17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5842 í B-deild Alþingistíðinda. (3940)
291. mál, tjón Norræna fjárfestingarbankans af gjaldþroti Kongsbergs Våpenfabrikk
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Það er þrennt sem ég vil nefna vegna síðari ræðu hv. fyrirspyrjanda.
Í fyrsta lagi hefur alls ekki verið krafist ríkisábyrgða af öllum þeim mörgu lánum sem Norræni fjárfestingarbankinn hefur veitt til íslenskra aðila í samstarfi við norræn fyrirtæki. Það er einfaldlega ekki rétt.
Í öðru lagi hefur Norræni fjárfestingarbankinn ekki veitt nein lán til vopnaframleiðslu, enda, eins og kom fram í máli hv. 13. þm. Reykv., eru engir norrænir hagsmunir í slíkri framleiðslu. Þetta er eindregin afstaða í stjórn bankans. Sumir hafa reyndar bent á að það væri álíka náið samband á milli þessarar framleiðslu, sem fjármögnuð var með láni frá Norræna fjárfestingarbankanum og er aðallega að búa til stuðara á Volvobíla, eins og á milli friðarverðlauna Nóbels og sprengiefnanna sem fyrirtæki með því nafni framleiðir. Þannig er nú það. Það er ákaflega erfitt að gera tengingar af því tagi sem hv. 13. þm. Reykv. gerði með rökum þegar um fjölþætta starfsemi er að ræða. Ég tek hins vegar undir það með henni að það eiga engin leyndarmál að vera í norrænni samvinnu og það á að gera skýrt og skilmerkilega grein fyrir öllum þeim málum. Það er líka gert.