10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5677 í B-deild Alþingistíðinda. (3812)
288. mál, efling Ríkisútvarpsins
Árni Johnsen:
Herra forseti. Það eru tvö atriði í umræðunni sem ég vil lítillega geta um. Mér finnst út í hött að tala um að selja Rás 2. Rás 2 er hagræðingaratriði innan Ríkisútvarpsins og að vísu markað nú samkvæmt lögum að heita Rás 2. Það er ekkert sem mælir á móti því að Ríkisútvarpið sé með fimm rásir þess vegna ef hægt er að koma því fyrir innan Ríkisútvarpsins sem stofnunar. Þetta hlýtur að vera spurning um það að stilla upp rekstri og dagskrárgerð með ákveðnum hætti og þar eru allir möguleikar opnir. Það er hins vegar óþarfi að byggja margar yfirbyggingar innan einnar stofnunar án þess að ég sé að segja að það sé á Rás 2. En þess þarf að gæta í allri skipulagningu útvarpsins.
Auðvitað verður útvarpið að vera alhliða útvarp. Það er ekki hægt að marka það eingöngu við skýrslugerð eða þurran málflutning. Það er talað um menningarefni sent kannski Ríkisútvarpið umfram aðrar slíkar stöðvar á landinu lætur vinna bæði í máli og í myndum og það kostar hluti sem borga sig ekki peningalega. Það er ekki fjárhagslegur ávinningur af því einu sér að láta vinna ákveðin verkefni sem t.d. Ríkissjónvarpið lætur gera. En það er mikið atriði í menningarstarfi og menningarskráningu á Íslandi, fræðslu og upplýsingum. Það er á þessum þætti sem styrkur Ríkisútvarpsins og mikilvægi er að mínu mati.
Í öðru lagi vildi ég víkja lítillega að einu atriði sem heyrir beinlínis undir Ríkisútvarpið. Það er þjónusta við sjómenn landsins. Það eru á milli eitt og tvö þúsund skip sem eru daglega á sjó við landið, stór og smá, þar af tæplega þúsund skip sem eru með yfirleitt fimm til tíu sjómenn um borð. Og þessi hópur Íslendinga, fimm til tíu þúsund sjómenn, sem eru daglega á sjó við landið, þeir eiga fulla heimtingu á eðlilegri þjónustu í þessum efnum eins og aðrir landsmenn. En hún er ekki til staðar í dag. Þeir ná að vísu útvarpinu í flestum tilvikum. En bátar, sem dóla við veiðar nokkra km frá landinu, víða við landið, þeir ná ekki sjónvarpi. Og það er eitt af þeim hlutverkum sem Ríkisútvarpið sjónvarp á að standa fyrir - og er ekki beinlínis fjallað um í þessari till. sem hér er til umræðu, enda ekki ástæða til að tína til þannig þætti kannski - en það er eitt af þeim málum sem Ríkisútvarpið á að stuðla að og standa fyrir að sé í lagi, að þeir sjómenn, sem eru á þessum eitt til tvö þúsund atvinnutækjum í kringum landið, njóti sömu þjónustu og landmenn sjálfir.