál vegna þess að rekstur Ríkisútvarpsins og dreifikerfi þess er þáttur í öryggi þjóðarinnar, félagslegu öryggi, hvernig svo sem það er skoðað. Í þriðja lagi snertir till. um eflingu Ríkisútvarpsins byggðamál vegna þess að Ríkisútvarpið er sú stofnun íslensk sem nær eða á að ná því að komast til allra byggðarlaga í landinu. Á það skortir nú þegar talsvert eins og sakir standa. Það er alveg ljóst að nýju útvarpslögin þau hafa haft það í för með sér að Ríkisútvarpið er nú vanbúnara en áður til að sinna þessum þremur meginþáttum, þ.e. menningarkröfunni, öryggiskröfunni og byggðakröfunni.
Í 1. mgr. till. er gert ráð fyrir að þingið kjósi níu manna nefnd til að sinna þessu verki. Af hverju er það gert? Jú, það er gert vegna þess að við teljum að Ríkisútvarpið þurfi á því að halda að allir þingflokkar geti átt aðild að nefnd sem um málið fjalla,r þannig að öll sjónarmið, sem hér eru í þinginu, fái að koma fram þegar fjallað er um Ríkisútvarpið sérstaklega.
Við teljum einnig nauðsynlegt að taka þetta mál af ríkisstjórninni, af menntmrh. að hluta til og í hendur Alþingis. Ástæðan er sú að menntmrh. hefur lýst því yfir að hann telji að það eigi að grípa til ráðstafana sem veikja Ríkisútvarpið, þ.e. ráðstafana eins og þeirra að selja Rás 2. Það hefur einnig komið fram að það er einhver embættismannanefnd að skoða þau mál sem snerta rekstur Ríkisútvarpsins og ég segi fyrir mig, ég treysti henni ekki. Ég treysti henni ekki til þess að leysa þessi mál, til að taka á þeim með eðlilegum hætti, og þess vegna tel ég að Alþingi eigi þarna að koma til.
Í till. er síðan vikið að nokkrum spurningum varðandi Ríkisútvarpið og það er fyrst: Hver hafa áhrif nýju útvarpslaganna orðið á starfsemi Ríkisútvarpsins? Um það má margt segja, en það er einlægast að fletta upp í fskj., sem fylgja þessari till., þar sem það kemur fram að Ríkisútvarpið hefur tapað auglýsingatekjum 1985–1987 sem nema 260 millj. kr. Tekjur Ríkisútvarpsins hafa minnkað á einu ári frá því sem var á árinu 1985 um þá fjárhæð. Það segir sig alveg sjálft að með ákvörðunum sem teknar eru á árunum 1984–1985, að hleypa öðrum aðilum inn í þessa starfsemi, er verið að svipta Ríkisútvarpið stórfelldum tekjum sem nema, eins og kemur fram í fskj. III sem ég birti þarna með okkar till., 260 millj. kr. á ári í auglýsingatekjur. Þetta er mjög alvarlegt þegar þess er gætt að Ríkisútvarpið þarf ekki aðeins að tryggja að þau markmið náist sem því eru almennt sett heldur verður líka núna að standa af sér harðnandi samkeppni við sjónvarp einkaaðila sem virðist hafa verulega fjármuni handa á milli og það virðist ljóst að Ríkisútvarpið eigi mjög erfitt með að veita Stöð 2, einkasjónvarpinu, þá samkeppni sem nauðsynleg er.
Í tölul. 2 er nánar komið inn á þetta atriði í þessari till. okkar alþýðubandalagsmanna og í tölul. 3 spyrjum við þessarar spurningar og leggjum fyrir nefndina: Er rétt að gera Ríkisútvarpið að sjálfseignarstofnun með verulegu sjálfstæði um eigin fjármál og rekstur? Mitt svar við þessari spurningu er skýrt. Það er afdráttarlaust já. Það á að gera Ríkisútvarpið að sjálfseignarstofnun með verulegu sjálfstæði um fjárhag og rekstur. Inn á þetta atriði kom hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifur Guttormsson þegar útvarpslögin voru til meðferðar hér á Alþingi á sínum tíma. Flutti hann margvísleg skilmerkileg rök fyrir því að það væri rétt að gera Ríkisútvarpið að sjálfseignarstofnun, m.a. það sem lýtur að starfsmönnum stofnunarinnar, en um það sagði hann í ræðu 25. febr. 1985, með leyfi forseta:
„Hef ég þá sérstaklega í huga kaup og kjör þessara starfsmanna og samkeppnisstöðu Ríkisútvarpsins gagnvart öðrum stöðvum og skyldum rekstri.“
Ég held að hér sé í raun og veru komið að kjarna málsins. Ríkisútvarpið er að missa bæði tæknimenn og dagskrárgerðarmenn í stórum stíl yfir til einkarekstrarins vegna þess að Ríkisútvarpið er bundið á þann klafa sem launamálastefna stjórnvalda eða fjmrn. er á hverjum tíma. Til þess að Ríkisútvarpið verði samkeppnisfært um almennilegt starfsfólk þarf það þess vegna að hafa svigrúm, frelsi til að keppa við launaskriðið sem á sér stað á einkamarkaðnum og mætti reyndar nefna það að þetta á við um fleiri þætti en Ríkisútvarpið, en hér er það Ríkisútvarpið sem við erum að ræða um.
