10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5683 í B-deild Alþingistíðinda. (3819)

296. mál, endurskoðun lánskjaravísitölu

Flm. (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti,. Ég mæli hér fyrir till. til þál. á þskj. 599 um endurskoðun lánskjaravísitölu. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa fimm manna nefnd til þess að endurskoða grundvöll lánskjaravísitölunnar.“

Svo sem allir vita og raunar hefur oft verið rætt, þá er sú lánskjaravísitala sem við höfum valið og búum við eingöngu kostnaðartengd. Hún tekur á engan hátt mið af launaþróun eða gengisþróun í þjóðfélaginu. Lánskjaravísitalan er samsett að 2/3 hlutum úr framfærsluvísitölu og 1/3 úr byggingarvísitölu og það er eðli beggja þessara vísitalna að þær mæla kostnað, fyrst og fremst kostnað.

Þá komum við að einni meginspurningu sem menn hljóta að verða að gera upp við sig þegar íhugað er hversu viðamikið hlutverk lánskjaravísitölunnar er í íslensku þjóðfélagi og það er: Hvert er hlutverk lánskjaravísitölunnar? Er það hlutverk lánskjaravísitölunnar að mæla tekjur af fjármagni? Eða er það hlutverk lánskjaravísitölu að mæla verðbreytingar eigna, þ.e. að meta verðbreytingar af fjármagni á sama hátt og verðbreytingar eða í svipuðum mæli og verðbreytingar annarra eigna? Eða er það í þriðja lagi hlutverk lánskjaravísitölu að mæla lánskjör? Í fjórða lagi: Er það hugsanlegt að það sé hlutverk lánskjaravísitölu að mæla verðbreytingar? Hvað er það sem við höfum ætlað lánskjaravísitölunni að mæla? Ég held að það megi velta því lengi fyrir sér og nú þegar við höfum notað þessa lánskjaravísitölu í ein sjö til átta ár þá er ástæða til þess að líta yfir farinn veg og kanna hversu þessi lánskjaravísitala hefur þróast, hvaða áhrif hún hefur haft í þjóðfélaginu og hvernig hún hefur þróast miðað við ýmsar aðrar stærðir í efnahagslífi Íslendinga.

Ef menn vilja miða við það að tekjur af sparifé eða tekjur af fjármagni almennt eigi að mælast út frá lánskjaravísitölu og lánskjaravísitalan sé hinn raunverulegi viðmiðunargrunnur fyrir raunvexti, þá er ég þeirrar skoðunar að grunnur lánskjaravísitölunnar sé rangur sem kostnaðargrunnur. Ef hann er fyrst og fremst hugsaður sem tekjugrunnur fyrir fjármagn þá ætti hann að taka viðmiðun af annarri tekjuþróun í þjóðfélaginu. Það er óeðlilegt á sama tíma og menn segja ekki unnt að verðtryggja laun eða binda aðrar efnahagsstærðir við kostnaðareiningar í þjóðfélaginu að binda eina stærð sem væru tekjur af fjármagni eingöngu við kostnaðarþróun. Ég hygg að það sé á allan hátt óeðlilegt að setja tekjur af fjármagni á þann hátt skör ofar en þær tekjur sem unnið er fyrir og aflað með hörðum höndum.

Ef menn telja að hér sé um tekjuviðmiðun að ræða fyrir sparifé þá verða menn að breyta þessum grunni þannig að hann taki mið af tekjuþróun. Ef menn vilja að lánskjaravísitala mæli þróun eigna í þjóðfélaginu þannig að hún meti breytingar eigna eða verðmætabreytingar á fjármunum á sama hatt og verðmætabreyting verður á eignum í þjóðfélaginu, þá þurfa menn líka að taka inn nýjar stærðir í þennan grunn, sem eingöngu mælir kostnaðarbreytingar á sama tíma og aðrar eignir í þjóðfélaginu eða mat þeirra er að mestu leyti háð ýmsum markaðslögmálum. Þá er óeðlilegt að mæla eðlilegar verðbreytingar á fjármagni og sparifé á sama hátt eingöngu út frá kostnaði og gera þar greinarmun á eignum í fé eða fjármagni og öðrum eignum á hinn veginn.

Sé lánskjaravísitölu ætlað að mæla lánskjör og hún sé vísitala á lánskjör, þá hygg ég að það orki mjög tvímælis að hún sé byggð upp þannig að hún taki eingöngu mið af kostnaði, en á engan hátt af gengi. Og þegar horft er til tekjuþróunar og gengis virðist mér sem einmitt þetta tvennt hafa kallað fram misgengi í þjóðfélaginu. Lánskjör sem byggð eru upp, ef menn eru að tala um lánskjör á þennan hátt, út frá kostnaðarbreytingum ganga mjög á skjön eða misganga við önnur lánskjör í kringum okkur. Og það er ljóst að ef gengisviðmiðun kemur ekki inn í lánskjaravísitölu þá mun lánskjaravísitala sem mælir lánskjör á þann hátt sem þessi gerir valda miklu misgengi fyrir útflutningsatvinnuvegina vegna þess að lánskjör og fjármagnskostnaður verður miklu hærri, í þeirri þróun sem verið hefur hér að undanförnu, hér innan lands en erlendis sem veldur aftur því að fjármagnskostnaður útflutningsatvinnuveganna hjá okkur verður miklu meiri en samkeppnisaðila í öðrum þjóðfélögum.

