16.03.1988
Efri deild: 71. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5802 í B-deild Alþingistíðinda. (3912)
202. mál, Háskólinn á Akureyri
Frsm. menntmn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég vil aðeins vegna þeirra hugleiðinga sem hv. 7. þm. Reykv. var með áðan um hvort rétt hefði verið að Háskóli Íslands ræki háskóladeildir út um landsbyggðina, eins og ég skildi orð hans, segja að þetta mál var ítarlega rætt í háskólanefndinni, en það kom alveg skýrt fram að ekki stóð hugur Háskóla Íslands til þess að reka háskóladeild á Akureyri né heldur höfðu Norðlendingar sérstaka löngun til að biðja Háskóla Íslands um það.