14.03.1988
Sameinað þing: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5737 í B-deild Alþingistíðinda. (3869)
339. mál, Björgunar- og slysavarnaskóli Íslands
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég fagna þessari till., tek undir það sem aðrir ræðumenn hafa sagt í þessari umræðu að það er mjög gott að þessi umræða sé færð hér inn á hv. Alþingi. Það er líka ósköp eðlilegt að menn séu ekki allir sáttir við það hvernig á að byggja svona fræðslustarf upp, hvort æskilegt sé að einn öflugur björgunar- og slysavarnaskóli sé byggður upp einhvers staðar á landinu eða hann verði fyrst og fremst byggður upp sem farandskóli eins og verið hefur á undanförnum missirum.
Mín tilfinning er sú að þessi tillaga geri ekki ráð fyrir því að þetta verkefni verði tekið af Slysavarnafélagi Íslands og tel ég það alveg sjálfsagðan hlut að það verði svo áfram sem verið hefur.
Mér finnst að þó að gott sé að slysavarnaumræða beinist fyrst og fremst að sjónum sé hún meira og minna einangruð við það verkefni. Það er reyndar svo að þau eru allt of mörg slysin á sjónum og hvað sem hægt væri að gera til þess að draga úr þeim er allt af því góða. En sá kennsluháttur sem hafður hefur verið að undanförnu, og það felst jafnvel í till., að fyrst og fremst sé verið að ná til starfandi sjómanna, er að mínu mati ekki nógu góður. Ekki er nógu mikið að gert og kannski er að mörgu leyti heldur seint til gripið að fara að þjálfa menn þegar þeir eru komnir til starfa á þessum vettvangi. Það æskilega er, tel ég, að þessi fræðsla, almenn slysavarnafræðsla, verði tekin upp sem skyldunámsgrein í öllum grunnskólum landsins og að grunnkennsla á þessum vettvangi eigi sér stað þar, í 8. og 9. bekk grunnskóla. Við vitum það að íslenskir sjómenn, sú stétt eins og ýmsar aðrar vinnandi stéttir á Íslandi, eru ekki bundnir við þetta starf til langs tíma. Margir eru þeir sem vinna við íslenskan sjávarútveg, á íslenskum fiskiskipaflota, sem eru þar í tvö, þrjú ár eða svo í einhverju millibilsástandi. Stundum eru þetta námsmenn, stundum er þetta fólk sem er að auka tekjur sínar frá öðrum störfum. Þetta fólk er oft og tíðum þannig að það notfærir sér ekki þá kennslu sem er hagað á þann mátá sem tíðkast hefur að undanförnu og yrði í sérstökum slysavarnaskólum.
Mín hugmynd er sem sagt sú, eins og ýmislegt fleira sem væri nauðsynlegt að tengja inn í grunnskólana, að við þyrftum að byggja upp braut í grunnskólunum þar sem þessi vettvangur væri tekinn fyrir og þá vitaskuld fyrst og fremst það sem snertir okkur flest í sambandi við sjóinn og, eins og hér hefur verið nefnt, eldvarnir og annað það sem tengist almennum slysavörnum.
Það er svo náttúrlega jafnsjálfsagt að í þeim skólum sem kenna sjómannafræði, hvort sem það eru vélstjóra- eða siglingafræði, séu þessi mál kennd og enginn sé útskrifaður úr slíkum skólum nema hafa fullkomna fræðslu á þessum vettvangi. Það kannski snertir ekki þessa umræðu, en aðeins þó. Ég tel þess vegna að sá háttur sem tekinn hefur verið upp í fræðslu íslenskra sjómanna undanfarandi missiri, að menn hafa getað fengið ákveðin réttindi með skyndikennslu, stuttum námskeiðum og slíku, sé ekki heppileg þróun í sambandi við þessa hluti nema fræðsla í slysavörnum sé skilyrðislaust tengd því námi, hvort sem er verið að tala um að gefa mönnum réttindi sem eru svokölluð 30 tonna réttindi eða hvað annað stig sem er þar fyrir ofan með stuttum námskeiðum.
Ég fagna till. sem ég vona að komi til fullrar afgreiðslu og mun styðja hana.