22.03.1988
Efri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5976 í B-deild Alþingistíðinda. (4065)
315. mál, grunnskóli
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér er hreyft mikilvægu máli og eðlilegt að þingdeildin taki sér góðan tíma í að ræða það. Þetta er mál sem snertir alla íbúa landsins, konur jafnt sem karla, þ.e. alla foreldra og börnin ekki síst. Ég tók eftir því að hv. flm. orðaði það þannig að konur innan Kvennalistans hefðu undirbúið málið og ég efast ekki um að svo sé. Ég sé að málið er vel undirbúið. Ég tel hins vegar nauðsynlegt að í máli af þessu tagi, sem snertir alla foreldra og öll börn, komi karlar einnig við sögu. Ég tel að þeir eigi rétt á því ekki síður en aðrir.
Ég vil aðeins víkja að þeim almennu þjóðfélagslegu breytingum, sem hafa verið að ganga hér yfir á undanförnum árum og áratugum, sem gera það óhjákvæmilegt að þessi mál komi til sérstakrar umræðu hér á þinginu. Það sem langmestu skiptir í þeim efnum er það sem hv. 6. þm. Reykv. nefndi, þ.e. stóraukin útivinna beggja foreldra. Þar höfum við fyrir framan okkur tölur frá undanförnum 25 árum sem sýna nánast byltingu í þessum efnum frá því sem var. Á árinu 1960 voru 33% allra kvenna á vinnufærum aldri á vinnumarkaði, en árið 1985 er þessi tala komin upp í u.þ.b. 80%. Ef við berum þessar tölur saman við það sem er í öðrum löndum sjáum við að hlutfallið á Íslandi er svipað og t.d. á Norðurlöndunum og í Sovétríkjunum, en ívið hærra en t.d. í Bretlandi, Vestur-Þýskalandi og Bandaríkjunum. Þessi staðreynd leggur okkur á herðar númer eitt að búa þannig að börnunum okkar að þau geti notið menntunar og skjóls í samfélaginu þrátt fyrir þessa þjóðfélagslegu breytingu.
Annað atriðið, sem ég vil nefna, sem hefur einkum gengið yfir hér á allra síðustu árum, síðustu missirum, er fjölmiðlaþjóðfélagið og sú óhjákvæmilega nauðsyn að búa börn undir að taka á móti þessu yfirþyrmandi þjóðfélagi fjölmiðlunarinnar með gagnrýnum hætti en þó opnum huga og að fjölmiðlanotkun verði ekki til þess að draga úr almennu menningar- og menntastigi þjóðarinnar.
Þriðja atriðið, sem ég vil nefna hér, sem er algjörlega sérstakt fyrir Ísland, er þessi gífurlega langi vinnutími. Ég hygg að það sé ekki finnanlegt nokkurt land í Vestur-Evrópu og Norður-Ameríku, þ.e. á okkar menningarsvæði ef við getum tekið svo til orða, þar sem vinnutími beggja foreldra er jafnhrikalega langur og raun ber vitni um hér á landi. Um þetta liggja einnig fyrir ákaflega fróðlegar tölur þar sem kemur fram að vinnutíminn hér á landi er yfirleitt að jafnaði um fjórðungi lengri en hjá sambærilegum hópum erlendis, þ.e. þar sem hann er erlendis kannski 35–40 tímar er hann hér á landi 50–55 klst., vikulegur vinnutími. Ég hef stundum tekið þannig til orða að þessi hrikalegi vinnutími sé eitt alvarlegasta þjóðfélagsvandamál Íslendinga í dag og hafi verið um langt skeið. Það snertir umönnun barna, það snertir heilbrigðismál, það snertir fjölskyldulífið og fleiri þætti með mjög afgerandi hætti. Ég hygg að ef eitthvert eitt atriði er hægt að nefna þar sem væri í senn hægt að hafa áhrif á félagslega gerð samfélagsins, heilsufar, menntun og menningu er það vinnutíminn. Ég hygg að það væru í rauninni fá mál mikilvægari til þess að ná sæmilega utan um þessa þætti en að setja sér markmið til skamms tíma um að taka hér niður vinnutímann þannig að hann verði úti á hinum almenna vinnumarkaði ekki lengri en gerist í því sem hefur verið kallað siðuð nútímaþjóðfélög.