Í fjórða lagi spyrjum við spurninga og í fimmta lagi varðandi hvernig fé Ríkisútvarpsins nýtist til dagskrárgerðar og hve miklu sjónvarpið hefur varið til kaupa á fullbúnu innlendu efni frá öðrum framleiðendum. Það vakti athygli mína, sem horfi á sjónvarp sjálfsagt ekki meira en hver annar en örugglega svona eins og gengur og gerist, að það fer mjög í vöxt að alls konar fyrirtæki úti í bæ, einkafyrirtæki sem fara með kvikmyndagerð af ýmsum toga, dagskrárgerð eru ráðin til að framleiða þætti fyrir Sjónvarpið, þætti sem eru í rauninni mjög einfaldir og ætti að vera auðvelt fyrir Ríkisútvarpið að framleiða, og mér er tjáð að það komi fyrir að á sama tíma og verið er að framleiða þessa þætti úti í bæ gerist það að starfsmenn Sjónvarpsins sjálfs séu ákaflega verklitlir í stofnuninni sjálfri, bíði þar jafnvel tímunum saman eftir verkefnum meðan fyrirtæki úti í bæ, kvikmyndarfyrirtæki, eru látin annast þessi verkefni. Ég verð að segja það fyrir mig að ég hef grun um að þarna sé ekki eins vel farið með peninga og vera þyrfti. Hér er ekki eingöngu spurningin um að auka tekjur Ríkisútvarpsins, sem er mjög mikilvægt vegna þess að það hefur tapað tekjum upp á mörg hundruð millj. kr., heldur er þetta líka spurningin um að fara vel með það fé sem Ríkisútvarpinu er þegar trúað fyrir.
Ég vek athygli þingheims á greinargerð um fjárhag Ríkisútvarpsins 1985–1987 og horfur 1988 frá Herði Vilhjálmssyni þar sem hann fer ítarlega yfir þróun þessara mála á undanförnum árum og undirstrikar tekjutap Ríkisútvarpsins af auglýsingum, verulegt tekjutap, en segir síðan að þetta tekjutap hafi í för með sér ekki einasta stöðnun í dagskrárgerð, veikari samkeppnisstöðu þegar hún hefði þurft að verða sterkari, heldur líka það að Ríkisútvarpið getur ekki sinnt nauðsynlegum framkvæmdum við dreifikerfi eins og t.d. byggingu langbylgjustöðvar sem er gríðarlega mikilvægt öryggisatriði og forsenda þess að Ríkisútvarpið nái til allra landsmanna. Okkur kann að finnast það skrýtið, sem sitjum hér í Reykjavík og erum að skarka í útvarpstækjunum okkar í bílnum hjá okkur með fjórar, fimm og sex stöðvar og guð veit hvað og eigum erfitt með að átta okkur á öllu þessu stöðvaflæði, að það eru til staðir á landinu þar sem er mjög erfitt að ná Ríkisútvarpinu, að ná þó ekki væri nema gömlu „Gufunni“ sem sumum hér finnst hversdagsleg en þykir gott að ná til á einstaka afskekktum stað á landinu. Það er auðvitað jafnréttis- og byggðamál að tryggja að þessi útvarpsstöð allra landsmanna nái til allra landsmanna, en hitt er ekki síður mikilvægt að muna eftir í þessu sambandi að öryggið varðandi rekstur stofnunarinnar verður ekki tryggt nema með langbylgjustöð.