Ef í fjórða lagi menn vilja að eingöngu sé um að ræða verðbreytingar og að lánskjaravísitölu sé ætlað að mæla verðbreytingar er ég kominn að þeirri niðurstöðu að slík viðmiðun sé órökréttust af öllum þeim sem ég hef áður nefnt og tek þá enn fram að verðtrygging fjármagns óháð allri annarri þróun og allri annarri verðþróun í þjóðfélaginu er mjög óeðlileg. Óeðlilegt er á allan hátt að mínu viti að verðtryggja á þennan hátt einn þátt í þjóðfélaginu þegar menn treysta sér ekki til að verðtryggja aðra.

Vilji menn mæla verðbólgu verður það auðvitað endalaust spurning á hvern hátt menn vilja mæla hana. Ég tel þess vegna að nú þegar við höfum notast við þessa lánskjaravísitölu í 7–8 ár sé mikil ástæða til að við skoðum á hvern hátt hún hefur skilað sínu hlutverki. Hefur hún náð því sem við ætluðumst til af henni? Er hún óeðlilega upp byggð? Hvernig hefur hún þróast miðað við þróun annarra efnahagsstærða í þjóðfélaginu? Reyndar hygg ég, miðað við þá þróun sem verið hefur í okkar efnahagslífi, að óeðlilegt sé að verðbinda eina stærð á þann hátt sem hér er gert. Ég hygg að það dragi úr sveigjanleika í okkar efnahagslífi og ég vil sérstaklega taka það fram að ég tel mjög hæpið í íslensku þjóðfélagi, ef ekki alveg fráleitt, að binda skammtímafjárskuldbindingar við lánskjaravísitölu eins og hér er gert, lánskjaravísitölu sem byggð er upp eingöngu af kostnaðarliðum, vegna þess að okkar þjóðfélag er svo sveiflukennt og hinar ýmsu stærðir sveiflast á mjög mismunandi vegu og á tiltölulega stuttum tíma getur misgengi milli stærða í efnahagslífinu orðið slíkt að verulegur skaði eða verulegt tjón getur hlotist af þegar ein stærð eins og fjármagn eða fé er bundið á þennan hátt við ákveðnar stærðir eins og kostnaðarbreytingar. Þetta höfum við séð varðandi misgengishópana þegar litið er til húsnæðiskaupa og þegar misgengi varð milli launa og fjármagns þar sem sumir urðu fyrir gífurlegu tjóni. Ég hygg að við sjáum þetta líka í misgengi gengis og lánskjara sem er að verða núna.

Það má hins vegar segja að líklegt sé að á löngum tíma jafnist þessar sveiflur út þannig að binding á þennan hátt á langtímaskuldbindingum sé síður hættuleg en skammtímaskuldbinding. Sveiflujöfnun kemur fram til lengri tíma en á skömmum tíma getur verið um verulegar hættur að ræða. Grunnurinn er mjög viðkvæmur fyrir skammtímasveiflum og felur í sér margar, margar hættur.

Ég ítreka síðan að lokum þetta: Það er í fyrsta lagi mín skoðun að mjög óeðlilegt sé að verðtryggja eða binda fé sem eina stærð í þjóðfélaginu við kostnaðarbreytingar. Ég vil síðan segja það að ég held að menn þurfi að meta hlutverk lánskjaravísitölunnar upp á nýtt í ljósi þess tíma sem hún hefur gilt, hvað það er sem við ætlumst til af henni, og skoða hvernig hún hefur nýst. Ég hygg að það sé mikill vandi að finna eðlilegan og sannfærandi grunn fyrir lánskjaravísitölu ef það yfir höfuð er hægt. Vísitölubinding þekkist í öðrum löndum. Mér er ekki kunnugt um hvort hún er eingöngu miðuð við kostnað og það þyrfti að skoða sérstaklega er á hvern hátt vísitölubinding fjármagns eða fjárskuldbindinga fer fram í öðrum löndum og hver reynsla er af henni þar. (Gripið fram í.) Í löndum í kringum okkur? Ég hef ekki nöfnin á hraðbergi en samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef fengið þá þekkist þessi trygging í nokkrum löndum og mun að einhverju leyti vera kostnaðarbundin en það mun verða eitt af hlutverkum þeirrar nefndar sem ég legg til að skipuð verði einmitt að skoða það.

Ég held þess vegna og ítreka það að það sé mikil nauðsyn og margir sem eiga mikið undir því að þessi grunnur sé skoðaður og legg til, herra forseti, að þessari till. verði að loknum umræðum vísað til allshn.