22.03.1988
Neðri deild: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6023 í B-deild Alþingistíðinda. (4096)
293. mál, áfengislög
Frsm. minni hl. allshn. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti minni hl. allshn. Þetta mál er raunar ekki nýtt af nálinni. Því hefur iðulega verið hreyft í ýmsum myndum á undanfarandi þingum, en yfirleitt hefur það átt heldur erfitt uppdráttar. Allir hv. alþm. vita að snemma á þessu þingi var flutt frv. til laga um breytingu á áfengislögum, nr. 82/1969. Það var 42. mál þingsins. Flm. voru hv. þm. Jón Magnússon og fleiri. Um það urðu nokkrar umræður. Því var vísað til nefndar en af einhverjum ástæðum þótti henta að hafa hestaskipti úti í miðri á og leggja þessu frv. við stjóra. En þá var flutt annað frv. sem er 293. mál þingsins. Og það er nál. um það mál sem nú er fjallað um.
Eins og ég sagði þá mæli ég fyrir hönd minni hl. allshn. því að nefndin varð ekki einhuga um þetta mái. Það var rætt á nokkrum fundum. Margar umsagnir bárust um málið og ýmsir komu á fund nefndarinnar. En minni hl. leggur til að frv. verði fellt.
Það er raunar ekkert nýtt að það sé ágreiningur milli manna um það hvernig eigi að skipa þessum málum. Þar sýnist sitt hverjum. Allir eru þó væntanlega sammála um það að æskilegt sé að heildarneysla áfengis meðal einstaklinga og þjóða sé sem allra minnst. Með hliðsjón af biturri reynslu margra annarra þjóða og öðrum sterkum rökum sem fyrir liggja teljum við í minni hl. að innflutningur, bruggun og sala á sterku öli hérlendis muni auka heildarneyslu áfengis í landinu. Að sama skapi færi auðvitað vaxandi sá mikli vandi sem tengist áfengisneyslu bæði af félagslegum rótum runninn og einnig tengjast margir sjúkdómar áfengisneyslu á einn eða annan hátt, þar með talin drykkjusýki.
Við viljum sérstaklega benda á það álit sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur beint til aðildarþjóðanna, að þær setji sér það mark að minnka áfengisneyslu um fjórðung til aldamóta. Það eru ýmsir sem gagnrýna störf Sameinuðu þjóðanna og telja að þær hafi ekki náð miklum árangri, en það er þó hafið yfir allan vafa að ýmsar af sérstofnunum Sameinuðu þjóðanna hafa unnið mjög gott starf, þar á meðal Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin.
Þeir sem undirrita þetta nál. á þskj. 724 og leggja til að frv. verði fellt eru auk mín hv. þm. Geir Gunnarsson og Ólafur Gränz.
Um þetta mál hafa borist fjölmargar umsagnir eins og geta má nærri. Ég ætla að leyfa mér að nefna þær nokkrum orðum. Fyrst ætla ég að víkja að þeim sem við höfum birt með þessu nál. sem fskj.
Ég fer raunar ekki um þau fskj. mörgum orðum. Hver og einn hv. alþm. getur kynnt sér það sem þar stendur. En ég nefni þau þó lítillega.
Á fskj. I er grein, sem dr. Tómas Helgason birti í Morgunblaðinu 11. mars sl. og nefnist: „Ekki bjór.“ Þar bendir hann á það með sterkum rökum að öll fræðileg rök bendi til þess að sá skaði sem áfengi veldur vaxi með aukinni heildarneyslu. Ég þarf ekki að fara mjög miklu nánar út í þetta fskj., en aukafyrirsagnir tala sínu máli. Þar er talað um: 1. Heildarneysla eykst með bjór. 2. Meiri heildarneysla - meiri skaði. 3. Meiri heildarneysla — fleiri drykkjusjúkir. Og eftir að hann hefur fært mjög sterk rök að máli sínu, þá eru lokaorðin þau að vegna þess skaða sem aukin áfengisneysla valdi heilbrigði þjóðarinnar beri að hafna bjórfrv., enda gangi það í berhögg við íslenska heilbrigðisstefnu.
Þá er næst á fskj. II bréf frá Geðlæknafélagi Íslands til allshn. Þar talar félagið um að vísa beri frv. frá vegna þess að framleiðsla og sala áfengs öls hér á landi muni leiða til aukinnar áfengisneyslu og aukins tjóns á heilsufari þjóðarinnar.