Fjórði þátturinn sem er afbrigðilegur fyrir Ísland miðað við önnur ríki á svipuðu menningarstigi, og þá er ég að fala kannski fyrst og fremst um Norðurlöndin og Vestur-Þýskaland, er hin mikla félagslega óvissa sem foreldrar og börn búa við hér á landi, m.a. vegna mikilla sviptinga í efnahagsmálum á undanförnum árum. Þessi félagslega óvissa birtist í gífurlegum húsnæðiskostnaði sem leggur farg á foreldrana og síðan á börnin. Þessi félagslega óvissa birtist t.d. í því að dagvistarmál eru vanþróaðri hér en í grannlöndum okkar. Þetta birtist t.d. í umferðarstefnunni. Og þessi félagslega óvissa hefur komið þannig út að hundruð heimila að ég segi ekki þúsundir heimila hafa á undanförnum árum orðið að berjast við afleiðingar kauplækkunar og vaxtaokurs. Þessi staðreynd hefur komið mjög harkalega niður á börnunum og við höfum ekki hugmynd um, hversu langar talnaromsur sem við kunnum að lesa upp hér í þinginu, höfum ekki hugmynd um það, við höfum engar upplýsingar um hvaða afleiðingar þessi félagslega og efnahagslega óvissa á Íslandi hefur haft fyrir börn þegar upp er staðið.
Síðasti þátturinn, sem ég ætla svo að nefna hér, er það sem ég vil kalla vaxandi hagvaxtarveiki þar sem menn mæla lífshamingjuna í hagvexti og vörum sem vöruþjóðfélagið hefur upp á að bjóða burt séð frá því hvaða afleiðingar það að öðru leyti hefur fyrir velferð, þróun og þroska samfélagsins og sérstaklega barnanna. Þessir þættir eru meðal þeirra sem gera óhjákvæmilegt að við ræðum þessi mál ítarlega hér á hv. Alþingi og þess vegna er fagnaðarefni að þetta mál er lagt hér fyrir og mun ég svo ræða efnisatriði þess hér nánar á eftir.
Það er reyndar ekki nýtt að mál af þessu tagi séu hér til meðferðar. Á þinginu nú í vetur liggja fyrir mjög þýðingarmikil mál sem snerta hagsmuni barna í þessu þjóðfélagi. Ég minni á frv. Guðrúnar Helgadóttur um umboðsmann barna, ég minni á till. okkar Hjörleifs Guttormssonar um kennaramenntun og ég minni á framhaldsskólafrv. sem liggur hér í hv. Nd. til meðferðar, framhaldsskólafrv. bæði frá okkur þm. Alþb. og svo frá hæstv. ríkisstjórn. Ég vil einnig minna á að þessi mál hafa komið til meðferðar hér í þinginu í vetur í öðru samhengi þar sem tekin er um það ákvörðun af núverandi hæstv. ríkisstjórn, stjórnarflokkunum, að fella niður framlög til þess að byggja upp dagvistarstofnanir í þessu landi sem er auðvitað ákaflega alvarlegt og skref langt aftur á bak.
