14.10.1987
Efri deild: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (41)

8. mál, Skattadómur og rannsókn skattsvikamála

Flm. (Svavar Gestsson):

Virðulegi forseti. Ég biðst afsökunar á því að reyna svo mjög á þolinmæði hæstv. forseta, enda er ástæðulaust að halda langa ræðu um það mál sem hv. 3. þm. Vesturl. Eiður Guðnason flutti hér áðan. Það væri hins vegar fróðlegt að taka um það umræðu undir næsta dagskrárlið hvað formannsmál í Alþb. og landsfundur þess snerta frv. um skattadómstól sérstaklega. Það væri athyglisvert að fá rökstuðning fyrir því. En ég skildi hv. þm. þannig og það gladdi mig satt að segja pínulítið að ræður mínar hér í dag hefðu farið aðeins inn fyrir skinnið á leiðtogum Alþfl. í þessari deild. En eins og hæstv. forseti gat um áðan hef ég kost á að halda áfram máli mínu undir næsta dagskrárlið og tef ekki frekar að sinni.