Á fskj. Ill, sem prentað er með frv., er svo bréf Þorkels Jóhannessonar, prófessors í lyfjafræði, til allshn. frá 2. þessa mánaðar. Þar færir hann í sjö töluliðum sterk rök að því að þetta frv. beri að fella.
Þá nefni ég fskj. IV sem er umsögn frá Landssambandi lögreglumanna. Stjórn landssambandsins telur margt benda til að heildarneysla áfengis muni aukast a.m.k. til að byrja með ef leyfð verði sala áfengs öls. Þá sé líklegt að áfengisneysla unglinga verði almennari og hætta sé á að hún færist neðar í aldursstigann. Einnig megi búast við því að sala á áfengu öli muni auka áfengisneyslu á vinnustöðum, en slíkt auki hættu á vinnuslysum og dragi úr afköstum. Verði þetta frv. samþykkt megi reikna með verulega auknum verkefnum lögreglunnar, m.a. vegna ölvunaraksturs, og við því þurfi að bregðast með eflingu eftirlits og löggæslu. Þetta bréf frá Landssambandi lögreglumanna er raunar nokkru lengra. Það er mjög hógvært og satt að segja mætti bæta miklu við þetta bréf og það gæti ég gert af langri reynslu af þessum málum, en læt það bíða að sinni.
Þá er fskj. V. Þar er talað um áfengismálaumræðu á villigötum. Bjórfrumvarpið er tímaskekkja, stendur þar. Þetta er áskorun lækna sem vinna að meðferð áfengissjúklinga. Þar er m.a. tekið fram að þeir læknar sem þessa áskorun undirrita, sem allir vinna að meðferð áfengissjúklinga, skori á alþm. að vísa frá frv. um breytingu á áfengislögum sem fram er komið til þess að leyfa bruggun og sölu áfengs öls hér á landi. Þeir benda á að ein meginskýringin á því að heildarneysla áfengis á Íslandi er minni en annars staðar sé sú að hér hafi ekki verið leyfð framleiðsla og sala á áfengu öli. Undir þetta rita átta læknar.
Þá er það fskj. VI. Það er grein sem birtist í DV 23. febr. sl. Þar er á ferð Árni Einarsson, ritari samvinnunefndar bindindismanna. Greinin nefnist „Ölórar, áhrif bjórs á heildarneyslu áfengis“ og er þar m.a. sýnt súlurit varðandi þróun þessara mála.
Ég vík þá að nokkrum umsögnum öðrum sem borist hafa. Hér er m.a. bréf frá Verkamannasambandi Íslands. Þar segir í ályktun að 13. þing VMSÍ lýsi yfir fyllsta stuðningi sínum við öll félagasamtök sem vinni gegn notkun vímuefna. Jafnframt skorar þingið á alþm. að samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu um fram komið bjórfrv. Slík tillaga hefur ekki komið fram á Alþingi um þetta mál sem nú er rætt, en ég ætla að segja það sem mína persónulegu skoðun að ég er mótfallinn því að þetta mál verði lagt undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég tel rétt og skylt að við alþm. skerum úr því sjálfir.
Þá er hér bréf frá Samtökum áhugafólks um áfengisvandamálið. Þar er í upphafi vikið að því að Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, SÁÁ, sé hópur 8000 einstaklinga sem hafi sameinast undir einu merki til þess að berjast á raunhæfan hátt við áfengisvandamálið, en innan þessara samtaka rúmist bindindismenn, hófdrykkjumenn og drykkjusjúklingar. Þess vegna geti stjórn SÁÁ ekki tekið afstöðu fyrir hönd alls þessa fólks með eða á móti fram komnu frv. þess efnis að leyfð verði bruggun og sala bjórs á Íslandi, en að fenginni reynslu SÁÁ tekur framkvæmdastjórn fram eftirfarandi atriði m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„1. Þó að líklegt sé að dragi úr neyslu sterkra drykkja með tilkomu bjórs bendir allt til þess að heildarneysla hreins vínanda muni aukast hér á landi eins og reynslan hefur sýnt annars staðar.
