22.03.1988
Neðri deild: 72. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6034 í B-deild Alþingistíðinda. (4099)
293. mál, áfengislög
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Rétt er það sem fram kom í máli hv. 5. þm. Reykn. að um þetta mál hefur verið sagt svo mikið, bæði með og móti, að e.t.v. er þar að bera í bakkafullan læk og sérstaklega eftir hina ágætu ræðu sem þm. sjálfur var rétt í þessu að ljúka við.
Ég stend einungis upp til þess að ítreka það enn á ný hve mjög ég treysti á það að hv. þm. komist að þeirri niðurstöðu þegar þeir hafa skoðað málið vandlega að á þetta tæpa vað beri okkur ekki að tefla. Hér séum við að taka áhættu sem við rísum ekki undir. Að þessu hafa verið færð mörg rök, sýnt fram á athuganir í mörgum löndum í þessu sambandi og þá fyrst og fremst það að eitt form áfengis til viðbótar auki heildarneysluna.
Þannig er mál með vexti að ég minnist þess óneitanlega að hér kom fram í máli nokkurra hv. þm. við 1. umr. þessa frv. að menn höfðu það á orði að ekki hefði það komið fram í ritum hinnar merku stofnunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar að heildarneysla áfengis væri líkleg til að aukast við samþykkt frv. sem þessa og enn fremur kom það fram og var birt sem fyrirsögn yfir frásögn af máli hæstv. heilbrrh. að Heilbrigðismálastofnunin mælti ekki með banni á einni tegund eða annarri af áfengi. Mig langar til þess að fara fáeinum orðum um þessi tvö atriði og byrja á því síðarnefnda.
Það er auðvitað rétt að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur ekki gert það að innleiða nýtt bann. Hins vegar er það algjörlega ljóst og ég hef kannað það sérstaklega núna á þeim tíma sem liðinn er á milli hvort sá skilningur er ekki áreiðanlega réttur að Heilbrigðismálastofnunin hefur aldrei mælt með því að bæta nýrri tegund við og það er það sem við erum að fjalla um hér. Við erum að tala um hvort við eigum að auka vandann eða ekki.
Hitt atriðið, þar sem því er haldið fram að í ritum þessarar stofnunar komi það hvergi fram að ný tegund til viðbótar auki heildarneysluna og þar með þann vanda sem af ofneyslu áfengis leiðir, þá er því til að svara - ég hafði ekki handbær þá nöfnin á þeim ritum sem um var að ræða, en þau hef ég nú og það eru þrjú grundvallarrit í þessu sambandi sem dr. Grant, sá sem stjórnar áfengismáladeild Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, hefur greint frá og þau eru þessi. Ég bið leyfis hæstv. forseta að lesa heitin eins og þau eru þannig að menn geti útvegað sér þessi rit ef þeim sýnist svo:
Í fyrsta lagi rit eftir Walsh og Grant sem heitir Public Health Implications of Alcohol Production and Trade (WHO Offset Publication nr. 88). Þetta var það fyrsta. Annað ritið er eftir Moser og heitir Alcohol Policies in National Health and Development Planning og er útgáfa sömu stofnunar nr. 89. Í þriðja lagi rit stýrt af Grant: Alcohol Policies sem er Regional Publication eða svæðisútgáfa fyrir Evrópu nr. 18. Yfirlit er svo til um þetta sem er eftir Farell og heitir Review of National Policy Measure to Prevent Alcohol Related Problems. Það hefur ekki verið prentað enn þá, en er í undirbúningi útgáfu, en liggur sem sagt fyrir hjá stofnuninni og er unnt að fá það.
Enn fremur vil ég greina frá því að ég hef hér í höndum rit sem margir hv. alþm. hafa útvegað sér, sem er um Evrópustefnumörkun í þessum málum og var rit stofnunarinnar nr. 18.