Hæstv. menntmrh. fór hér yfir efnisatriði frv. sem hér liggur fyrir og komst einhvern veginn þannig að orði að í rauninni væru allir sammála um þau markmið sem sett eru upp í frv., þau væru góð og gild út af fyrir sig, en þetta kostaði mikið fé og vandinn væri að tryggja fjármunina í þessu efni. Í því sambandi hljótum við að velta því fyrir okkur, úr því að það er þannig að allir flokkar eru sammála um málið: Af hverju hefur þá ekki verið náð í féð til að tryggja framkvæmd samkvæmt þessum markmiðum sem allir segjast vera sammála um? Ég verð að segja það sem mína skoðun að það er að verða dálítið leiðigjarnt í þessari almennu pólitísku umræðu þegar menn koma upp í henni, þessari umræðu, með frómar óskir, göfug stefnumið í fjölmörgum málum eins og menntamálum, byggðamálum og heilbrigðismálum, og segja: Við erum öll sammála um þetta en það vantar peninga. Það er einmitt kjarni þessa máls að menn átti sig á því að við getum mjög auðveldlega skrifað niður langa óskalista í öllum málaflokkum. En það er hins vegar ágreiningur um það í okkar hópi hér á hv. Alþingi hvernig á að sækja peningana til að framkvæma þessa málaflokka. Það er auðvitað grundvallarágreiningur uppi í þinginu í þeim efnum: Annars vegar eru hægri viðhorf, sem halda því fram að það eigi að skattleggja sem minnst, samneyslan eigi að vera sem minnst, sem þýðir að lokum minni félagslega þjónustu, hvort sem það er í skólamálum eða heilbrigðismálum. Og svo eru hins vegar önnur viðhorf sem við köllum gjarnan vinstri viðhorf þar sem menn leggja áherslu á aukna samneyslu og eru tilbúnir til þess að taka skatta í því skyni að standa undir aukinni félagslegri þjónustu. Það er einu sinni hlutverk stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka að raða verkefnum niður í forgangsröð, segja: Hvað er það sem við viljum fyrst gera, t.d. í grunnskólamálum?
Hér hafa hv. þm. Kvennalistans lagt fram tillögur um átta atriði sem kosta að sögn hæstv. menntmrh. - mér fannst það nú aðeins of lág tala miðað við það sem ég las úr grg., en hæstv. ráðherra sagði að þessi atriði kostuðu eitthvað um 1,3 milljarða kr. Heildarkostnaður við rekstur grunnskóla í landinu á þessu ári er 3,2 milljarðar kr. Það er m.ö.o. verið að leggja til að hækka þetta um 33% eða svo.
Það er ekkert of gott fyrir börnin. Það er alveg á hreinu. Það er ekkert of gott fyrir börnin. En þá skulum við líka taka um það ákvörðun að skera niður annan kostnað eða að skattleggja í þjóðfélaginu fyrir þessum stefnumiðum.
Ég held að það sé hlutverk stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka að sýna fram á ekki bara hvað þeir hugsanlega vilja af frómum óskum heldur hvernig á að ná í fjármunina til að tryggja það að þessar frómu óskir verði að veruleika. Í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram held ég að eðlilegt sé að gera kröfu til þess að þingið raði upp forgangsverkefnum í menntamálum, í skólamálum þar sem málefnin eru tekin lið fyrir lið og sagt: Við viljum framkvæma í þessari röð, og flokkarnir geri grein fyrir því í hvaða röð þeir vilja ganga á verkin og jafnframt hvernig þeir vilja afla fjármuna í því skyni. Ég held þess vegna að það sé rétt sem hæstv. menntmrh. sagði hér áðan að það þarf að verða til hér í þinginu tillaga að skólamálaáætlun. Ég hygg reyndar að hún eigi ekki að vera aðeins um framkvæmdir og fjárfestingu í skólum heldur eigi hún að vera um nýjungar og breytingar í því skólakerfi sem við þegar höfum.
Ég þekki það af dálítilli reynslu hvað það er sem hæstv. menntmrh. var að tala um áðan þegar hann sagði að fjárfesting í skólamannvirkjum væri afar tilviljunarkennd. Þar væri togstreita látin ráða en fagleg sjónarmið iðulega borin ofurliði. Það voru ekki orð hæstv. ráðherra en ég skildi hann svo og ég þekki þetta af dálitilli reynslu. Það er í raun og veru mjög erfitt miðað við stjórnkerfið eins og það er í dag á Íslandi að tryggja það að fagleg sjónarmið, t.d. menntmrn. fái að njóta sín eftir að málið er komið hingað í þingið. Ég held þess vegna að það sé mjög góð hugmynd og skynsamleg sem kemur fram frá hæstv. menntmrh. að það verði reynt að setja hér upp skólastefnu sem lögð er fram í formi þáltill. hér fyrir þingið þannig að fólk geti áttað sig á því í hvaða röð á að ganga í verkin, þannig að það sé ekki allt sagt í einu, rétt eins og hlutirnir geti gerst á augnabliki, þó að þeir kosti fleiri, fleiri, fleiri milljarða kr. En það gengur ekki þannig. Hlutirnir taka tíma og við eigum að segja þjóðinni eins og er í þeim efnum og ekki gera tilraun til að láta fólk halda að það geti allt gerst á einni nóttu og það kosti ekki neitt. Þannig er það ekki.