2. Aukin neysla vínanda hefur ætíð leitt til aukinnar tíðni drykkjusýki.
3. Líklegt er að drykkjuvenjur drykkjusjúkra muni að einhverju leyti breytast þannig að vart verði við aukna sídrykkju. Sídrykkja leiðir til verra líkamlegs ástands þessa hóps og er sérstaklega vert að benda á lifrarsjúkdóma.
4. Verði bruggun og sala bjórs leyfð hér á landi er það skoðun framkvæmdastjórnar SÁÁ að jafnframt verði að gera stórátak í fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerðum gagnvart almenningi, sérstaklega unglingum.“
Ég vík þessu næst að umsögn frá Kvenfélagasambandi Íslands. Þar er tekið fram að Stjórn Kvenfélagasambands Íslands telji að ekki beri að rýmka ákvæði núgildandi áfengislaga.
Þá er það Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ). Í bréfi frá ÍSÍ er tekið fram að það hafi frá upphafi barist gegn áfengisneyslu og komi það fram í margendurteknum samþykktum íþróttaþinga ÍSÍ, svo og annarra funda er tekið hafa afstöðu til áfengismála. Þessi afstaða ÍSÍ sé alveg óbreytt.
Þá er hér bréf frá Alþýðusambandi Íslands. Af hálfu miðstjórnar ASÍ hefur ekki verið tekin sérstök afstaða til frv., segir í bréfinu, en miðstjórn minnir á svofellda samþykkt 34. þings ASÍ frá 1980, sem ég ætla að leyfa mér að lesa, með leyfi hæstv. forseta: „34. þing ASÍ bendir á niðurstöður Heilbrigðismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (WHO), þar sem fram kemur að þau vandamál er stafa af áfengisneyslu séu í beinu samhengi við heildarneyslu þess. Heilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna telur helstu ráðin til úrbóta á þessu sviði vera að halda verðlagi á áfengi háu og fækka dreifingarstöðum áfengis.
34. þing ASÍ lýsir yfir fullum samstarfsvilja við þá aðila sem berjast gegn áfengis- og fíkniefnaneyslu og aðstoða þá einstaklinga, sem háðir eru þessari neyslu.“
Ég var áður búinn að víkja nokkrum orðum að umsögn frá Landssambandi lögreglumanna.
Þá kemur hér næst Læknafélag Íslands. Það svarar þessu í nokkuð löngu máli þar sem m.a. kemur fram að öll vandamál sem tengjast áfengi vaxi margfalt með aukinni heildarneyslu og skorað er á ráðherra og aðra alþm. að gera það sem í þeirra valdi stendur til að draga úr framboði áfengis og eftirspurn eftir því þannig að heildarnotkun þess minnki í samræmi við markmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Það er einnig nefnt að í IV. kafla, 3, í íslensku heilbrigðisáætluninni sé bent á það sem staðreynd að óæskileg heilsufarsleg áhrif áfengisneyslu séu mikil hér á landi enda þótt heildarnotkun áfengis sé minni en í flestum öðrum löndum. Loks er minnt á það að í markmiði heilbrigðisáætlunarinnar segi svo m.a. að almenna neyslu áfengis þurfi að minnka að því marki að minnka og eyða að lokum alveg óæskilegum heilsufarslegum áhrifum áfengisnotkunar.
Þá er hér ítarleg umsögn frá áfengisvarnaráði. Í því bréfi er m.a. vikið að því, sem ég raunar hef rætt um áður, að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi beint því til aðildarþjóðanna að minnka áfengisneyslu um fjórðung til aldamóta. Þess vegna sé nauðsynlegt að huga að því hvaða ráð séu líklegust til að stuðla að því að slíkt takist. Á það er bent í þessari umsögn, sem er rétt að fara nokkrum orðum um, að það var á Alþingi 7. maí 1981 að samþykkt var samhljóða þál. um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum. 1. flm. var hv. núv. 3. þm. Norðurl. e., Árni Gunnarsson. Ríkisstjórnin samþykkti síðan 30. des. 1982 að skipuð yrði nefnd á hennar vegum og skyldi hún vinna að undirbúningi tillagna í samræmi við þál. Með bréfi 19. maí 1983 skipaði heilbr.- og trmrh. nefndina. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri var formaður hennar og auk þess áttu 16 menn sæti í henni, m.a. fulltrúar allra þingflokka. Þessi nefnd vann ágætt starf. Hún skipti sér í starfshópa eins og tíðkast nú á tímum. Þeir könnuðu ítarlega og samviskusamlega mismunandi þætti áfengismála og mun nefndin hafa skilað samhljóða áliti til heilbr.- og trmrh. 6. jan. 1987.
