17.03.1988
Sameinað þing: 62. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5894 í B-deild Alþingistíðinda. (4016)
354. mál, jöfn skólaskylda
Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Þetta mál er sannarlega bæði byggðamál og jafnréttismál og ég vil þakka hv. 2. þm. Suðurl. Arndísi Jónsdóttur fyrir að bera það fram. Það varðar þann aðstöðumun sem er milli þéttbýlis og dreifbýlis og fer sívaxandi, er reyndar óþolandi fyrir dreifbýlisbúa og jafnframt hættulegur fyrir þróun byggðar og atvinnu í landinu. Þessi almenni aðstöðumunur birtist í ýmsum myndum og á sér margar rætur.
Sá félagslegi ójöfnuður sem lýsir sér í því að börnin í landinu hafa misjafna aðstöðu til náms eftir búsetu er auðvitað óverjandi. Nútíminn og framtíðin gera æ meiri kröfur til manna eins og réttilega kom fram í máli hv. flm., bæði um fjölbreytta og sérhæfða menntun. Það er því hvorki boðlegt börnum þessa lands að draga þau í dilka hvað varðar undirbúning undir lífið, né heldur hefur þjóðin efni á því.
Þegar er farið að bera á miklum fólksflutningum til þéttbýliskjarna eins og Reykjavíkur. Ein af orsökum þessa, eins og kom líka fram í máli hv. flm., er einmitt almennur aðstöðumunur í menntunarmálum og hann er margháttaður. Í þessari þáltill. er einmitt tekið á einum þætti þessa vanda, þ.e. að tryggt sé að öll börn eigi kost á jafnlangri kennslu og þá skulum við auðvitað líka vona að hún sé jafngóð.
Ég tek undir efni þáltill. og lýsi yfir stuðningi við það. Hins vegar eins og ég hef áður sagt, er þessi vandi eða aðstöðumunur margháttaður. Annar þáttur hans er t.d. misjafn aðgangur að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum sem hefur verið takmarkaður og mun minni víða í dreifbýli en t.d. í þéttbýli. Um það efni flutti ég ásamt þm. allra flokka þáltill. strax á fyrsta þingi síðasta kjörtímabils og svo aftur árið eftir, en þá var hún samþykkt lítillega breytt og var reyndar gerð fsp. af hv. 2. þm. Vestf. snemma á þessu kjörtímabili um það hvernig því máli liði. Könnun hefur verið í gangi meðal fræðsluskrifstofa og fræðslustjóra víðs vegar um landið á því hversu mikil þörfin væri og hver afstaða þeirra væri til þessa máls, en svör hafa því miður borist treglega frá a.m.k. sumum. Hefur því verið sett nefnd í málið til þess að reyna að kanna það hvernig hagkvæmast er að auðvelda skólum á landsbyggðinni aðgang að námsgögnum, kennslutækjum og hjálpargögnum þannig að tryggt yrði að allir nemendur hvar sem þeir búa á landinu gætu hagnýtt sér fjölbreytt kennslugögn í námi.
Síðan hefur reyndar einnig, að frumkvæði þm. Kvennalistans, verið flutt þáltill. til þess að tryggja ungum börnum dreifbýlisins veru í skólaseljum eða útibúum frá aðalskóla þar sem vegalengdir frá skóla mundu ella gera dvöl í heimavist nauðsynlega. Og síðan liggur frammi á þinginu breyting á lögum um grunnskóla þar sem lagt er til að gerðar verði breytingar á skólaskyldu og kemur það aðeins inn á það mál sem hér er til umræðu því að þar er lagt til að sex ára börn verði gerð skólaskyld á árinu 1989–1990, en það getur auðvitað orðið vandasamt víða í dreifbýli. Við gerum okkur grein fyrir því og ekki síst þess vegna þótti okkur nauðsynlegt að gefa aðlögunartíma til að búa sig undir það að sex ára börn verði gerð skólaskyld auk þess sem það eru undanþáguákvæði í grunnskólalögunum sem leyfa undanþágu frá skólaskyldu við sérstakar aðstæður. Hins vegar er það engin jafnréttislausn fyrir börn í dreifbýli að þau sæki ekki skóla eins og önnur börn í landinu þó að aðstæður geti verið erfiðar.
Hv. flm. vék einmitt að því hvernig aðstæður geta verið breytilegar víða í dreifbýli eftir því hvort um sjávarþorp er að ræða eða landbúnaðarhéruð og eru börnin einmitt þá oft látin hlaupa undir bagga á álagstímum, hvort sem það er sauðburður eða fiskburður sem gengur á land. Ég tek undir það með henni að það verður að sýna fyrst og fremst sveigjanleika til að aðlaga skólahald þeim aðstæðum sem eru á hverjum stað á hverjum tíma, en það má ekki vera á kostnað þess náms sem börnunum er boðið upp á, hvorki lengdar þess eða gæða. Það verður fyrst og fremst að huga að jafnréttislausnum eins og hér er borið fram í till. Í skólahverfum í dreifbýli þar sem um samgönguerfiðleika er að ræða má líka e.t.v. leita annarra lausna og í skýrslu forskólanefndar menntmrn. sem gefin var út í des. 1981 komu einmitt fram hugmyndir sem taka á þeim vanda og þá einkum til að leysa vanda yngri barnanna. Það má t.d. hafa skóladagana lengri en færri, lengja daglegan skólatíma. Það mætti nefna ýmis vor- og haustnámskeið. Hv. flm. minntist á skólagöngu að sumri til, bréfaskóla eða ekki síst fjarkennslu sem lítið hefur verið nýtt enn þá. Það eru margir möguleikar sem koma þarna til greina, en mikilvægt er þó að öll börn sitji við sama borð hvað menntun varðar án tillits til búsetu.
Hvað varðar frammígrip hv. 5. þm. Reykv. vona ég að hann fái tækifæri til þess að tjá sig um þetta mál hér á eftir og þá að gagnrýna (AG: Þau mál sem eru á dagskrá, en ekki tillögur sem einhvern tíma voru fluttar) málflutning annarra sem honum finnst eitthvað athugavert við. Ég hef þegar lýst stuðningi við þetta mál við hv. flm. og reifað ýmsa þætti málsins auk annarra sem málið snerta.