14.10.1987
Efri deild: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

8. mál, Skattadómur og rannsókn skattsvikamála

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Hv. 7. þm. Reykv. Svavar Gestsson gerir sér greinilega ljóst að það er hver síðastur fyrir hann að blása hér sem formaður síns flokks. Hans dagar í því embætti munu nú senn taldir. Hann hefur verið áminntur um sannsögli úr þessum ræðustól og það sannarlega ekki að ástæðulausu eins og þingheimur hefur heyrt. En það sem olli því að ég kvaddi mér hljóðs var það að hann talaði um einhverjar kaldar kveðjur til úrræðalausrar og vitlausrar ríkisstjórnar sem sat á sínum tíma. Það ætti ekki að þurfa að rifja það upp fyrir hv. þm. Svavari Gestssyni að Alþfl. sleit því ríkisstjórnarsamstarfi vegna þess að það var niðurstaða okkar að sú ríkisstjórn væri úrræðalaus og vitlaus, eins og raunar síðar kom á daginn, og við treystum okkur ekki til að taka þátt í þeirri vitleysu sem hv. þm. Svavar Gestsson stóð fyrir ásamt ýmsum fleiri heiðursmönnum. Ég held að það hafi raunar komið á daginn með fleiri ríkisstjórnir sem hv. þm. Svavar Gestsson hefur átt aðild að. Ég minni á fræga ríkisstjórn sem kom verðbólgunni hærra en nokkurri annarri ríkisstjórn hefur tekist í Íslandssögunni fyrr eða síðar. Svo kemur þessi hv. þm. í þennan ræðustól og þykist þess umkominn að segja öðrum til. En ég virði honum það til vorkunnar að þetta eru síðustu dagarnir sem hann hefur formennsku í flokki þeim sem Alþýðubandalag nefnist og hyggst halda landsfund bráðum, sem einn af frammámönnum flokksins hefur skrifað lærða grein um í Þjóðviljann sem hét: Verður sjoppunni lokað? Það er dómur ritstjóra Þjóðviljans yfir formannstíð hv. þm. Svavars Gestssonar að hann spyr hvort ástæða sé nú til að loka þeirri sjoppu sem hann kallar Alþýðubandalagið. Þetta er athyglisvert líka.

En það þarf enginn að kippa sér upp við það þótt hv. þm. hafi dustað rykið af gömlu frumvarpi Vilmundar Gylfasonar, þáv. dómsmrh., og flutt það sem sitt mál þing eftir þing og þarf svo sem ekki að gera mikið veður út af því. En ég held að menn verði að skoða málflutning hans núna í ljósi þeirrar sögu sem er að gerast, þ.e. að hann er að stíga niður af stóli og horfir á brotabrot flokks síns, og það er ofur skiljanlegt að honum sé þannig í sinni sem ræður hans nú hafa gefið okkur til kynna.