14.03.1988
Sameinað þing: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5739 í B-deild Alþingistíðinda. (3871)

339. mál, Björgunar- og slysavarnaskóli Íslands

Árni Johnsen:

Hæstv. forseti. Það er í fyrsta lagi að aðeins um 20–30% sjómanna, þ.e. yfirmenn, njóta fræðslu í skólum stýrimanna og vélstjóra á sviði slysavarna. Allir aðrir sjómenn hafa ekki aðgang að slíkri fræðslu og Slysavarnaskóli Slysavarnafélags Íslands hefur leyst þarna úr brýnni þörf.

Nefnd sú sem ráðherra hefur falið að marka stefnu og gera tillögur um slysavarnaskóla, sem er það sama og björgunar- og slysavarnaskóli, eins og till. fjallar um, mun taka sérstakt tillit til eldvarna en það er einmitt eldvarnaþátturinn í slíkum skóla sem hlýtur að gera þann skóla staðbundinn. Eldvarnaþátturinn, þær aðstæður sem þurfa að vera, kostar tugi milljóna. Þær eldvarnaæfingar sem hafa átt sér stað um borð í Sæbjörgu eru í rauninni aðeins sýnishorn af því sem þarf að vera í alvöru eldvarnafræðslu. Það er einmitt sá þáttur sem hlýtur að valda því að slíkur aðalskóli verði staðbundinn.

Það er enginn misskilningur sem á sér stað af minni hálfu í skilningi og túlkun á þessari tillögu sem er ágæt og jákvæð, en það er auðvitað á skjön við verkefni Slysavarnafélagsins þegar komnar eru tillögur um aðra staðsetningu en Slysavarnafélagið sjálft gerir ráð fyrir.