10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5670 í B-deild Alþingistíðinda. (3806)

288. mál, efling Ríkisútvarpsins

Níels Árni Lund:

Herra forseti. Í fáum orðum vildi ég lýsa því yfir að ég held að sú till. sem hér er fram borin sé af hinu góða og styð hana. Það er ljóst að Ríkisútvarpið, eins og hér hefur reyndar komið fram, er einn af hornsteinum okkar íslensku menningar og sá miðill sem flestir ef ekki allir treysta best í þeim mikla heimi fjölmiðlunar hér á landi og telja Ríkisútvarpið hlutlausast af þeim fjölmiðlum og ekki vanþörf á að einhver sé slíku marki brenndur.

Það sem aðallega fékk mig þó hingað í ræðustól var það sem hv. flm. þessarar till. var að benda á, samkeppnisaðstaða Ríkissjónvarpsins t.d. hvað varðar auglýsingar. Þá mundi ég eftir því að sl. föstudag ætlaði ég að birta eina skjáauglýsingu um fund sem átti að halda í vikunni á eftir, á mánudagskvöld. Ég hringdi um hádegi á föstudag og bað um skjáauglýsingu í ríkissjónvarpinn. Það var ekki hægt fyrr en á mánudagskvöld þar sem þurfti að senda þessa litlu skjáauglýsingu í hvers konar vinnslu í önnur hús. Þar með var búið að loka fyrir móttöku á slíkum auglýsingum strax um hádegi á föstudag alveg fram á mánudagskvöld. Ég gerði það að gamni mínu að ég hringdi í Stöð 2. Þá var strax hægt að taka slíka auglýsingu á föstudagskvöldið svo og að sjálfsögðu alla helgina og mánudagskvöld.

Þetta dæmi vakti mig enn frekar til umhugsunar um hvernig að okkar fjölmiðli er búið og hver hans samkeppnisaðstaða er og möguleikar hans til að standa í stykkinu sínu í þeirri miklu og óbilgjörnu samkeppni sem á sér stað á auglýsingamarkaðnum.

Ég hef líka þá trú að Ríkisútvarpið standi á miklum tímamótum. Uppi er nú mikið fjölmiðlafár hér á landi og mér sýnist að vart komi annað til greina en að þeim fjölmiðlum sem nú eru við lýði komi til með að fækka á næstu árum. Næsta ár mun kannski skera úr um hverjir lifa og hverjir deyja á þessum markaði þar sem þeir byggja að mestu leyti sína afkomu á auglýsingum, ef ekki öllu leyti sumir hverjir. Því er það mikils vert að treysta stöðu Ríkisútvarpsins, þess miðils sem landsmenn eiga allir og eins og ég sagði áðan er einn af hornsteinum okkar menningar.

Hvað varðar stefnu Framsfl. í þessum málum hefur margoft komið fram að Framsfl. hefur staðið vörð og mun standa vörð um Ríkisútvarpið og vill líka efla það á allan máta. Það hefur aldrei annað komið fram af hálfu Framsfl. Þm. Framsfl. hafa oftar en einu sinni flutt till. á hv. Alþingi um eflingu Ríkisútvarpsins og sjónvarpsins, m.a. sem fól í sér það, má ég fullyrða, ég vona að mitt minni bresti ekki, að gera sérstakt átak í því að útvarpið næði betur út á miðin til sjómanna. Þannig mætti lengja telja. Hv. þm. þurfa ekki að efast um vilja Framsfl. til góðra hluta í garð Ríkisútvarpsins. Samt sem áður held ég að sú till. sem hér er lögð fram um eflingu Ríkisútvarpsins sé af hinu góða og ég efast ekki um að starf þeirrar nefndar sem gerð er tillaga um að verði sett á fót verði þess valdandi að staða okkar ágæta fjölmiðils verði bætt enn frekar.