22.03.1988
Efri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5988 í B-deild Alþingistíðinda. (4068)

315. mál, grunnskóli

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Herra forseti. Ég fagna þeirri góðu umræðu sem hér fer fram því að ég tel að það sé okkur mjög þarft og nauðsynlegt að ræða menntamálin sem oftast vegna þess að ég tel að það skorti enn þá töluvert á að við höldum hér uppi góðri menntastefnu. Það er nauðsynlegt að ræða þau mál hvort sem um er að ræða einstaka þætti eða þá menntamálin sem heild.

En ég fagna reyndar líka þeirri hugmynd sem hæstv. menntmrh. varpaði hér fram áðan um að gera einhvers konar áætlun um skólabyggingar vegna þess að ég er honum hjartanlega sammála í því að vinnubrögð virðast oft vera tilviljunarkennd. Það rísa upp skólahús og þá gjarnan núna seinni árin íþróttahús, að því er virðist tilviljunarkennt. Sums staðar eru húsin upp risin en enn liggur ekki fyrir samningur um gerð þeirra og fjárveitingar vantar á meðan samið er um önnur hús sem alls ekki er byrjað að byggja. Það leiðir til óþarfrar baráttu á milli kjördæma og því fagna ég því, eins og ég sagði áðan, að hann hefur uppi hugmyndir um að ráða bót á þessu.

Ég ætla ekki að fara út í eintök efnisatriði frv. sem hér er til umræðu. Það hefur fyrri flm., hv. 6. þm. Reykv., gert á þann hátt að ég sé ekki ástæðu til þess að fara nánar út í þau. En efni þessa frv. er eitt atriði af mörgum varðandi skólamál og menntastefnu sem við kvennalistakonur vildum sjá tekið á af myndarskap.

Við höfum á þessu þingi lagt fram nokkrar tillögur og borið fram fyrirspurnir varðandi skólamálin. Þar má t.d. nefna till. sem við fluttum nýlega um aukna ráðgjöf og þjónustu við nemendur með sérþarfir, foreldra þeirra og kennara. En það er ljóst að nemendur sem þurfa á sérkennslu að halda þurfa að vera í stöðugri þjálfun og þá er mikilvægt að draga ekki bara nemandann og kennarann inn í heldur einnig foreldrana.

Við bárum einnig fram fsp. í upphafi þessa þings um kennararáðningar við skóla landsins og það kom reyndar í ljós sem okkur grunaði að þar er hlutfall leiðbeinenda allt of hátt, sérstaklega á landsbyggðinni. Það gengur ekki eins vel að fá kennara þangað og hér á höfuðborgarsvæðinu og það vekur aftur upp spurninguna um jafnrétti barnanna til náms.

Þá höfum við einnig nýlega lagt fram fsp. varðandi skólaakstur en mjög mörg börn á grunnskólaaldri eyða allmörgum klukkustundum í viku hverri í skólabílum sem okkur er kunnugt um að eru misjafnir að gæðum. Það kom reyndar fram í svari hæstv. dómsmrh. að það eru veittar undanþágur til að setja fleiri börn í þessa bíla en leyfilegt er. Þá hlýtur að vakna sú spurning hvort nokkuð sé nógu gott fyrir börnin og ég held að við ættum að huga mjög vel að því. Þetta frv. er nú einmitt flutt í þeim tilgangi að bæta stöðu barnanna sem oft vilja gleymast í þjóðfélagi þar sem hraðinn, flýtirinn og vinnuálagið stjórna mönnum frá einni klukkustund til annarrar.

Hæstv. menntmrh. varð í máli sínu tíðrætt um skort. Hann talaði að sjálfsögðu um skort á fjármagni til að framkvæma þær breytingar sem frv. okkar gerir ráð fyrir. En honum varð líka tíðrætt um skort á starfsfólki, hvort sem um var að ræða fólk til að annast mötuneyti, gæslu nemenda eða kennslu. Og hverjar skyldu nú ástæður skortsins vera? Hvers vegna óttast hann svo mjög að ekki fáist fólk til starfa? Svarið er einfalt og blasir við okkur daglega. Störf þeirra sem umönnunar- og uppeldisstörf stunda eru stórlega vanmetin þegar að því kemur að greiða laun fyrir þau, enda eru þau að stærstum hluta til störf sem áður voru unnin ókeypis inni á heimilum landsins af húsmæðrunum.

Það er mikið íhugunarefni hvernig við ætlum að komast út úr þessum hugsunarhætti, svo tekið sé dæmi um kennarana eingöngu, en það hlýtur að vera hæstv. menntmrh. sem og okkur þm. öllum mikið áhyggjuefni á þessari stundu hvernig kjarabarátta þeirra þróast á næstu dögum og vikum. Kennarar hafa á undanförnum árum starfað í ýmsum nefndum, bæði innan eigin raða og jafnvel í samstarfi við menntmrn. m.a. með það fyrir augum að bæta kjör sín. Skýrslur hafa verið gefnar út og óvefengjanlegar niðurstöður lagðar fyrir. Og svo gerðist það sl. vor að út kom skýrsla erlendra sérfræðinga um skólastarfið á Íslandi. Í öllum skýrslum og niðurstöðum sem birtar hafa verið ber allt að sama brunni. Laun og kjör kennara eru hreinlega talin standa skólastarfinu fyrir þrifum. Þetta hefur hver menntmrh. af öðrum tekið undir en samt gerist ekkert.

Af þessu tilefni leyfi ég mér að spyrja hæstv. menntmrh. um hans skoðun á kjörum kennara og hvort í rauninni sé svo mikið tengslaleysi milli menntmrn. og fjmrn. að engu verði um þokað. Ef við ættum að geta talist sjálfstæð þjóð er ein af frumforsendunum sú að við getum haldið uppi öflugri menntastefnu og þar með virku skólastarfi, en í hversdagsleika skólastarfsins hefur kennarinn þýðingarmiklu hlutverki að gegna og til hans eru gerðar síauknar kröfur eftir því sem daglega lífið gerist flóknara.

Það hefur oft verið minnst á langan vinnudag foreldra í þessari umræðu. Það eru ill örlög barna okkar að fá ekki að njóta nægra samvista við foreldra sína og vera þar að auki í kennslu hjá kennurum sem líka vinna allt of langan vinnudag, en eins og fram kom í máli hv. 7. þm. Reykv., þá er 1/3 hluti af launakostnaði menntmrn. fyrir yfirvinnu kennara.

Það er ýmislegt fleira sem þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar og athuga með tilliti til forgangsverkefna, forgangshraða. Vil ég þar t.d. minnast á till. þingkvenna Kvennalistans um kennslugagnamiðstöðvar í öllum fræðsluumdæmum sem samþykkt var á síðasta þingi. Það var tímabær og nauðsynleg till., en því miður hefur sú starfsemi verið svelt fjárhagslega eins og svo allt of margt annað.

Ég minntist á það áðan að okkur hefði orðið tíðrætt um skortinn. Það sem okkur skortir fyrst og fremst að mínu mati er sú heildarsýn sem þarf til að móta heildstæða menntastefnu þar sem verkefni eru sett í forgangsröð. Allir hljóta að vera sammála um nauðsyn þess að setja viðurværi og umönnun yngstu barnanna í forgang því lengi býr að fyrstu gerð. Eftir því sem mér hefur heyrst á hv. þm. sem hér hafa tekið til máls, þá taka þeir mjög undir efni þessa frv. þannig að við gerum okkur svo sannarlega vonir um að þetta verði eitt af þeim verkefnum sem sett verða í ótvíræðan forgang.