17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5853 í B-deild Alþingistíðinda. (3960)
327. mál, grásleppuveiðar
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Hæstv. forseti. Að því er varðar fyrri liðinn vil ég taka fram eftirfarandi:
Grásleppuveiðum verður hagað með svipuðum hætti og undanfarin ár Ráðuneytið hefur gert lítils háttar breytingar á reglugerð um veiðarnar og má segja að þær séu með þessum breytingum færðar í sama horf og fyrir árið 1986. Breytingarnar felast einkum í þessum þáttum:
1. Veiðarnar eru nú aftur leyfisbundnar. Er leyfisbindingin einkum ákveðin til þess að fá nákvæmari skýrslu um veiðarnar og til að tryggja greiðslur í greiðslumiðlunarkerfið.
2. Veiðitímabilin eru ákveðin að mestu eins og fyrir 1986 og er veiðitíminn því í raun þrengdur frá síðustu tveimur árum.
3. Ákveðinn er hámarksnetafjöldi á bát og felast einnig í því takmarkanir á veiðunum.
Í þessu sambandi má geta þess að Landssamband smábátaeigenda hefur í fréttabréfi sínu beint þeim tilmælum til grásleppuveiðimanna að þeir hefji ekki veiðar á komandi vertíð fyrr en þeir hafa tryggt sér sölu á þeim hrognum sem þeir koma til með að afla.
Varðandi annan liðinn vil ég taka þetta fram: Þegar grásleppuvertíð á sl. ári hófst voru birgðir grásleppuhrogna í heiminum nær engar. Þetta hafði þau áhrif að mikil eftirspurn varð eftir grásleppuhrognum og fór verð á þeim allt upp í 1400 þýsk mörk fyrir hverja tunnu, en lágmarksviðmiðunarverð var 1200 þýsk mörk. Árið 1987 markaði nokkur tímamót því þá opnaðist aukinn markaður fyrir grásleppuhrogn hér innan lands, en áður hefur meiri hluti hrognanna verið fluttur beint út. Það ár keyptu verksmiðjurnar á milli 15 og 16 000 tunnur, en 1986 4–5000 tunnur. Í dag er birgðastaða innan lands um 9000 tunnur þannig að ekki er ástæða að ætla að verksmiðjurnar kaupi mikið af hrognum á komandi vertíð. Um áramótin hafði Sölustofnun lagmetis tekist að selja 2500 tunnur af niðurlögðum hrognum og er það 10% aukning milli ára. Fyrir örfáum árum voru Íslendingar með meiri hluta markaðarins eða allt að 80%, en undanfarin tvö ár hefur hlutdeild okkar minnkað og er komin niður í 40%.
Heildarveiði 1987 var um 56 500 tunnur eða rúmum 23 000 tunnum meiri en 1986. Hún skiptist þannig: Ísland 23 000 tunnur en 9100 tunnur 1986, Kanada 26 000 en 17 000 tunnur 1986, Noregur 4500 tunnur, svipað og 1986, Grænland, Danmörk og Færeyjar u.þ.b. 3000 tunnur en 3500 tunnur 1986.
Árleg heimsmarkaðsþörf á grásleppuhrognum er um 40 000 tunnur. Hér má bæta við að Kanadamenn hafa aukið veiðar sínar jafnt og þétt sl. þrjú ár eða úr tæpum 9000 tunnum 1984 í 26 000 á sl. ári. Bendir ekkert til að veiðar þeirra fari minnkandi í ár. Birgðastaðan í landinu við upphaf þessarar vertíðar mun vera 9–10 000 tunnur og eru þær hjá niðurlagningarverksmiðjunum víða um land.
Á fundi fulltrúa grásleppuveiðimanna og kaupenda 9. febr. sl. var lágmarksviðmiðunarverð ákveðið 1100 þýsk mörk á tunnu. Kaupendur og umboðsmenn telja raunhæft að hægt verði að tryggja sölu á u.þ.b. 12 000 tunna veiði á næstu vertíð miðað við ofangreint verð, en verði veiðin meiri mun það óhjákvæmilega hafa áhrif á markaðinn.