Það er einnig athyglisvert, herra forseti, að á sama tíma og gerð er krafa um stóraukna samkeppni Ríkisútvarpsins við aðra aðila lækkar fjárframlag Ríkisútvarpsins, bæði hljóðvarps og sjónvarps, til fréttastofanna sem eru þó oft og tíðum hjartað í þessum stofnunum. Það er athyglisvert og mig satt að segja rak í rogastans þegar ég sá það í töflum frá Herði Vilhjálmssyni, sem birtar eru með þessari þáltill., að um er að ræða lækkun á framlögum til fréttastofu hljóðvarpsins 1987–1988 um 151/2 millj. kr., þ.e. úr 59 millj. í 431/2 millj. kr. Það hlýtur að vera okkur mjög alvarlegt umhugsunarefni að niðurskurðurinn kemur niður á fréttadeildinni sem augljóslega er sá aðili sem úrslitum getur ráðið um hvernig þessi mikilvæga stofnun landsmanna allra, Ríkisútvarpið, stendur sig í samkeppni við aðra ljósvakamiðla.
Ég gæti tínt margt fleira til, herra forseti, varðandi þessa till. en tilgangur hennar er að koma málinu á dagskrá þannig að þingið geti um þetta fjallað, bæði í umræðum og í nefnd.
Ég vil að lokum leggja áherslu á eftirfarandi þætti: Ég hef rakið efni tillögunnar sjálfrar. Ég hef bent á að það sé óeðlilegt að stjórnarliðið fari eitt með endurskoðun á útvarpslögunum eins og nú er í gangi. Stjórnarliðið er eitt að þessu og þó bara hluti stjórnarliðsins. Mér skilst að kratarnir fái ekki að vera með og er oft bættur skaðinn þó að þeim sé sleppt, en þó er það þannig að þar í hópi er einn og einn maður sem hefur sérstakan áhuga á Ríkisútvarpinu og hefur oft talað máli þess myndarlega í þinginu.
Ég nefndi hugmyndir um söluna á Rás 2 sem eru ekkert annað en hugmyndir um að veikja Ríkisútvarpið. Þar sameinast Borgarafl. og Sjálfstfl. í því að selja Rás 2. Segja má að það sé sameiningartákn þeirra og það er ánægjulegt að eitthvað slíkt skuli enn þá vera til. Út af fyrir sig er það þeirra mál og kemur mér ekki við, en það er fróðlegt.
Ég hef hérna farið nokkuð yfir fylgiskjöl málsins og niðurstaða mín er þessi:
Það er ljóst að Ríkisútvarpið stendur núna frammi fyrir samdrætti í rekstri og veikari samnings- og samkeppnisstöðu en áður. Í öðru lagi er ljóst að ekki verður um að ræða framkvæmdir við langbylgjustöðvar sem eru þó mikilvægur úrslitaþáttur í því að treysta öryggi Ríkisútvarpsins og að það nái til allra landsmanna. Í þriðja lagi verður ekki farið út í þær almennu endurbætur á dreifingarkerfi Ríkisútvarpsins sem óhjákvæmilegar eru. Í fjórða lagi er ljóst af þessari stöðnunar- og afturhaldsstefnu að það verður ekki um að ræða betri dagskrá. Það er m.a. verið að skera niður fréttadeildina. Í fimmta lagi tel ég að sú fjárhagsáætlun sem liggur fyrir fyrir árið 1988 sé óraunsæ því að það er gert ráð fyrir 10% raunaukningu á auglýsingum þegar allir vita að það er samdráttur á auglýsingamarkaðnum í þjóðfélaginu og samkeppnin harðnandi um það litla sem eftir er.
Niðurstaða mín verður þá sú að spyrja þessarar spurningar: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að drepa Ríkisútvarpið? Er það ætlun ríkisstjórnarinnar að drepa Ríkisútvarpið? Er það þannig að Sjálfstfl. t.d. telji að það sé nauðsynlegt að veikja Ríkisútvarpið og stöðu þess? Ég get ekki skilið tillöguna um söluna á Rás 2 öðruvísi. Hver er stefna hinna flokkanna? Hver er stefna Framsfl. í þessu efni? Hann hefur ekki mikið talað. Hann hefur látið menntmrh. um að lýsa því yfir að það eigi að veikja Ríkisútvarpið. Hefur Framsfl. kannski þá stefnu eða hefur hann einhverja aðra? Og hefur Alþfl. einhverja stefnu í þessu máli? Það þýðir ekki að spyrja um það í þessum sal. Flokkurinn er sennilega mestallur úti í Osló. En það væri fróðlegt að vita hver afstaða stjórnarflokkanna er í þessu máli því að hér er komið að máli sem snertir grundvallarþætti í okkar þjóðfélagi, menningarþróun, öryggismál og byggðamál, allt í senn.