02.11.1987
Neðri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í B-deild Alþingistíðinda. (384)
43. mál, leyfi til slátrunar
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Þegar þetta frv. var flutt var það tekið fram við 1. umr. málsins að það væri flutt af illri nauðsyn og væri mjög óvenjulegt. Það var ekki flutt fyrr en allt var komið í ótíma, slátrun var víðast hvar lokið á landinu en ólokið var að slátra fé í Arnarfirði og í Tálknafirði sem allir höfðu beðið með í trausti þess að stjórnvöld veittu undanþágu til eins árs eins og hefur verið gert við 2/3 af sláturhúsum sem annast hafa slátrun í landinu á sl. hausti.
Við tókum fram að ef einhver dráttur yrði á afgreiðslu málsins væri það auðvitað það sama og frv. væri að engu orðið. Talsmaður meiri hl. landbn. lýsti því yfir að hann hefði reynt að hraða málinu. Það kom fram í nál. á föstudegi og þingfundur var ekki fyrr en á mánudag, en þá var líka málið orðið svo aðkallandi að menn voru svínbeygðir undir kansellíið og þar með var frv. í raun og veru afgreitt. Það er ekki lengur nema á pappírnum. Það er gagnslaust með öllu því að það er sennilega um það bil að verða búið að slátra og þetta frv. gerði ráð fyrir að landbrh. gæfi út slíkt leyfi á þessu hausti. Þannig tel ég enga ástæðu til, herra forseti, að frv. gangi til atkvæða. Það hefði verið sjálfsagt ef nefndin hefði skilað áliti strax eins og við sögðum frá við 1. umr. málsins.
Við umræðu málsins tók ég fram að það væri mjög óeðlilegt að þurfa að fara slíka leið sem þessa. Það var búið að reyna friðsamlega leið á öllum sviðum. Það var búið að eiga viðræður við landbrh. í landbrn., við settan yfirdýralækni, við forustumenn þess sveitarfélags sem hér á hlut að máli og sláturfélagsins ásamt tveimur af þm. Vestfjarða sem sátu þennan fund. Þar var ekkert til fyrirstöðu því að ekki væri búið að standa við þær kröfur sem gerðar eru almennt til hollustuverndar við slíka starfrækslu og það stóð ekkert á ráðherra að veita slíkt leyfi. Ef dýralæknir fengist til að skoða kjötið, sagði ráðherra í umræðunum að leyfi mundi verða gefið út. En svo standa upp alþm. í deildinni, tala um saurgerla, éta það upp eftir settum dýralækni hver um annan þveran, ég hugsa að þeir hafi étið mikið af þeim meira að segja í leiðinni, og það stóðu líka upp menn sem skýrðu frá áliti Stéttarsambands bænda. Ég er eiginlega alveg undrandi á málflutningi þessara manna við afgreiðslu málsins. Einn hv. þm. fór að tala um salmonellu, eins og komu fram á einum stað á landinu, sem ég held að eigi ekkert erindi inn í þessar umræður. Sem betur fer hef ég ekki heyrt getið um að þessi padda hafi komist í kindakjöt, enda væri þá vá fyrir dyrum. Hins vegar vitum við allir að kólígerlar finnast víðast hvar í vatni. Eins og hv. talsmaður minni hl. landbn. gat um upplýsti annar fulltrúi neytenda að 40–50 vatnsveitur á Íslandi væru með svipuðum hætti og við margar vatnsveitur sem þannig er ástatt fyrir eru sláturhús sem fengið hafa leyfi.
Það get ég sagt hv. alþm. þessarar deildar að aldrei hefði mér dottið í hug að gagnrýna yfirdýralækni, héraðsdýralækni og landbrh. þó það hefði verið neitað um sláturleyfi í sláturhúsinu á Ísafirði. Það hefði ég ekki treyst mér til að gera eins og ástandið er þar. En ég þekki ekki nema örfá sláturhús svo að ég er ekki fær um að taka upp í mig meira en það sem ég þekki.
