22.03.1988
Neðri deild: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6018 í B-deild Alþingistíðinda. (4090)
60. mál, iðnaðarlög
Forsætisráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Efnislega er hér um að ræða að færa aftur í lög ákvæði sem í gildi voru á sínum tíma um heimildir erlendra aðila til fjárfestingar. Hér er um að ræða mjög takmarkað mál sem ég tel vera eðlilegt að nái fram að ganga. Þetta er stjfrv. eins og fram hefur komið og engu breytir um það þó að tveir af hv. þm. Framsfl. hafi ekki verið reiðubúnir að ganga með forustu síns eigin flokks í þessu máli.
En varðandi fsp. hv. 13. þm. Reykv. um það starf sem fram hefur farið um tillögugerð varðandi samræmdar reglur um fjárfestingu erlendra aðila á Íslandi, þá var í samræmi við stjórnarsáttmálann skipuð sérstök nefnd til að vinna að tillögugerð í þessu efni og hún hefur lokið störfum og lagt fram frv. um þetta efni sem byggir á samræmdum reglum, þó með þeim takmörkunum sem ríkisstjórnin ákvað að því er varðar auðlindir landsins sem eðlilegt er að erlendir aðilar geti ekki fjárfest í.
Frv. hefur verið lagt fram í ríkisstjórn. Ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leyti samþykkt það og það er nú til meðferðar hjá flokkum ríkisstjórnarinnar og verður að lokinni þeirri umfjöllun væntanlega lagt fram á Alþingi ef samstaða tekst um það milli stjórnarflokkanna. Ég tel eðlilegt að það fari fram ítarleg umræða um þessi efni. Hún hefur ekki verið mikil og í sjálfu sér engin ástæða til að keyra fram lagabreytingar um þetta efni með einhverjum sérstökum hraða. Við þurfum að ræða þessi efni ítarlega og í heild sinni og þess vegna sé ég út af fyrir sig ekki ástæðu til að leggja á það áherslu að þetta þing samþykki heildarlöggjöf um þetta efni þó að brýnt sé og æskilegt að sú umræða hefjist. En m.a. vegna þessa tel ég eðlilegt að það mál sem hér er til umfjöllunar og lýtur að mjög takmörkuðum þætti, er efnislega samhljóða ákvæði sem áður var í lögum og reynslan sýnir að var nú býsna meinlaust fyrir íslenskt atvinnulíf, þá tel ég eðlilegt að það verði afgreitt á þessu þingi.