23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6076 í B-deild Alþingistíðinda. (4134)

Frumvarp til áfengislaga

Forseti (Jón Kristjánsson):

Ég mótmæli því að hér séu nein bolabrögð í frammi. Það er þegar búið að ákveða að gefa fundarhlé til að ná samkomulagi í þessum málum sem allir geta við unað. Ásakanir um bolabrögð í þessu eru tilhæfulausar og í ljósi þess sem hér hefur farið fram á fundinum á undan geta allir hv. þm. verið til vitnis um það. Ég vísa því á bug að hér sé um bolabrögð að ræða og mun nú gefa hlé og freista þess að komast að samkomulagi í þessu máli sem allir geta vel við unað. Fundi er frestað í fimm mínútur. - [Fundarhlé.]

Það hefur orðið að samkomulagi að atkvæðagreiðslur í þeim tveimur málum sem um ræðir fari fram kl. hálffjögur og það hefur tekist samkomulag um að þær geti farið fram þannig að vilji manna komi í ljós og þingdeildarinnar í þeim málum sem um ræðir. Atkvæðagreiðsla í 1. og 3. dagskrármálinu fer fram kl. hálffjögur. Vil ég biðja hv. þingdeildarmenn að festa sér það í minni.