23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6073 í B-deild Alþingistíðinda. (4124)
Frumvarp til áfengislaga
Forseti (Jón Kristjánsson):
Skýringin á þessari frestun er sú að það hafa komið ýmsir þingmenn til mín sem hafa óskað eftir því að vera við þessar atkvæðagreiðslur og þeir hafa fjarvistir sem við höfum ætíð tekið gildar hér. Þær fjarvistir eru m.a. jarðarför og að menn hafa þurft að leita til læknis á ákveðnum tíma. Þetta hefur ætíð verið tekið gilt hér og reynt að hliðra til í þessum efnum. Það hefur verið gert nú. Á það við um bæði þau mál sem þarna eru til umræðu. Vegna þess að atkvæðagreiðslunum var frestað fram yfir þingfundi vildi ég ekki gera það án þess að hafa samráð. Ég bar þetta þess vegna upp á fundi með formönnum þingflokka kl. 1 og vegna þess var hlé gert á fundum áðan. Þetta eru skýringar þær sem ég hef.