17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5838 í B-deild Alþingistíðinda. (3935)

290. mál, fjarkennsla

Fyrirspyrjandi (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svör hans. Ég ítreka það sem ég sagði hér áðan að ég tel að fræðsluútvarpið sem nú er í undirbúningi sé prýðileg byrjun og ekkert nema gott um það að segja sem þar er verið að skipuleggja og undirbúa. En ég vek á því athygli enn frekar að það að nota fyrst og fremst sjónvarp í þessu skyni það er kannski ekki alveg í takt við tímann. Það er vissulega verulega miklu þunglamalegra en t.d. að nota myndbandatækni og tölvutækni, fyrst og fremst vegna þess að með tilkomu myndbandatækninnar er hægt að sveigja tímann til, þá eru menn ekki bundnir við útsendingartíma sjónvarps, og eins hitt að óskir manna eru svo mismunandi og þarfir, en sjónvarpið sendir einungis út eina kennsludagskrá hverju sinni. Það sem menn hafa auðvitað verið með í huga er að nýta sér nýjustu tækni með allt, allt öðrum og fjölbreyttari hætti en hægt er að gera með einföldum sjónvarpsútsendingum.

Ég þarf ekki að segja hæstv. menntmrh. það sem hann vafalaust veit að í Háskóla Íslands er mikill áhugi á þessu máli og ég tel að brýna nauðsyn beri til að sá áhugi sé virkjaður og að reynt sé að skipuleggja nám af þessu tagi á kerfisbundinn hátt, þannig líka að hlutdeild Háskólans njóti sín til fulls. Sem sagt ósköp einfaldlega er þörf á því að taka þetta mál fastari tökum.