Í öllum þessum ritum sem lágu m.a. til grundvallar til stefnumörkunar í framhaldi af fundum stofnunarinnar 1982 og 1983 er það grundvallarþáttur að það verði að stefna að því að draga úr heildarneyslu áfengis og, að nýtt form áfengis auki við heildarneysluna. Ég hygg að það þurfi ekki að rekja frekari gögn um það efni. Það höfum við þegar gert. Þetta var einungis til þess að skýra frá þeim heimildum sem hér var lauslega vitnað í fyrr í umræðunni og til þess að skýra frá því að það hefur verið sérstaklega kannað að það var rangt sem haldið var fram að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefði hvergi í ritum sínum bent á það að ný tegund áfengis yki heildarneysluna. Þetta er þvert á móti. Það er einmitt eitt af því sem liggur til grundvallar stefnumörkun í áfengismálum og þá stefnumörkun sem, eins og oft hefur verið bent á, miðast við að draga úr heildarneyslu áfengis vegna þess að það er augljóst samhengi í öllum þeim löndum þar sem það hefur verið rannsakað milli neyslumagnsins í heild og vandans sem af áfengi leiðir. Þetta kom mjög skýrt fram í máli hv. þm. Friðjóns Þórðarsonar og mun ég ekki fjalla frekar um það atriði.
Hér hafa hv. þm. rætt um það m.a. að 132 læknar hefðu í vetur verið því fremur hlynntir að frv. þetta væri samþykkt. En ef við skoðum textann í þeirra bréfi þá sjáum við að í raun og veru er hvergi í því bréfi mælt með því að frv. sé samþykkt. Þeir ganga ekki lengra en að segja að þeir efist um að samþykkt frv. hefði mjög háskaleg áhrif á áfengisvanda Íslendinga eða mundi hafa mjög háskaleg áhrif á drykkjuvenjur Íslendinga. En þeir sem hafa fengist mest við áfengissjúklinga eru á gagnstæðri skoðun, svo og hinir 138 læknar sem afhentu hæstv. forseta Alþingis yfirlýsingu nú í dag skömmu fyrir upphaf þingfunda.
Þeir vara Alþingi alvarlega við að samþykkja þetta frv. vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa. Ég vil vekja athygli á því að þegar litið er yfir þessar undirskriftir, sem liggja hér inni í lestrarsal, þá kemur í ljós að í þessum hópi eru læknar frá flestum ef ekki öllum heilsugæslustöðvum landsins. Þessir læknar eru víðs vegar að af landinu og ég vek athygli á því að heilsugæslustöðvarnar fást við vandann þegar hann kemur til. Sjúklingarnir koma þar oft og tíðum fyrst inn og síðan sendir heilsugæslulæknirinn viðkomandi til sérfræðinga eða til meðferðar á stofnun ef á þarf að halda, þannig að hér er um að ræða menn sem mjög gjörla vita um hvað hér er við að fást. Og ef menn eru á annað borð að vísa til viðhorfa þeirra sem vinna við þessi mál þá tel ég að við getum ekki látið þessa aðvörun eins og vind um eyru þjóta.
Ég vil víkja að einu enn, herra forseti, og það er að menn hafa það gjarnan svona eins og varnagla að ef nú frv. þetta skyldi allt að einu vera samþykkt, þá sé nauðsynlegt að setja á laggirnar um leið afar öfluga fræðslu um skaðsemi áfengis. Ég spyr hv. alþm.: Hefur sú fræðsla sem þeir hafa átt kost á á sinni ævi, hvort sem hún er löng eða nokkuð stutt enn þá, hefur hún haft þau áhrif á þá að þeir vilji varast það að auka þennan vanda eða ekki? Ef menn á annað borð hafa slíka trú á fræðslunni um skaðsemi áfengis, sem ég geri að vísu ekki lítið úr, þá vonast ég til þess að sú fræðsla, sem við höfum öll átt kost á í mörg ár, verði ekki yfirsterkari áhuganum á að gera þessa tilraun og að við reynum að leggja metnað okkar í það að halda þó þeirri stöðu að hér er minni heildarneysla áfengis en víða í löndum þar sem m.a. áfengur bjór er líka leyfður. Hér erum við ekki að banna tegund sem fyrir er, við erum að tala um að innleiða nýtt, að bæta við neysluna sem fyrir er.
Ég leyfi mér að vona það einlæglega að hv. alþm. undanþiggi þetta mál ekki þeim rökum sem augljós eru og snerta heilsufar landsmanna og muni eftir því að ef við ætlum að vinna að því að draga úr heildarkostnaði í heilbrigðiskerfinu, þá hljótum við að standa gegn ráðstöfunum sem augljóslega verða til þess að auka hann.
Ég hef lokið máli mínu, herra forseti, og ég leyfi mér að vona að hv. alþm., sem fyrir skömmu síðan virtust vera of margir þeirrar skoðunar að gera bæri þessa tilraun sem einungis tveir af umsagnaraðilum mæla raunverulega með, ég vonast til þess að þeir hafi nýtt tímann til þess að skoða hug sinn og standi að því að fella frv.