14.03.1988
Sameinað þing: 60. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5742 í B-deild Alþingistíðinda. (3874)

339. mál, Björgunar- og slysavarnaskóli Íslands

Flm. (Ólafur Gränz):

Hæstv. forseti. Ég þakka þær góðu og jákvæðu undirtektir sem þessi till. hefur fengið hér. Ég vil aðeins koma inn á það að gagnvart því að hafa þetta sem farskóla, þ.e. skóla sem fer um landið, þá er það ekki gerlegt því að mikill hluti af svona skóla eru stór mannvirki.

Þegar þessi till. var í vinnslu var haft gott samráð við aðila innan Slysavarnafélags Íslands. Við berum mikla virðingu fyrir því starfi sem þar er unnið. Við metum mikils það starf sem unnið hefur verið af áhöfn Sæbjargar. Ég hef verið þar um borð og átt gott samtal og fengið góðar ráðleggingar hjá mönnum sem þar hafa starfað. En hvað varðar eldvarnafræðslu þá er hún, eins og ég sagði áður, auðvitað stór hluti af svona skóla.

Ég vil þá bara að lokum þakka þessar undirtektir og vona að málið fái farsælan framgang.