Þessar tillögur um áfengismálastefnu sem unnið var að samkvæmt þál. Alþingis hafa enn ekki verið ræddar. Hins vegar er í þessu frv. einn þáttur áfengismála slitinn úr samhengi við aðrar aðgerðir og látið svo heita í grg. að það sé gert til að samræma áfengislöggjöfina. En að mínu mati hefði mátt huga að þessu nál. einmitt í sambandi við þessa breytingu sem nokkrir hv. alþm. hyggjast gera á löggjöf um áfengismál.
Í þessari löngu og ítarlegu umsögn er svo minnt á það að í vor hafi hæstv. heilbr.- og trmrh. lagt fram á Alþingi skýrslu sem nefnist „Íslensk heilbrigðisáætlun“ og er vafalaust ýmsum kunn. Í þessari áætlun er talað um að gera markvissa áætlun um samdrátt í notkun áfengis.
Þá eru nokkrir liðir í þessari umsögn þar sem fjallað er um viðhorf nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndum. Þar segir m.a. að Jacob Söderman, landshöfðingi í Nýlandléni í Finnlandi - en þar er m.a. höfuðborgin Helsinki - leggi nú til að farið verði að dæmi Svía þar í landi og milliöl bannað. Ég get ekki stillt mig um að geta þess að Jacob Söderman ætti að vera ýmsum íslenskum alþm. að góðu kunnur. Hann var um tíma ef ég man rétt samstarfsráðherra af Finnlands hálfu um norræn málefni og hefur m.a. heimsótt Ísland nokkrum sinnum og er hinn mætasti maður.
Þá er rétt að geta þess að norska Stórþingið virðist ekki ætla að láta tilmæli Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um að minnka áfengisneyslu um fjórðung til aldamóta sem vind um eyru þjóta því að það hefur nú þegar gripið til ýmissa aðgerða til að stemma stigu við fjölgun áfengisdreifingarstaða.
Þá má nefna í þessu sambandi, þó að þangað sé lengra að leita fanga, að Bandaríkjamenn og Sovétmenn stefna í sömu átt, hafa m.a. hækkað lögaldur til áfengiskaupa í 21 ár, en hann hafði áður verið lækkaður í 18 ár víðast hvar í ríkjum þeirra.
Þessu næst er það umsögn frá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Félagsmálaráð telur að ekki þurfi að deila um þá staðreynd að verði bjórinn opinberlega leyfður til neyslu hér á landi, þá muni það hafa í för með sér heildaraukningu á áfengismagni sem Íslendingar drekka ár hvert. Hins vegar er alls óvíst hvort neysla sterks áfengis muni minnka eða aukast vegna bjórneyslunnar.“
Þetta er síðan rökstutt í alllöngu máli, sem ég ætla ekki að fara yfir. En þó segja þeir hér í lokin að það sé mjög vafasamt að þeirra dómi að innleiða bjórinn hér á landi án þess að á undan fari mikið fræðslu- og áróðursátak þannig að Íslendingar séu vel upplýstir um hætturnar sem fylgja bjór sem og öðru áfengi.
Þá er hér umsögn frá Æskulýðsráði ríkisins sem hnígur mjög í sömu átt og aðrar umsagnir sem ég hef fjallað hér um. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Æskulýðsráð ríkisins telur að ekki þurfi að deila um þá staðreynd að verði bjórinn opinberlega leyfður til neyslu hér á landi, þá muni það hafa í för með sér heildaraukningu á áfengismagni sem Íslendingar drekka ár hvert. Hins vegar er alls óvíst hvort neysla sterks áfengis muni minnka eða aukast vegna bjórneyslunnar.“ Og hér á öðrum stað segja þeir: „Brýnt er að stórauka nú þegar víðtæka og markvissa fræðslu um skaðsemi áfengra drykkja og áróður gegn notkun áfengis.“ Og loks taka þeir fram að algengasti byrjunaraldur þeirra sem neyta áfengis á Íslandi í dag sé talinn vera um 14–15 ára og segja svo: „Brýnt er að hið opinbera marki ótvíræða stefnu í verðstjórnun á áfengum drykkjum. Verði t.d. meiri hluti fyrir bjórfrv. og bjórinn seldur sem ódýrt áfengi er nánast víst að neysla barna og unglinga á heimilum muni stóraukast og færast enn neðar í aldursstigann.“ Grunur minn er sá að þessi neysla sé nú þegar komin a.m.k. nokkru neðar í aldursstigann og sjá menn þá hvílík vá er fyrir dyrum.
