03.11.1987
Sameinað þing: 11. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (414)

58. mál, Kópavogshælið

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbr.- og trmrh. fyrir svörin og ég er miðað við aðstæður fyllilega sáttur við þau. Ég tel að á þessu stigi málsins sé naumast raunhæft að gera ráð fyrir öðru en að umtalsverð starfsemi, nálægt því að vera í svipuðu formi og undanfarið, verði áfram um sinn á Kópavogshælinu. Ég held að það hafi einnig komið fram að það er í sjálfu sér ekki ágreiningur um meginlínur í stefnumörkun hvað þetta varðar. Menn eru sammála um að æskilegast væri að geta útskrifað sem flesta og ljóst er að yfirvöld heilbrigðismála mundu ekki mæla með því að stofnun af þessari stærð og samsetningu yrði byggð í dag. En við þær aðstæður sem við búum við er nauðsynlegt að menn séu raunsæir gagnvart möguleikunum á því að draga þessa starfsemi hratt saman. Þess vegna tel ég líka nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir því að það má ekki koma til þess og þessi umræða má ekki verða til þess að Kópavogshælið verði svelt, að þar ríki einhvers konar afturför og stöðnun, vegna þess að þó að vistmönnum fækki eitthvað er engu að síður nauðsynlegt að halda þar vel við húsum og bæta aðbúnað og má þar miklu betur fara en gert er í dag. Í raun og veru er Kópavogshælið, miðað við þann mikla rekstur sem þar er, e.t.v. einhver sú stofnun sem einna mest olnbogabarn hefur lengi verið í heilbrigðismálum á Íslandi.

Ég vil svo að lokum taka það sérstaklega fram og undirstrika það, sem kom einnig fram í máli hæstv. heilbrmrh., að hina miklu húsnæðiseklu sem starfsemi ríkisspítalanna býr við, m.a. fyrir öldrunarlækningar og öldrunarþjónustu, verður að leysa á næstu árum vegna þess að því húsnæði, sem ríkisspítalar hafa leigt af Öryrkjabandalagi Íslands, hefur verið sagt upp. Þar kemur e.t.v. fyrst og fremst tvennt til. Annars vegar bygging deildar við Vífilsstaðaspítala, sem hefur verið til umræðu, eða að taka — og jafnvel hvort tveggja — að taka að einhverju leyti húsnæði sem kynni að losna á Kópavogshæli undir þessa starfsemi. Ég tel því að umræða um sölu lóða eða húsnæðis sé óraunhæf við þessar aðstæður.