03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 582 í B-deild Alþingistíðinda. (395)
36. mál, fjöldauppsagnir á Orkustofnun
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Mér finnst nýr hæstv. iðnrh. ekki byrja vel í sambandi við þá stofnun sem ætluð er ráðgjöf við ríkisstjórnina á tilgreindu sviði lögum samkvæmt og ætlað mjög þýðingarmikið hlutverk í sambandi við undirstöðurannsóknir í landinu. Alveg sérstaklega eru ámælisverð þau vinnubrögð sem hér eru höfð í frammi gagnvart starfsmönnum á þessari stofnun. Það er ekki annað hægt en að taka undir með fyrirspyrjanda og öðrum sem hér hafa talað að þar er mjög óeðlilega að staðið og miklu til hætt í rauninni að hrekja burt reynt starfslið áður en búið er að marka stefnu varðandi framtíðaráherslur á þessu sviði. Ráðherrann hefur boðað endurskoðun á starfsemi Orkustofnunar og ekkert er við það að athuga og sjálfsagt að fara yfir starfsemi ríkisstofnana alltaf öðru hvoru og endurmeta þættina, en það á ekki að taka ákvarðanir um uppsögn og breytingar á starfsliði áður en slíkt hefur verið gert.
Ég minni á það, herra forseti, hér að lokum að í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens var búið að undirbúa endurskoðun á lögum varðandi öll helstu fyrirtæki og stofnanir á sviði orkumála og þau frv. voru lögð hér fram áður en sú stjórn fór frá völdum. Síðasta ríkisstjórn gerði ekkert í þessum efnum og stóð hins vegar fyrir handahófskenndum vinnubrögðum eins og hér hefur verið minnt á og það virðist ætla að verða framhald á því. Því hljótum við hér að mótmæla og gera kröfu um að þessi mál verði fyrst rædd hér á Alþingi og stefna mörkuð áður en framkvæmdarvaldið gengur fram með þeim hætti sem hér er gert.