03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í B-deild Alþingistíðinda. (405)

48. mál, norræni umhverfisverndarsamningurinn

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég get aðeins þakkað hæstv. ráðherra fyrir þessi svör og treysti því að hér verði vel að unnið og ekki líði langur tími þangað til Íslendingar gerast aðilar að þessum samningi.

Ég tek það sem góða og gilda vöru að þál. frá því í mars á síðasta þingi hafi farið einhverja krókaleið til félmrn. og hægt er að fyrirgefa það, en gleðilegt er að heyra að hér eigi að bæta úr.

En það er alveg rétt, sem hæstv. ráðherra vék að, að umhverfismálin hafa verið hálfgerð hornreka hér á landi vegna þess að þau heyra undir allt að sjö ráðuneyti. Og þó að einstaka stofnanir, eiginlega fyrir eigið frumkvæði fremur en nokkuð annað, hafi staðið sig mjög vel hver á sínu sviði, og nægir þar t.d. að nefna Siglingamálastofnun sem hefur unnið mjög gott starf varðandi umhverfismál, hefur vantað eitthvert sameinandi afl í þessum málaflokki. Við sem höfum unnið á vettvangi Norðurlandaráðs höfum fyllilega orðið vör við að það veldur erfiðleikum í samskiptum þjóðanna á þessum sviðum að við höfum ekki aðila sem er ábyrgur fyrir öllum þáttum umhverfismála. Það hlýtur því að vera gleðilegt að í undirbúningi séu lög um umhverfismál og að þessi mál verði sett undir einn aðila hvernig sem því verður komið fyrir.

En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að hafa brugðist mjög vel við fsp.