10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5668 í B-deild Alþingistíðinda. (3804)
288. mál, efling Ríkisútvarpsins
Málmfríður Sigurðardóttir:
Herra forseti. Hér er til umræðu mikilsvert mál, mikilsvert fyrir alla landsmenn. Í bráðum 60 ár hefur Ríkisútvarpið verið eitt traustasta skjól tungu okkar og menningar í þeim boðaföllum og byltingum, menningarlegum og tæknilegum, sem yfir heiminn hafa gengið á þeim tíma. Ríkisútvarpið hóf starf sitt við ótraustan fjárhag og allar götur síðan hefur stofnunin glímt við auknar og vaxandi kröfur um þjónustu annars vegar og naumar fjárveitingar hins vegar. Í því efni er skemmst að minnast þess fyrr í vetur þegar tekjustofnar þess voru verulega skertir. Við þær umræður mótmæltu kvennalistakonur því harðlega að hagur Ríkisútvarpsins væri þrengdur á nokkurn hátt. Við minntum á þær skyldur sem Ríkisútvarpinu eru lögum samkvæmt lagðar á herðar umfram aðra fjölmiðla og við minntum á tekjutap þess af auglýsingum við tilkomu nýju stöðvanna þegar Ríkisútvarpið verður jafnframt að standa í harðri samkeppni við þær.
Allt hefur þetta verið rakið hér áður. Efling Ríkisútvarpsins er brýnt hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Möguleikar þess til fræðslu, kennslu og til fjarnáms hafa aldrei verið nýttir að neinu marki þó svo að nú sé að birtast vísir að slíku, lítill og veikburða enn, en vonir standa þó til að hann þróist og eflist. En það gerist hins vegar ekki nema fjárhagsgrundvöllurinn sé traustur.
Þá má ekki gleyma því að Ríkisútvarpið hefur ekki sjálfdæmi um hverju verði það selur sína þjónustu. Það hafa hins vegar samkeppnisaðilar þess. Og ég minntist á það áður að Ríkisútvarpinu væru lagðar skyldur á herðar. Því er ætlað að standa vörð um íslenska tungu og menningu. Það er sá eini fjölmiðill sem í einni svipan getur náð til allra landsmanna ef voða ber að höndum. Í lögum um almannavarnir er gert ráð fyrir að almannavarnir sendi út hættumerki þegar vá steðjar að. Hverjum er ætlað að bera landsmönnum þau boð öðrum en útvarpinu? Útvarpið er því ekki einungis menningarstofnun. Það er einnig öryggistæki, eins og hv. flm. minnti á áðan, og á undanförnum áratugum hefur það verið og er enn einn traustasti þátturinn í því að við Íslendingar erum menningarleg heild. Með því að efla hag þess svo sem unnt er eflum við einnig þann þátt sem okkur er öllum svo óendanlega mikilsverður, lítilli þjóð í strjálbýlu landi.
Undanfarið hafa risið upp svæðisútvarpsstöðvar á landsbyggðinni, útibú frá Ríkisútvarpinu. Þessar stöðvar gegna mikilsverðu hlutverki, hver á sínum stað, um upplýsingar, fréttir og menningarlegt efni. Og Ríkisútvarpið gegnir mikilvægu byggðastefnuhlutverki í gegnum þessar stöðvar, en þó fyrst og fremst stofnunin sjálf sem nær til allrar þjóðarinnar og hefur oftlega tekist að sameina hana, bæði á sorgar- og gleðistundum. Í ljósi þess sem ég hef þegar sagt og hv. flm. rakið svo vel hlýtur öllum að vera brennandi áhugamál að efla þessa stofnun. Því lýsi ég stuðningi Kvennalistans við þá þáltill. sem hér er til umræðu og vona að hún fái skjótan og góðan framgang.