Ég held líka að það sé umhugsunarvert sem mér kom í hug þegar ég las þetta frv. Kvennalistans hvort grunnskólalög eiga að vera eins nákvæm og frv. gefur til kynna, þar sem er í raun og veru farið ofan í saumana svo að segja í smæstu atriðum. Ég skil alveg hvað fyrir hv. þm. vakir. Það er auðvitað sú góða hugsun að tryggja það að börnin fái þessa lágmarksþjónustu sem þarna er verið að tala um. En það er álitamál hversu langt á að ganga í lagatexta í þessu efni og ég er ekki alveg viss um að það eigi að ganga eins langt í þeim efnum og hér er gerð tillaga um.
Við höfum líka reynslu fyrir því að jafnvel þó að við kveðum á um hlutina tiltölulega skýrt í grunnskólalögunum, þá hefur gengið misjafnlega að framkvæma þá, m.a. vegna þess að fjárveitingar hefur skort. Frægasta dæmið er auðvitað mál Sturlu Kristjánssonar hér á síðasta þingi, þar sem maður var rekinn úr embætti fræðslustjóra norður í landi fyrir það að framkvæma grunnskólalögin. Þannig tryggir lagabókstafurinn einn út af fyrir sig ekki nægilega vel það sem við viljum í þessu efni. Þess vegna er eðlilegt að velta því fyrir sér hvort þarna sé ekki hægt að hafa eitthvert annað form þar sem saman vinna góður lagabókstafur og skynsamleg áætlanagerð um forgangsverkefni í skólamálum sem Alþingi tekur ákvörðun um á hverjum tíma.
Að því er varðar einstakar greinar frv., virðulegi forseti, þá vil ég segja það að fyrir okkar leyti getum við mjög vel tekið undir mörg efnisatriði sem fram koma í frv. Þar nefni ég 1. gr. alveg sérstaklega. Það er knýjandi nauðsyn á að koma skólaskyldu á fyrir yngstu börnin þó það væri ekki nema til þess að koma í veg fyrir þá tvöföldu mismunun sem birtist þeim í samanburði við þau kjör sem 7 ára börnin njóta þegar þau koma inn í skólana.
Varðandi 2. gr. vil ég taka það fram að það er út af fyrir sig mjög gagnlegt að setja á blað hugmyndir um það að hafa hámarksfjölda í skóla, en auðvitað er það ekkert algilt í þessum efnum. Og jafnvel þó að skóli sé minni þá er það ekki trygging fyrir því að hann sé betri. M.a. er það ljóst að stærri skólar geta, ef þeim er rétt stjórnað og þeir hafa eðlilega fjármuni til rekstrar, tryggt nemendum meiri fjölbreytileika í náms- og leikjaframboði en hinir minni skólar geta gert. Ég held hins vegar að þarna sé sjálfsagt að setja almennar takmörkunarreglur. Við vitum hvernig þetta gerist í nýju hverfunum. Í Seljaskólanum eru t.d. 1400–1500 nemendur. Og við sem höfum verið að kenna hér í skólum á undanförnum árum eða áratugum þekkjum það af reynslu að við sérstakar aðstæður koma börn hundruðum saman inn í skólana vegna þess að það eru teknar ákvarðanir um að byggja hér og byggja þar. Viðkomandi skóli er svo að segja varnarlaus, ef ég má svo til orða taka í því efni, og oft skapar það mikla erfiðleika og rugling og veldur því að þjónustan við börnin, ef ég má orða það svo, verður satt að segja léleg. Þau börn og unglingar, sem helstu þyrftu á þjónustu og stuðningi að halda, verða út undan. Mörg sorgleg dæmi um þetta þekkjum við örugglega öll sjálf. Ég held þess vegna að hér sé hreyft gagnlegu og skynsamlegu máli í þessu frv.
