03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 591 í B-deild Alþingistíðinda. (406)
55. mál, fullgilding samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fsp. sem liggur frammi á þskj. 57 og hljóðar svo: „Hvað líður undirbúningi að fullgildingu samnings
Sameinuðu þjóðanna um bann við pyndingum og annarri grimmilegri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð og refsingu?"
Samningurinn heitir „Convention Against Torture and Other Cruel Inhuman or Degrading Treatment.“ Samningur þessi var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 10. des. 1984 og hinn 4. febr. 1985 var hann undirritaður m.a. fyrir Íslands hönd, en 21 ríki undirrituðu hann þá. Að lokinni fullgildingu 20 ríkjanna tók hann gildi 26. júní 1987.
Nú hafa 40 ríki undirritað samninginn og 22 ríki fullgilt hann. Íslendingar hafa hins vegar ekki fullgilt samninginn. Engum ætti þó að standa það nær en okkur að berjast gegn líkamlegum og andlegum misþyrmingum á fólki þar sem slíkt athæfi er órafjarri hugmyndum okkar um velsæmi.
Við vitum hins vegar að um allan heim viðgengst óhugnanleg og skelfileg meðferð á fólki fyrir það eitt að hafa skoðanir sem ekki falla valdhöfum í geð. Karlar og konur víða um heim dveljast árum saman bak við lás og slá án þess að hafa komið fyrir dóm. Oftast hafa þau hvorki verið borin sökum formlega né leidd fyrir dóm af þeirri einföldu ástæðu að yfirvöld hafa engar sakargiftir fram að færa í máli þeirra. Margir eru í fangelsi vegna þess eins að þeir hafa setið í fráfarandi ríkisstjórn eða verið stuðningsmenn hennar.
Menn hverfa þúsundum saman um allan heim, eru myrtir eða haldið áratugum saman í fangelsum. Heimsþekkt dæmi um slíkt er Suður-Afríkumaðurinn Nelson Mandela sem setið hefur í fangelsi án dóms í 24 ár vegna baráttu sinnar fyrir jafnrétti svartra og hvítra í landi sínu.
Í skýrslum Amnesty International hreyfingarinnar er að finna mörg og skelfileg dæmi um örlög fólks sem ekkert hefur fyrir sér gert annað en það að krefjast þess frelsis til að skrifa og tala sem við teljum til sjálfsagðra mannréttinda. Ég tel því sjálfsagt og eðlilegt og raunar skyldu okkar Íslendinga að við leggjum okkar litla lóð á vogarskál jafnréttis og réttlætis og tökum þátt í því með öðrum þjóðum að berjast gegn pyndingum og illri meðferð á meðbræðrum okkar og systrum sem ekki njóta þeirra forréttinda að búa í sæmilegu samfélagi. Þess vegna vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. dómsmrh. hvað líði fullgildingu þessa samnings.