22.03.1988
Neðri deild: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6005 í B-deild Alþingistíðinda. (4080)

60. mál, iðnaðarlög

Anna Ólafsdóttir Björnsson:

Herra forseti. „Í litlu þjóðfélagi eru fyrirtæki smá og bera svipmót þess samfélags sem þau eru sprottin upp úr. Heill og gengi þeirra er samofið þjóðarhag þó að ágóði þeirra sé höfuðmarkmið. Um erlend fyrirtæki gegnir öðru máli. Mörg þeirra tengjast líka fjölþjóðahringum og um þá gilda enn harðari reglur og lögmál. Þeir teygja arma til ótal landa og hafa eigin ágóða að einasta leiðarljósi. Heill einnar smáþjóðar skiptir þau harla litlu. Íslendingar hafa margra alda reynslu af erlendum fyrirtækjum sem náð hafa fótfestu í lengri eða skemmri tíma hér á landi og hana yfirleitt mjög slæma. Við höfum dregið lærdóm af þessari reynslu bæði fyrr og síðar.

Árið 1857 lagði Danakonungur fyrir Alþingi beiðni Frakka um leyfi til að koma á fót fiskiðnaðarfyrirtæki í Dýrafirði. Um það mál hafði Jón Sigurðsson forseti þau orð að sér hefði fundist rétt að tilmælunum hefði strax verið svarað með kurteislegri neitun, og þingheimur hafnaði algerlega beiðni Frakka og undirstrikaði viðhorf sitt um það að herða þyrfti á lögum og eftirliti gagnvart erlendri ásókn í aðstöðu og auðlindir hér á landi. Frv. sem iðnrh. lagði fram var samþykkt sem lög árið 1978 og gengu þau í sömu átt og voru sett að yfirsýn flestra helstu forustumanna í íslensku atvinnulífi. Ekki verður séð að nú gildi önnur lögmál.

Frv. það, sem hér um ræðir, gefur iðnrh. skýlausan og nær ótakmarkaðan rétt til að veita erlendum fyrirtækjum heimild til að eiga meiri hluta í íslenskum fyrirtækjum og raunar opnar það leið til þess að erlend fyrirtæki reki hér starfsemi án þess að Íslendingar eigi þar nokkra aðild að. Þetta telur undirrituð stórvarhugavert og leggur til að frumvarpið verði fellt.

Geir Gunnarsson sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur þessu áliti.“ Undir þetta skrifar Guðrún J. Halldórsdóttir.