17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5834 í B-deild Alþingistíðinda. (3932)
277. mál, þjónusta sjóða og fjármálastofnana
Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):
Virðulegi forseti. Ég flyt hæstv. forsrh. þakkir fyrir þær upplýsingar sem hann hefur gefið og svör hans. Ég tel afar mikilvægt að að þessu verði unnið áfram á þeim grundvelli sem hann hefur hér lýst og tel að það megi vænta þess að eitthvað af þessu a.m.k. komist til framkvæmda þegar um næstu áramót. Ég ítreka þakkir mínar til hæstv. forsrh.