Varðandi 3. gr. frv. þá hefur það komið fram að haustið 1983 lögðum við þm. Alþb. fram hér í þinginu tillögu um samfelldan skóladag og skólamáltíðir. Sú till. var samþykkt og menntmrn. hefur sinnt þessum málum með nefndarskipan, m.a. undir forustu hv. þm. Salome Þorkelsdóttur eins og hér hefur verið rakið. Hér hygg ég að sé komið að mjög stóru máli. Ég held að þetta sé þannig mál sem snertir samfelldan skóladag og skólamáltíðir að það eigi ekki að láta menntmrn. eða fjármálayfirvöld og fjárveitingavaldið í landinu komast upp með að framkvæma það ekki að hér verði samfelldur skóladagur og skólamáltíðir í öllum skólum.
Þetta ásamt greininni um 6 ára börnin tel ég að sé verkefni sem hægt er að hrinda í framkvæmd strax. Það á ekki að draga það neitt og það þýðir ekkert fyrir hæstv. menntmrh. eða neinn annan að koma hingað og segja: Þetta er svo dýrt. Þetta kostar auðvitað vissa fjármuni, en það eru ekki svo miklar upphæðir sem hér er um að ræða að það sé ekki hreinlega hægt að slá því föstu: Hér ákveðum við að framkvæma þær tillögur sem Alþingi hefur fyrir löngu fallist á að því er varðar 3. gr. og sjálfsagt er að fallast á að því er varðar 1. gr. Og við skulum hafa það í huga þegar gengið verður frá fjárlögum fyrir árið 1989 að þá verði það tryggt að fjármunir náist í þessu efni.
Að því er varðar 4. gr. þá kemur maður að spurningunni um það hversu nákvæm lög eigi að vera. En það er eitt efnisatriði sem ég tel að þurfi að skoða sérstaklega og það er það sem segir í síðustu mgr.:
„Skólastjóri ræður með samþykki skólanefndar stunda- og forfallakennara við skóla með nemendum færri en 30 og starfsfólk með uppeldisfræðimenntun til að annast nemendur í grunnskólum.“
Ég held að það þyrfti aðeins að átta sig betur á því, án þess að þörf sé á að setja það inn í lagatextann, hvaða fólk hér yrði um að ræða. Fólk með uppeldisfræðimenntun, það gengur nógu illa eins og við þekkjum að fá fólk með kennarapróf til þess að kenna. Við þyrftum að átta okkur aðeins betur á því hvað flm. eiga við með þessari síðustu málsgrein. En málið er mikilvægt, að skólinn sé ekki aðeins skólastofa heldur geti líka verið athvarf. Og það er mjög jákvætt í þessu frv. í heild, grg. og framsöguræðu hv. 6. þm. Reykv., að það er lögð áhersla á það að tryggja betur en nú er gert það sem ég vil kalla gæsluhlutverk skólans. Ég tel það vera mjög þýðingarmikið atriði.
5. gr. kveður á um lengingu daglegs vinnutíma nemenda. Þar er um að ræða mjög verulega lengingu, t.d. að því er varðar 6 ára börnin, þá eru þau mest 17 eða 18 tíma á viku hér á höfuðborgarsvæðinu eins og það er núna, en mundu fara í 30 stundir alls samkvæmt þessu frv. Það er lenging um 66%. Og tíminn hjá 7 ára börnunum ætti að lengjast úr 22 stundum í 1200 mínútur eða um 36%. Hér er auðvitað um gríðarlega mikla breytingu að ræða. Þessar tillögur er örugglega allar mjög auðvelt að rökstyðja frá bæði almennu og sjálfsagt líka kennslufræðilegu sjónarmiði. Ég held að hins vegar þurfum við að átta okkur á því í sambandi við þetta efni hvort það er endilega nauðsynlegt að vera með þetta svona nákvæmt í lögum. Ég er ekki alveg viss um það. Ég er reiðubúinn til þess að fallast á rök á hvorn veginn sem er ef ég heyri þau gild, en mér finnst þetta vera dálítið nákvæmt miðað við það sem maður er vanur í lagatexta.
