15.03.1988
Neðri deild: 70. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5783 í B-deild Alþingistíðinda. (3902)
341. mál, þjóðfundur um nýja stjórnarskrá
Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Herra forseti. Ég ætla að koma aðeins inn í þessa umræðu. Ég þakka flm., hv. 4. þm. Reykv., fyrir að flytja þetta mál á þingi. Ég held að þetta sé mjög þörf umræða hér.
Hins vegar vil ég leyfa mér að lýsa yfir vonbrigðum mínum varðandi fundarsetu þm. þegar þetta mikla mál er hér tekið til umræðu, þ.e. grundvöllurinn að stjórnskipulagi okkar sem við öll sömul störfum eftir, að þá skuli sitja hér tæplega tíu þm. og þar erum við í miklum meiri hluta varamenn sem sitjum inni á þingi núna. En þetta segir kannski mikla sögu.
Ég vil fara aðeins til baka. Þetta mál gerði ég töluvert að umræðuefni fyrir síðustu kosningar í minni kosningabaráttu, þ.e. hlutverk og störf alþm. og það samhengi sem er á milli þeirra starfa og annarra þátta okkar stjórnskipunar. Mér hefur oft og tíðum fundist það koma fram í störfum þingmanna að það sé langur vegur frá því að allir þingmenn íslenska lýðveldisins geri sér grein fyrir því í raun hver er staða þeirra og hlutverk samkvæmt stjórnarskránni. Þó svo að stjórnarskráin sé að mörgu leyti gölluð og að stofni til mjög gömul, eins og hér hefur komið fram áður, kveður hún þó skýrt á um hvert sé grundvallarhlutverk þingmannanna. En grundvallarhlutverk þeirra er og hlýtur að vera löggjafarstarf. Mér hefur á stundum þótt skorta mikið á að í okkar þjóðfélagi séu nægilega skörp skil á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins. Það væri öllum aðilum til hagsbóta að þessi skil yrðu skerpt. Ég vil þó taka fram að ég er þeirrar skoðunar að við eigum að halda okkur við þingræðið, en skerpa á skilunum eins og ég sagði áðan.
Mér finnst það tímanna tákn líka að þá daga sem ég hef setið hér á þingi býst ég við að það séu næstum því teljandi á fingrum beggja handa þær mínútur sem ráðherrar hafa setið í stólum sínum á Alþingi meðan þingfundir hafa farið fram. Fyrir þessu er eflaust þær ástæður að ráðherrar eru mjög störfum hlaðnir, en þetta er atriði sem ég held að ætti að taka til endurskoðunar.
Ég tek ekki efnislega afstöðu til þess í einstökum atriðum nema kannski þess sem hv. 7. þm. Norðurl. e. minntist á áðan varðandi fjölda fulltrúa á þingfundinn. Ég get tekið undir það, að ég held að stjórnskipunarþing yrði skilvirkara með færri fulltrúum en fleiri. Ég er reyndar þeirrar skoðunar líka að Alþingi væri mun skilvirkara í sínu hlutverki sem löggjafarsamkoma með færri fulltrúum en fleiri.