17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5869 í B-deild Alþingistíðinda. (3986)

344. mál, stofnun smáfyrirtækja

Fyrirspyrjandi (Jón Bragi Bjarnason):

Herra forseti. Ég óttast að ég sé orðinn hálfgerð þingplága. Þegar ég bar fram þessar fsp. gerði ég mér ekki grein fyrir því að þær kæmu fimm saman allar á sama degi og vissulega afsaka ég þessi smávægilegu mistök.

Ég þakka hæstv. iðnrh. hans skýru svör um þetta mál og fagna því sem gert hefur verið í þessum efnum. Nú er það svo að fyrir tilstilli öflugs stuðnings og aukins við rannsóknastarfsemi í landinu á undanförnum missirum, einkum verkefnabundinnar rannsóknarstarfsemi, sem er afar mikilvæg og ber að leggja áherslu á, hafa framfarir á þessu sviði og vonir manna aukist mikið. Nú stöndum við frammi fyrir því að nokkur fjöldi fyrirtækja á þessum nýtæknisviðum verða stofnuð og standa vonir til þess að ríkið komi til móts við þá viðleitni með ýmsum hætti. Ég fagna því að ráðherra hefur þetta mál svo mjög til athugunar og hefur mikinn áhuga á því. Það er hins vegar sorgleg staðreynd í þessu að framlag til Rannsóknasjóðs hefur heldur minnkað, eins og ég benti á áðan, og þyrftum við að gera betur í því sérstaka efni. Einnig þurfum við að setja okkur þau markmið sem ég talaði um áðan. Þá hefur verið bent á að framlög til þeirrar stofnunar, sem hvað mest stundar þá starfsemi að efla rekstur smáfyrirtækja og aðstoða við stofnun þeirra, Iðntæknistofnunar, hafa heldur rýrnað milli ára, þ.e. um 20%. Þetta er minnkun í hlutfalli heildarfjármagns til rannsóknar- og þróunarstarfsemi úr 9,2% á árinu 1985 í 7% á árinu 1988. Vissulega getur það verið í lagi að hlutfallið minnki eitthvað ef heildarmagnið eykst verulega, en nú er því ekki fyrir að fara.

Ég vil benda á þessi atriði og vonast til þess að þau verði tekin til meðferðar.