Að því er varðar þessa grein í sambandi við lengingu skólatímans, þá er náttúrlega ljóst að hún kostar talsvert fé og það þýðir m.a. fleiri kennara ásamt fleiri greinum hér. Það þýðir miklu fleiri kennara en nú eru til í landinu. Ég segi til. Mér er tjáð að kennarar séu núna um 3200. Þar af eru 600 leiðbeinendur og rúmlega 1/3 af launum kennara er fyrir yfirtíð. Kennaraskortur í landinu er því þegar í kringum 1000 kennarar. Þannig að samhliða áætlun um þessa eflingu grunnskólans, sem ég var hér að tala um áðan, yrði auðvitað að koma áætlun um eflingu kennaramenntunarinnar í landinu og það hvernig hún getur tryggt það að sú þjónusta verði veitt börnunum sem grunnskólalögin að öðru leyti gerðu ráð fyrir.
6. gr. frv. fjallar um fækkun í bekkjum. Út af fyrir sig er það líka athyglisvert mál. Það hefur komið fram að kennarasamtökin og kennararnir telja að núverandi ástand í þeim efnum sé óbærilegt, en það flokkast væntanlega ekki undir helgispjöll að geta þess að það hafa verið gerðar mjög viðamiklar rannsóknir á fylgni á milli stærðar bekkja og námsárangurs.
Ég hef undir höndum upplýsingar um bandaríska rannsókn frá háskólanum í Colorado sem var birt 1979, þar sem keyrðar voru saman 80 mjög stórar rannsóknir frá 70 ára tímabili um bekkjarstærðir í mörgum löndum. Þetta voru 700 mismunandi bekkjarstærðir, 900 þús. nemendur sem þessi keyrsla náði til. Og það kom í ljós í þessari könnun þegar allir nemendur voru teknir saman að það eitt út af fyrir sig, ef ekkert annað gerðist, að fækka í bekkjum fer ekki að ráða úrslitum fyrr en búið er að fækka mjög verulega, þ.e. niður fyrir 15. Ef menn eru að tala um fækkun úr 30 niður í 20, þá er breytingin hverfandi lítil samkvæmt þessari könnun.
Ég held að þetta sé umhugsunarefni. Hverju skiptir bekkjarstærðin? Hverju skiptir gerð námsefnisins og námsgögnin? Hverju skiptir viðverutíminn í skólanum í heild? Og síðast en ekki síst: Hverju skiptir menntun kennarans og líðan hans í skólanum, m.a. launakjör og önnur vinnuaðstaða?
Og ég held að það væri mjög nauðsynlegt ef við erum að tala um það sem við erum að ræða hér, að taka upp grunnskólalögin, skoða þau í heild, þá eigum við að athuga hvað allir þessir þættir gera hver fyrir sig um leið og við ákveðum í hvaða röð við göngum í að bæta skólastarfið í þágu barnanna og þjóðarinnar allrar.
Ég held að í rauninni sé það þannig að það sem skipti einna mestu máli séu kennararnir og innstilling þeirra og menntun. Sá kraftur sem er í hverjum kennara til þess að annast börnin í bekknum. Það er auðvitað alveg ljóst að það er útilokað fyrir kennara að sinna sem skyldi bekkjardeild með 30–40 börnum. Við sem höfum fengist eitthvað pínulítið við kennslu þekkjum hvað það er erfitt. Sérstaklega að sinna þeim sem víkja eitthvað aðeins frá meðaltalinu.
Ég vil þess vegna segja það í þessu sambandi, virðulegi forseti, að við ættum kannski að átta okkur á vissum atriðum um leið og við sláum þessu föstu: Við skulum koma hér á skólaskyldu fyrir 6 ára börn. Við skulum koma hér á samfelldum skóladegi og skólamáltíðum. Það er engin afsökun fyrir okkur að gera þetta ekki. Peningaupphæðirnar sem til þess þarf eru ekki svo stórar að það sé ekki viðráðanlegt. Og þá er ég ekki að tala um í einhverri blámóðu fjarskans heldur strax á næsta eða í síðasta lagi næstnæsta fjárlagaári. - En jafnframt þessu eigum við að skoða skólaþróunina í heild og ég vil nefna nokkur atriði í þeim efnum sem mér finnst nauðsynlegt að hafa í huga.
