23.03.1988
Neðri deild: 73. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6082 í B-deild Alþingistíðinda. (4141)

Frumvarp um breytingu á áfengislögum

Forseti (Jón Kristjánsson):

Í þessu sambandi vil ég upplýsa hv. 3. þm. Reykv. um að það hafa verið gerðar ráðstafanir og mun verða gengið eftir því áður en atkvæðagreiðslan byrjar hvort örugglega eru nú ekki allir sem vita um hana. Fundi er nú frestað til kl. 3.30. - [Fundarhlé.]