17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5872 í B-deild Alþingistíðinda. (3990)
345. mál, Fulbright-stofnunin
Fyrirspyrjandi (Jón Bragi Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil þakka ráðherra mjög greinargóð svör við þessari spurningu. Það er sem ég óttaðist að framlag okkar er mjög lágt og það hefur líka gerst á þessu síðasta ári að í viðleitni sinni til að rétta fjárlagahallann hefur Bandaríkjastjórn að ég hygg minnkað sitt framlag, þannig að starfsemi stofnunarinnar er í hættu. Þetta veit ég. Hættan er sú að þessi stofnun verði lögð niður og þessir peningar færðir á einhvern annan vettvang þar sem stúdentar munu ekki njóta góðs af og stóraukið álag mun færast á Lánasjóð ísl. námsmanna.
Ég vil því hvetja ríkisstjórnina til að gefa þessu litla máli örlítinn gaum og auka okkar framlag sem er ekki hátt í krónutölu. Það tekur ekki mikið að þrefalda, fjórfalda þetta framlag, þannig að við séum þó sambærilegir við nágranna okkar hér aðeins austan við álana.