Þá er umsögn frá Geðlæknafélagi Íslands, en það er eitt af þeim skjölum sem prentað er með nál. og fjalla ég ekki um það frekar.
Þá er hér erindi frá Stórstúku Íslands. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hinn 7. maí 1981 samþykkti Alþingi þingsályktun um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum sem fyrst og fremst fæli í sér minnkun vímuefnavandans. Öllum dómbærum mönnum, læknum, lögreglu og æskulýðsleiðtogum ber saman um að bruggun og sala áfengs öls hér á landi, eins og gert er ráð fyrir í frv., muni hafa í för með sér allverulega aukningu á áfengisneyslu þjóðarinnar. Einkum mundi áfengis- og vímuefnaneysla unglinga aukast.
Í trausti þess að Alþingi vilji enn sem fyrr standa við samþykkt sína frá 7. maí 1981 leggjum við til að frv. verði fellt.“
Þá er hér hið ítarlega bréf frá rannsóknarstofu í lyfjafræði, undirritað af Þorkeli Jóhannessyni, dr. med. prófessor. Ég fjalla ekki um það nánar þar sem það er prentað sem fskj. með nál.
Rétt áður en ég fór hér upp í stólinn frétti ég að Alþingi hefði borist bréf frá mörgum læknum sem vinna við heilsugæslustöðvar úti um land. Það mun líklega vera komið hér fram á lestrarsal, en ég hef ekki séð það. Gott væri að fá að líta á það, a.m.k. áður en ég lýk ræðu minni.
Þá ætla ég að nefna þrjár umsagnir, aðeins þrjár umsagnir, sem hníga í nokkuð aðra átt en þær eindregnu umsagnir sem ég hef fjallað um nú. Það er þá fyrst Ferðamálaráð Íslands. Það samþykkir að mæla með frv. Nú hef ég heyrt því fleygt að vísu að ýmsir erlendir ferðamenn sakni þess að fá ekki áfengan bjór hér á landi, en á hinn bóginn hef ég líka heyrt um fjölmarga erlenda ferðamenn sem láta sig þetta litlu varða og una ágætlega hag sínum hér á landi þó þeir hafi ekki erlent, sterkt öl til að drekka.
Þá er hér umsögn frá Sambandi veitinga- og gistihúsa. Umsögn þess hnígur í þá átt að rétt sé að samþykkja frv.
Loks er hér þriðja umsögnin í þessa veru frá Vinnuveitendasambandi Íslands. Þar segir í bréfi: „Vinnuveitendasambandið gerir ekki athugasemdir við efni frv.“, þ.e. að sala og bruggun áfengs öls verði leyfð.
Það eru aðeins þessar þrjár umsagnir sem mér eru kunnar sem hníga í aðra átt en hinn sterki straumur þeirra umsagna sem ég hef nú farið um nokkrum orðum.
Auk þessara umsagna hefur verið skrifaður fjöldi blaðagreina á undanförnum mánuðum og vikum þar sem fjallað hefur verið um þetta mál.
Áður en lengra er haldið vil ég geta þess að mér barst einmitt nú í hendur umsögn sú frá læknum sem ég nefndi að hefði verið að berast Alþingi. Þetta er örstutt. Ég leyfi mér að lesa það upp, þ.e. textann, með leyfi hæstv. forseta:
„Undirritaðir læknar lýsa sig mótfallna sölu sterks öls á Íslandi og óttast afleiðingarnar verði núgildandi banni aflétt. Rök benda til þess að sterkur bjór muni auka á áfengisvanda þjóðarinnar sem er ærinn fyrir. Hér með er þeim tilmælum beint til hv. alþm. að þeir geri ekki slíka tilraun í áfengismálum mögulega.“ Ég ætla ekki að leggja út í það að lesa öll þessi nöfn upp, en við sjáum að þau þekja á fjórðu blaðsíðu. (Gripið fram í: Ólafur Þórðarson gerir það sjálfsagt.) Ja, ég læt það hjá líða að þessu sinni.