Það fyrsta sem ég nefni er að efla fræðsluskrifstofurnar allt í kringum landið þannig að þær geti fært þróunarstarfið í skólamálum inn í skólana. Ég held að sumarnámskeiðin við Kennaraháskóla Íslands séu út af fyrir sig góðra gjalda verð, en ég held að sú tilraun sem hefur verið gerð, að vera samtímis með nám í Kennaraháskólanum og kennslu úti í skólunum, að vera með sama fólkið í þessu, það eru 100–150 manns eða svo, ég held að sú tilraun hafi gefið miklu meiri árangur en þessi námskeið, sem eru góðra gjalda verð en eru dálítið aðskilin frá hinu raunverulega lífi inni í skólunum sjálfum. Ég nefni sem sagt markvisst skólaþróunarstarf númer eitt inn í þessa umræðu. Jafnframt það að komið verði á skólaþróunarsjóði skv. 64. gr. grunnskólalaganna, sem hefur aldrei verið komið á, til þess að vinna markvisst í þessu efni. Og væri ekki skynsamlegt að byrja á því, að því er varðar fækkun í bekkjardeildum og lengingu skólatíma, að taka út t.d. 5–10 skóla í tvö ár og meta árangurinn að þeim tíma loknum? Þessi tilraun færi fram undir stjórn Rannsóknastofnunar uppeldismála þar sem hlutirnir væru metnir og menn reyndu að loknum þessum tilraunatíma eða rannsóknatíma að átta sig á því hvar best væri að byrja.
Ég held að við höfum vanrækt stórkostlega þróunarstarf í skólamálum eins og reyndar á fleiri sviðum. Ég hygg reyndar að við séum að dragast stórkostlega aftur úr öðrum þjóðum í skólamálum. Og ég er sannfærður um að það er ekki síst vegna þess að okkur hættir allt of mikið til að líta á hlutina „statískt“, sem fasta, óumbreytanlega, í stað þess að ýta undir þróunarstarf og líf í skólakerfinu sjálfu og þeim þáttum þjóðfélagsins sem einkum snerta skólakerfið.
Ég hef nefnt þetta með 6 ára börnin og skólamáltíðirnar sem forgangsverkefni og legg síðan áherslu á það að hreyfiaflið er ekki síst kennarinn og kjör hans og vinnuaðstaða.
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að fara hér yfir kostnaðinn við þessar tillögur. Það hefur verið gert mjög skilmerkilega af hv. flm. Ég tók svo eftir að stofnkostnaðurinn við þetta væri 3200 millj. kr. ef allt yrði framkvæmt. Ég tók svo eftir í ræðu hæstv. menntmrh. að framlögin í ár væru um 350 millj. kr. Er þetta ekki svona u.þ.b. 9 ára framlög eins og þau hafa verið til skólanna á undanförnum árum? Þetta segi ég ekki til að undirstrika það að þetta séu óraunhæfar tillögur, heldur til að undirstrika það að framlögin til skólamála, m.a. stofnkostnaðar á undanförnum árum, hafa verið allt of lág. Þau hafa hrunið svo að segja núna og það er að koma okkur í koll. Það birtist okkur m.a. með þeim hætti að skólastarfið er að staðna.
Ég held, herra forseti, að þessi umræða, sem hér hefur verið hafin, sé jákvæð og gagnleg. Það er gott að taka hér stund í að ræða þessi mál, um grunnskólann. Ég vil gera það að mínum lokaorðum að ég vildi gjarnan sjá hér tillögu að áætlun til nokkurra ára um þróun skólastarfs á Íslandi. Ég vil gjarnan að þar séu allir þættir teknir saman, þ.e. grunnskólinn, framhaldsskólinn og háskólinn og við áttum okkur á því hvernig við getum í fyrsta lagi tryggt að þessar stofnanir skili menntuðu fólki út í þjóðfélagið og í annan stað tryggt að það geti hjálpað okkur til að skapa hér betra þjóðfélag.
Hins vegar er örugglega ágreiningur um það í okkar hópi hvað er gott þjóðfélag og hvað er vont. Ég er t.d. ekki viss um það að japanska þjóðfélagið sem framleiðir fólk sé gott þjóðfélag. Ég er ekki viss um það fyrir mitt leyti. Ég hygg að við þurfum aðra mælikvarða, herra forseti.