17.03.1988
Sameinað þing: 61. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5877 í B-deild Alþingistíðinda. (3998)

349. mál, starfsmenn þjóðkirkju Íslands

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. spyr hvort ég hafi í hyggju að endurflytja frv. til l. um starfsmenn Þjóðkirkjunnar eða hvað dvelji framlagningu þessa frv.

Því er til að svara að fyrst vil ég skilgreina störfin áður en farið er að fjalla um starfsmennina eða m.ö.o.: ég vil fyrst fá í hendur tillögur þeirrar nefndar sem fjallar um prestakallaskipanina áður en farið verður að fjalla um starfsmannafrv. Þetta tel ég að þarfnist ekki mikillar frekari útskýringar.

Ég leyfi mér að minna á að frv. sem lagt var fram á Alþingi vorið 1986 var sérstakt að því leyti að í grg. frv. var sérstaklega tekið fram að ríkisstjórnin gæti ekki fallist á það óbreytt, en það væri lagt fram til kynningar á Alþingi vegna tilmæla kirkjuráðs. Mér virðast ýmis álitamál vera í frv. og vil taka góðan tíma til að kanna það rækilega áður en ég tek ákvörðun um hvort það verður lagt fyrir Alþingi að nýju og þá í hvaða mynd. Ég tek undir það með fyrirspyrjanda að það er fullkomin ástæða til þess að huga að því að fella úr gildi ýmis úrelt ákvæði á sviði kirkjuréttarins og ég hef beðið kirkjulaganefnd að huga að því sem hv. fyrirspyrjandi kallaði hreingerningu í kirkjulögum.