En út af því hve einn af þm. þessarar hv. deildar, sem jafnframt er í bændastétt, hafði gaman af því að lesa upp umsögn setts yfirdýralæknis til að fá inn í þingtíðindin þann óhróður allan sem þar kemur fram þykir mér tilhlýðilegt að lesa upp, svo að það komist einnig inn í þingtíðindin, símskeytið sem hreppsnefnd Bíldudals sendi forsrh. og er svohljóðandi:
„Hreppsnefnd Bíldudalshrepps mótmælir harðlega þeim einkennilegu ummælum sem settur yfirdýralæknir, Sigurður Sigurðarson, hefur haft um Bíldudal í fjölmiðlum. Þess er óskað að ríkisstjórn Íslands láti fara fram opinbera rannsókn á þeim rakalausu fullyrðingum sem Sigurður Sigurðarson hefur látið fara frá sér í fjölmiðlum um atriði eins og saurgerla, rottugang og matareitrun sem gefur alranga mynd af staðnum, Bíldudal, og íbúum hans til niðurlægingar. Ljóst er af síðustu yfirlýsingu Sigurðar Sigurðarsonar að hann hefur ekki fjallað um sláturhúsmálið á Bíldudal á faglegan hátt. Þess er óskað að landbrn. stöðvi nú þegar yfirlýsingar yfirdýralæknis Sigurðar Sigurðarsonar um Bíldudal. Jafnframt að upp verði gefið hvar kólígerlar hafa fundist í vatni hér á landi til að sýna hversu algengt þetta er.
Afrit af þessari ályktun verði sent Jóni Helgasyni landbrh. og Matthíasi Bjarnsyni, 1. þm. Vestf. F.h. hreppsnefndar Bíldudals, Flosi Magnússon
sveitarstjóri.“
Þetta skeyti mun hafa verið tekið fyrir á ríkisstjórnarfundi þriðjudaginn eftir að það barst og ríkisstjórn Íslands tók mjög snöfurmannlega á þessu máli eins og við var að búast og komst að þeirri niðurstöðu að engum væri nú betur treystandi til að rannsaka þetta mál en hæstv. landbrh. og fól honum málið aftur, en þar hafði málið verið frá því að umsókn var send 24. ágúst. Þetta var mjög myndarlega gert og Arnfirðingar koma til með að þakka mjög innilega fyrir það, en það sýnir að hæstv. forsrh. ber óskorað traust til hæstv. landbrh. og treystir engum manni betur til að fara með þessi mál en honum.
Hitt er svo annað mál að ég treysti ekki hæstv. landbrh. að gera neitt í þessu máli, ekki nokkurn skapaðan hlut, eftir það sem á undan er gengið. Hann gat vel leyst þetta mál ef hann hefði viljað eða réttara sagt: Hann vildi það, en hafði ekki kjark. Landbrh. sagði hér í umræðum á dögunum: Það þýðir ekkert fyrir Bílddælinga að gefið sé út leyfi nema einhver vilji skoða kjötið. Og það ætlum við að gera. Ef einhver fengist til að skoða kjötið mundi leyfið verða gefið út. Þá væri búið að fá dýralækni. Ekki einn heldur tvo. En þeir gáfust allir upp. Þeir fóru á fund einhvers eins manns og kjarkurinn var búinn þar á eftir alveg eins og hjá hæstv. landbrh. Það gerðist.
Ég verð að segja að það er rétt að þessi orrusta er töpuð, en ég vil ekki jafnframt halda því fram að stríðið sé tapað þrátt fyrir það. Það verður vafalaust mikið gert í því að halda áfram að vinna að því að réttlát afgreiðsla verði viðhöfð í framtíðinni í þessum efnum.
Það er sorglegt til að vita að stéttarfélag bænda skuli láta frá sér fara í nafni stéttarsambandsins það bréf sem kom fyrir landbn. þessarar hv. deildar. Ég hef fyrir satt að stéttarfélag bænda hafi ekki haft nokkurt samband við félagsmenn sína á þessu svæði. Nei, þeir voru fyrir fram ákveðnir í því að gera rétt þeirra að engu. Þeir voru algjörlega á bandi stjórnvaldsins í þessum efnum og þá geta allir sagt sér það hvar þessir menn væru ef kansellíið væri enn þá við lýði. Þá lægju þeir hundflatir fyrir kansellíinu en ekki fyrir eigin félagsmönnum og félögum.
