21.03.1988
Sameinað þing: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5914 í B-deild Alþingistíðinda. (4037)

355. mál, haf- og fiskirannsóknir

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að till. sem þessi skuli vera borin hér fram á hv. Alþingi af þm. úr öllum flokkum. Maður mætti halda og hlýtur að trúa því að hún eigi auðvelda leið hér í gegnum hv. Alþingi og að till. verði samþykkt og við fáum áætlun um sérstaka fjármögnun til Hafrannsóknastofnunar á næsta hausti.

Það er nú svo að þessi stofnun, Hafrannsóknastofnun, er ábyggilega sú mikilsverðasta sem við eigum til ráðleggingar í sambandi við efnahagsmál þjóðarinnar. Samt hefur verið þannig að henni hugað á undanförnum tíu árum að fjárframlög til stofnunarinnar hafa ekki aukist, heldur standa í stað. Ef við berum þessa mikilsverðu stofnun saman við, ja, segjum þær stofnanir í þjóðfélaginu sem huga fyrst og fremst að fjárhagsstærðum þjóðfélagsins, þá er það nokkuð öðruvísi. Þar er ekki um eina stofnun að ræða, ekki eingöngu Þjóðhagsstofnun, heldur eru svipaðar stofnanir í gangi á vegum Hagstofunnar og á vegum Seðlabankans, og ég held að það skorti ekki mjög mikið peninga til þessara ráðleggingastofnana á sama tíma og haldið er í við fjárframlög til Hafrannsóknastofnunar. En Hafrannsóknastofnun hefur verið á þessu tíu ára tímabili sú stofnun sem hefur gefið stjórnvöldum ráðleggingar um það hvernig skyldi sótt í fiskistofnana okkar, undirstöðu þess að á Íslandi er búvænlegt.

Við höfum trúað því að þessi stofnun hefði möguleika til að gefa okkur nokkuð sannar upplýsingar um það hvernig staðan væri í sambandi við fiskistofnana og sóknin í fiskistofnana hefur verið byggð á því. Og sem betur fer hafa spár Hafrannsóknastofnunar á undanförnum árum verið nokkuð nær sanni en margar spár hinna stofnananna sem ég nefndi, sérstaklega Þjóðhagsstofnunar, og við höfum að miklu leyti getað farið eftir því sem Hafrannsóknastofnun hefur sagt til um.

En það hafa ýmsir verið efins um það, þrátt fyrir það að svo vel hafi tekist til á undanförnum árum sem raun ber vitni um, að þannig væri um hnútana búið að þessar spár dygðu til frambúðar og að stór hluti spádóma Hafrannsóknastofnunar væri því miður byggður á vafasömum forsendum. Vafasömum forsendum vegna þess að stofnunin hefur ekki haft fjármagn til að stunda þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru til að gera sínar áætlanir og spár það vel úr garði að þær gætu verið trúverðugar. Og því miður eru nú þeir dagar að líða sem eru að benda okkur á að það hefur ekki staðist, og því miður standast ekki spár Hafrannsóknastofnunar nema að takmörkuðu leyti.

Þær upplýsingar liggja fyrir núna í sambandi við þorskstofninn að afli hefur gengið saman um rúmlega 10% miðað við síðasta ár. Þrátt fyrir það voru verkföll í gangi og dró það mjög úr sókn í þorskstofninn mánuðina janúar og febrúar á sl. ári. Og það sem blasir við í sambandi við sókn í þorskstofninn í marsmánuði, það sem af honum er liðið, er það að á stórum hluta hinna hefðbundnu vertíðarsvæða er algjör ördeyða. Það lítur sem sagt því miður þannig út að sú spá Hafrannsóknastofnunar, sem fiskveiðistefnan sem var ákveðin í haust var byggð á, standist ekki. Allar götur um Vestfjarðamið, um Breiðafjarðarmið og a.m.k. hér suður undir Reykjanes hafa netabátar nú? marsmánuði lagt net sín og dregið þau næstum fisklaus upp aftur. Vertíðarbátar t.d. við Breiðafjörð, sem máttu búast við því að á sl. viku, og hefur verið vani undanfarinna ára, að þeir mundu afla 100 tonn, stundum 200 tonn og stundum á þriðja hundrað tonn, þeir eru að koma eftir vikuna með fimm tonna afla. Fimm tonna afla hvert stórskipið á fætur öðru. Slíkar fréttir eru uggvænlegar og benda ekki til annars en þess að Hafrannsóknastofnunin hafi á undanförnum árum verið svelt að fjármagni, hún hafi ekki getað bent á það hvernig við skyldum haga veiðisókn okkar í þennan undirstöðufiskstofn.

Við verðum samt að vona að öll nótt sé ekki úti enn í sambandi við vertíðina í ár. Enn er eftir páskatímabilið okkar, hin hefðbundna páskahrota. Og við eigum von á því að fá eitthvað í þeirri viku sem nú er að byrja fram að páskafríi og svo eftir að páskafríinu lýkur. En staðreyndin er sú að þó að svo yrði, þó að á vertíðarsvæðið gengi einhver fiskur, þá er það ekki til að bjarga því sem liðið er. Þessi tími sem liðinn er er búinn að sanna það að sú áætlun sem okkur var fengin í hendur þegar verið var að ákveða fiskveiðistefnuna í haust mun ekki standast. Þetta er uggvænlegir hlutir fyrir þá sem hafa treyst á það að málefnin væru þannig í hendur þm. færð að það væri nokkurn veginn hægt að byggja á því. En svo er ekki. Ég veit að þessi till. er mikið, mikið meira en tímabær.

Hafrannsóknastofnun hefði fyrir löngu þurft að fá mun meira fjármagn en hún hefur fengið. Það hefði ekki átt að ske að ár eftir ár lægju hafrannsóknaskipin meginhluta ársins bundin við bryggjur vegna þess að það hefur ekki verið hægt að nýta þessi góðu skip til þess að kanna fiskimiðin og hafsvæðin umhverfis Ísland betur en gert hefur verið vegna fjárskorts.

Og ef spurt er: Hvaðan áttu peningar að koma til þeirra hluta? þá veit ég að við hefðum fengið það margborgað, margborgað fyrir þau verkefni sem þessi skip hefðu unnið og þeirra starfslið. Við hefðum fengið það margborgað í því að vita betur hvernig ástandið í fiskistofnunum umhverfis landið væri. Og við hefðum ekki þurft að standa frammi fyrir þeirri stöðu sem við stöndum frammi fyrir núna, og meginhluti vertíðarsvæðisins er búinn að búa við, að það hefur ekki verið fisk að fá af hinum hefðbundnu vertíðarmiðum.