Já, ég ætla þá aðeins að nefna aðrar heimildir sem okkur hafa verið handbærar á síðustu vikum í þessu máli. Það er þá fyrst að nefna innlegg frá landlækni þar sem hann greinir m.a. frá fundi sem haldinn var með geðlækni, Hans Olaf Feker, frá Osló. Það fellur alveg í sama farveg og það sem ég hef áður vikið að, sem sé að nýjar tegundir áfengis auki heildarneysluna. Heildarneysla áfengis ræður mestu um heilsufarslegt tjón af áfengisneyslu. Tilraunir í nágrannalöndum til þess að draga úr neyslu sterkra áfengistegunda með því að beina áfengisneyslunni að veikari tegundum hafa að öllu jöfnu mistekist og þannig mætti áfram telja.
Hér er bréf til alþm. Það er frá samtökunum Átak gegn áfengi og þar er einmitt minnt á stefnuskrá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um það að þjóðir minnki áfengisneyslu sína um a.m.k. fjórðung fyrir næstu aldamót. Þá hef ég hér handbæra langa og ítarlega grein, sem raunar hefur birst í blöðum, frá Tómasi Helgasyni prófessor, dr. med. Það yrði of langt mál að mínu áliti að fara að lesa þetta allt upp. En ég gríp aðeins ofan í það á einum eða tveimur stöðum. Við vitum að dr. Tómas er nú sá maður sem einna mest og best hefur bent á skaða þann sem þessar lagabreytingar geta valdið. Og hann hefur hvað eftir annað skrifað um þessi mál og varað við afleiðingum þess.
Það er t.d. tekið fram hér að öll vandamál sem tengjast áfengisneyslu vaxi með aukinni heildarneyslu einstaklinga og þjóða, sum í beinu hlutfalli, önnur enn meir. Þetta eigi bæði við félagsleg vandamál og hvers kyns sjúkdóma sem tengjast áfengisneyslu, þar með talda drykkjusýki.
Ég ætla að lesa upp nokkrar setningar, með leyfi hæstv. forseta. Hér segir svo m.a.: „Allir áfengir drykkir eru jafnhættulegir vegna þess að það er vínandamagnið sem skiptir máli en ekki einhverjir aðrir eiginleikar drykksins. Hin almenna trú að bjór sé tiltölulega hættulítill og að það séu aðeins þeir sem drekka brennd vín sem verði drykkjusjúkir eða fái skorpulifur á ekki við rök að styðjast. Í löndum þar sem bjór er algengasta áfengistegundin eru flestir drykkjusjúklingar bjórdrykkjumenn.“
Ég vil sérstaklega benda hv. alþm. á að kynna sér vel þessa ítarlegu grg. um fræðileg rök gegn aukinni áfengisneyslu og bjórfrumvarpi.
Þá ætla ég að leyfa mér að geta um grein sem birtist í Morgunblaðinu sunnudaginn 6. mars sl. og skrifuð er af frú Margréti Þorvaldsdóttur. Þar er minnst á ræðu sem rektor magnificus, háskólarektor, hélt nýlega. Við sem eitt sinn nutum þeirra réttinda og þeirra gæða að stunda nám við Háskóla Íslands höfum kannski gott af því að hlusta einstöku sinnum á þegar alma mater kveður sér hljóðs eða sendir frá sér aðvörunarorð.
