03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (400)
38. mál, fræðsla um kynferðismál
Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrmrh. fyrir svör hans, en verð um leið að lýsa yfir að ég er ákaflega óánægð með hversu lítið hefur gerst í þessum efnum. Í raun og veru gefur svar hans ekki til kynna að mikið hafi gerst síðan ég fyrst spurðist fyrir um þetta haustið 1983. Það er reyndar líka athyglisvert hvað snertir það átak sem hann minntist á hér áðan um útgáfu bæklings sem fljótlega yrði dreift að kostnaður vegna hans er greiddur af fjölmörgum aðilum sem hann tiltók áðan. Það er út af fyrir sig ljómandi gott, en það eru sem sagt ekki stjórnvöld sem sjá um það, þau sem þó eiga lögum samkvæmt að sjá um framkvæmdina.
Eins og hæstv. ráðherra man höfum við setið saman í fjvn. í fjögur ár og þangað kemur landlæknir iðulega á fund nefndarinnar og ekki hefur hann nú verið ánægður með það sem hann hefur fengið til þessara mála. Hæstv. ráðherra minntist á grein í fjárlögum, kostnað vegna laga nr. 25/1975. Ef ég man rétt hefur sú upphæð sem þar hefur fengist að mjög litlu leyti nýst til fræðslu. Hún hefur farið til annarra hluta sem ég kann að vísu ekki að fara nákvæmlega með hérna núna, en það fengum við upplýst á fundi í fjvn. fyrir einu eða tveimur árum.
Það er út af fyrir sig jákvætt að stjórnvöld skuli hafa vaknað af nokkrum dvala hvað varðar fræðslu í sambandi við sjúkdóminn eyðni því að nú er þó nokkur upphæð merkt til þeirra hluta í frv. til fjárlaga, en það er hins vegar umhugsunarefni og að minni hyggju fremur sorglegt að menn skuli þá fyrst hreyfa sig að einhverju marki til fyrirbyggjandi aðgerða þegar það blasir við að fáfræði og ógætni í kynlífi geti valdið alvarlegum sjúkdómum og jafnvel dauða og að slíkt getur hitt alla fyrir, ekki aðeins ungar stúlkur. Ég vil leggja áherslu á það og ég vil ekki trúa því að hæstv. ríkisstjórn vilji ekki framkvæma vilja Alþingis í þessu máli og skora á hæstv. heilbrmrh. að vinna ötullega að því.