Menn töluðu við 1. umr. málsins um að virðing Alþingis væri í voða. Hjörleifur Guttormsson, 2. þm. Austurl., sagði: Hverjir eru umboðsmenn fólksins ef það eru ekki þingmenn? Hverjir eiga að leita réttar fólksins þegar á það er ráðist ef það eru ekki þingmenn? Og þó ég sé ekki alltaf sammála þeim hv. þm. var þetta eins og talað frá mínu hjarta. Það var hárrétt sem hv. 2. þm. Austurl. sagði í þessum umræðum. Hvað mundu aðrir menn segja, bæði í þessari hv. þingdeild sem annars staðar, ef þau vinnubrögð væru viðhöfð að eigur væru skoðaðar, athugasemdir gerðar og sagt: Þetta þarf að gera, síðan er farið að framkvæma það sem skal gera og ekki einu sinni heldur tvisvar og þegar því er öllu lokið og búið er að eyða frá litlu félagi sem telur fáar bændafjölskyldur, meðal þeirra er ekkja sem lifir eingöngu á sauðfjárrækt, um 800 þús. kr., þá er sagt: Nei, þið skuluð bera þetta sjálf? Og það er táknrænt fyrir Kvennalistann að alltaf þegar einhver slík rangsleitni kemur upp tekur Kvennalistinn upp hanskann fyrir rangsleitnina, eins og ræða talsmanns Kvennalistans við 1. umr. bar greinilega vott um. (Gripið fram í.) Hv. 10. þm. Reykn. hefur ekki í fyrsta sinni ráðist að landsbyggðinni. Hann hefur gert það áður. Hann hefur talið eftir fjárveitingar til heilbrigðismála ef það hefur verið út á land. (KH: Þetta er ómaklegt.) Þetta er gert að flokksmáli í þessum svokallaða flokki sem ætti frekar að teljast sértrúarsöfnuður en stjórnmálaafl. Þetta eru rök fyrir því sem talsmaður Kvennalistans hafði fram að færa. Það er þá gott ef komið er einu sinni að því að talsmaður Kvennalistans kann að skammast sín.
Mér datt í hug hvernig haldið er áfram með störfin og stefnuna úti á landsbyggðinni. Það var að fara í eyði nyrsta jörð á Vestfjörðum. Það var birt samtal við bóndann þar. Hann segir í lok þessa samtals: „Kvótakerfið blinda tekur ekki heldur neitt tillit til slíkra aðstæðna um búsetuna. Vissulega hvarflar það að manni að ásetningur stjórnvalda sé einmitt sá að koma sveitunum við Djúpið í eyði þó enginn vilji samt við það kannast opinberlega. Ef þetta er rétt, þá geta viðkomandi menn og stofnanir fyrir sunnan nú fagnað miklum áfangasigri í orrustunni gegn vestfirskum byggðum, hagsmunum þeirra og sjálfstæði, gegn sjálfri tilveru þeirra. Tyrðilmýri er eitt af skotmörkunum í þeirri orrustu. Reykjanesskóli og sláturhúsið á Bíldudal eru líka þar á meðal.“
Þannig er nú viðhorf manna til framkvæmda þessa máls.
Subbulegasta ritsmíð sem ég hef séð á ævinni birtist í DV 28. okt. undir yfirskriftinni „Bíldudalsbölið“ eftir Dagfara. Ég held að það sé ekki hægt að hugsa sér meira níð og óþverra um einn stað en fram kemur í þessari blaðagrein. Ég kenni í brjósti um höfund þessarar greinar hver sem hann er. Hann telur sér hentugra að skýla sér en að koma fram í dagsljósið, en innræti þess sem þannig skrifar er ekki upp á marga fiska.
Ég veit ekki hvernig á því stóð að það komu upp í mínum huga eftir að hafa séð og heyrt bréf Stéttarsambands bænda og heyrt nokkrar ræður hér við 1. umr. nokkrar ljóðlínur úr kvæði Bólu-Hjálmars sem nefnt er Umkvörtun og þær eru svona:
Félagsbræður ei finnast þar,
af frjálsum manngæðum lítið eiga,
eru því flestir aumingjar,
en illgjarnir þeir, sem betur mega.
Rangsleitnin sem Bólu-Hjálmar varð fyrir barðinu á á sínum tíma lifir enn þá góðu lífi.