Þessi grein eftir frú Margréti Þorvaldsdóttur er athyglisverð að ýmsu leyti og ég mundi hvetja félaga mína hér á þingi til þess að renna augum yfir hana. Ég gríp niður í þessa grein, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir svo:
„Í ræðu sem prófessor Sigmundur Guðbjarnason, rektor Háskóla Íslands, hélt við afhendingu prófskírteina til kandídata í síðustu viku minntist hann m.a. á ábyrgð þegnanna og afstöðu þeirra til þjóðfélagsmála eins og t.d. heilbrigðismála, öryggis- og umferðarmála og dægurmála eins og bjórmálsins, en þessi mál eru í raun samhangandi. Hann ræddi um nýafstaðið heilbrigðisþing þar sem tekin var fyrir íslenska heilbrigðisáætlunin, en henni er ætlað að marka stefnu í aðgerðum til að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys í þjóðfélaginu.“
Síðar segir:
„Hann sagði enn fremur: Bjórinn virðist saklausasta áfengið en hann er það ekki í raun. Bjórinn gerir menn sljóa og syfjaða, hann slævir vitund manna og viðbragðsflýti og veldur aukinni slysahættu þó ekki komi til ölvunar. Munur á bjór og víni eða sterkum drykkjum er m.a. sá að við drykkju á víni eða sterkara áfengi, þá gera menn sér ljósa hættuna. Þeir taka síður áhættu og aka sjaldan sjálfir. Bjórinn blekkir og gefur falska öryggiskennd, menn telja sér trú um að þeir séu jafnsnjallir ökumenn eða jafnvel snjallari eftir bjórdrykkju. Slíkar blekkingar hafa valdið mörgum heilsutjóni og eignatjóni.“
Það er margt fleira í þessari góðu grein sem vert væri að lesa upp og raunar margt í þessari athyglisverðu ræðu háskólarektors sem hann sá ástæðu til að gefa þeim í veganesti sem hann var að útskrifa um þetta leyti, en ég læt hjá líða að lesa meira upp að sinni.
Það eru auðvitað uppi alls konar vangaveltur meðal manna um það hvað gerist ef sterkur bjór kynni að verða lögleyfður hér á landi. Menn segja sem svo: Hann verður örugglega undir lás og slá, þ.e. hann verður aðeins meðhöndlaður eins og áfengi í einkasölunni o.s.frv. og má vel vera að svo verði. Reynsla annarra landa bendir hins vegar til þess að það muni a.m.k. verða fast sótt að fá bjórinn seldan í almennum verslunum þegar tímar líða.
Ég klippti úr að gamni mínu, einhvern tíma í þessum mánuði, grein eftir Halldór Kristjánsson sem heitir Umhverfis bjórinn og mun hafa birst í Tímanum 17. mars sl. Þar segir m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta, örstutt:
„Til fróðleiks má svo minna á að í Noregi stendur nú yfir bjórstríð sem sótt er af ærinni hörku. Í sjö þúsund matvöruverslunum er nú reynt að safna undirskriftum að þeirri ósk að ölið megi selja í almennum verslunum. Matvörukaupmenn mynda samtök sem heita eitthvað líkt og „daglig varehandel forbund“ og þeir vilja fá að selja ölið af þjónustugleði við neytendur. Aðrir vilja að áfengt öl verði aðeins selt í verslunum einkasölunnar.“
Það má svo í rauninni halda endalaust áfram að vitna í heimildir af þessu tagi. En tíminn líður og óðar en varir verður maður að láfa máli sínu lokið. Ég ætla að síðustu að minnast á grein sem er orðin nokkuð gömul. Það mun hafa verið árið 1932 að Vilmundur Jónsson, þáv. landlæknir og alþm., flutti ræðu sem sagt er að hafi leitt til þess að frv. um ölgerð og sölumeðferð öls var ekki tekið aftur á dagskrá á þeirri tíð. Ég ætla ekki að lesa þessa ræðu alla upp þó að hún hafi birst í Alþýðublaðinu 1. mars sl. En það væri kannski ekki úr vegi að lesa niðurlag hennar, örstutt, með leyfi hæstv. forseta, og taka þá að sjálfsögðu fram að tímarnir eru auðvitað breyttir á þeim árum sem síðan hafa liðið. Þar segir svo:
„Og við munum allir hvernig farið hefur við hverja tilslökun sem gerð hefur verið. Við munum hve mjög ástandið versnaði með læknabrennivíninu og að síðan leyfður var innflutningur á hinum hollu Spánarvínum hefur öllu enn stórum hrakað í þessum efnum. Ég verð því að segja að þegar verið er að brigsla um blindni í áfengismálum getur það ekki átt við aðra en þá sem eru svo blindir á þá reynslu sem við höfum fengið með öllum tilslökunum að þeir ætla sér að bæta ástandið með því að gera eina tilslökunina enn.“
Ég sagði að það mætti vitna í fjölda heimilda, nýrra og gamalla, um þetta efni, fjölda umsagna sem flestar hníga í þá átt sem við höfum ákveðið að stefna í, minni hl. hv. allshn., þ.e. að við leggjum til að frv. verði fellt.