24.03.1988
Sameinað þing: 65. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6086 í B-deild Alþingistíðinda. (4158)

310. mál, skortur á hjúkrunarfræðingum

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Eins og fram kom hjá fyrirspyrjanda hefur skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa verið töluvert til umræðu á síðustu árum og ýmsar ástæður lagðar þar til grundvallar. Hefur aðallega verið um kennt annars vegar að laun hjúkrunarfræðinga væru það lág að þeir kysu fremur að fara í önnur störf og hins vegar að breytt menntunarfyrirkomulag hafi leitt til þess að færri hjúkrunarfræðingar útskrifast nú en áður.

Ein af ástæðunum sem sjaldan er rætt um er að stöðuheimildum hjúkrunarfræðinga í heilbrigðisþjónustunni hefur fjölgað mjög verulega á sl. árum. Er það m.a. vegna aukinnar þarfar á hjúkrun í sjúkrahúsum, vegna fjölgunar sjúkra- og hjúkrunardeilda og einnig hefur stöðum hjúkrunarfræðinga í heilsugæslustöðvum verið fjölgað allverulega. Heimahjúkrun, sem fer vaxandi, er þar einnig drjúgur þáttur. Könnun sem heilbrrn. gerði á sl. ári sýndi að stöðugildi hjúkrunarfræðinga í landinu öllu eru rúmlega 1410 og tæplega 200 hjúkrunarfræðinga vantaði þá í þessar stöður. Á sama tíma voru stöðugildi sjúkraliða rúmlega 1070 og vantaði í þær stöður 250 sjúkraliða.

Reynslan hefur sýnt að allvel hefur gengið að fá hjúkrunarfræðinga til starfa í heilsugæslustöðvar. Heimild er fyrir rösklega 130 stöðum hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og eru þær stöður að mestu setnar. Á vegum hjúkrunarfélaganna hafa verið gerðar kannanir til þess að finna ástæður fyrir skorti á hjúkrunarfræðingum og hafa eftirfarandi ástæður komið þar fram:

Í fyrsta lagi hafa laun verið talin of lág.

Í öðru lagi er óreglulegur vinnutími hjúkrunarfræðinga í sjúkrastofnunum.

Í þriðja lagi samræmist vaktavinna illa heimilisstörfum.

Í fjórða lagi er vinnuálag mikið.

Í fimmta lagi má nefna þann vanda að koma börnum í barnagæslu.

Þá virðist mér einnig ljóst að sú breyting að flytja allt hjúkrunarnám á háskólastig hafi orðið til þess að færri hjúkrunarfræðingar útskrifast árlega en áður var. Þeirri þróun verður að reyna að breyta og kem ég nánar að því hér á eftir.

Ekki verður fjölyrt um laun hjúkrunarfræðinga hér. Um það hefur heilbrrn. lítið að segja því um launakjör er samið milli fjmrn. og viðkomandi stéttarfélaga. Sjúkrastofnanir komast ekki hjá óreglulegum vinnutíma, en vaktavinna býður upp á sveigjanlegan vinnutíma og fyrir hann er greitt vaktaálag. Hins vegar er ljóst að heilsugæslustöðvum hefur gengið betur að fá hjúkrunarfræðinga til starfa vegna dagvinnu, e.t.v. vegna þess að það samræmist betur heimilisstörfum. Á vegum sjúkrastofnana hefur verið komið upp barnaheimilum og dagheimilum, en reynslan sýnir að þar verður að gera betur svo að gagni komi.

Hvað menntunarmálin varðar er svipað að segja og launamálin. Þau heyra í raun ekki undir heilbrrn. heldur menntmrn. en nauðsynlegt er að milli þessara ráðuneyta allra sé gott samstarf.

Þá er einn þáttur enn sem rétt er að benda á. Í heilbrigðisstéttum flestöllum að frátöldum læknum hafa verið og eru enn mest konur. Undanfarin ár hefur umræða um hefðbundin kvennastörf ekki verið til þess að hvetja ungar konur til að mennta sig til þessara starfa. Jafnframt hefur framboð á nýjum störfum og trúlega auðveldari aukist. Færri nemendur fóru í hjúkrunarnám og sjúkraliðanám síðastliðin ár en þörf var á, en á því virðist vera breyting nú, enda eru atvinnumöguleikar fyrir þessar stéttir miklir og góðir. Eitt það mikilvægasta er því að reyna að breyta umræðunni og umfjölluninni um þessi störf, draga úr hinum neikvæða tóni og skapa jákvæða ímynd af störfum hjúkrunarfræðinga og reyndar allra heilbrigðisstétta.

Á vegum ráðuneytisins er starfandi samstarfshópur um hjúkrunarmál. Í honum eru deildarstjóri í heilbrrn. og deildarstjóri hjá landlæknisembættinu, formenn hjúkrunarfélaganna, hjúkrunarforstjórar stærstu sjúkrahúsanna í Reykjavík og dósent í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Þessi hópur lagði fram tillögur til úrbóta á skorti á hjúkrunarfræðingum vorið 1985 og hafa sumar þær tillögur náð fram að ganga. Aðrar eru í athugun. Þessi hópur er nú að vinna að hugmyndum um hvernig hvetja megi ungt fólk til hjúkrunarstarfa og á ég þar við bæði störf hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, hvernig kynna megi nám og störf fyrir því unga fólki sem stendur nú frammi fyrir því að velja sér ævistarf. Þessi kynning verður trúlega þannig að gefinn verður út smábæklingur, myndskreyttur og sendur í framhaldsskólana nú í vor. Þá er einnig uppi hugmynd um að gera myndband um nám og störf hjúkrunarfræðinga og að lokum verður haldin ráðstefna um hjúkrunarmál þar sem verður áframhaldandi kynning á námi og starfi.

Í ráðuneytinu hefur einnig verið rætt um hvort ákveðin störf, sem hjúkrunarfræðingar leysa af hendi í dag sem sérmenntaðir hjúkrunarfræðingar, sé hægt að leysa af öðru sérmenntuðu starfsfólki sem ekki þarf grunnmenntun hjúkrunarfræðinga. Í þessu sambandi má nefna tæknimenntað starfslið við gjörgæslu, svæfingar og skurðstofuvinnu.

Þá hef ég í heilbrrn. haft í athugun breytingar á gildandi lögum um sjúkraliða sem auka mundi starfssvið þeirra. Mér þykir líklegt að þeir sjúkraliðar sem réttindi hafa en ekki vinna í heilbrigðisþjónustunni mundu fremur koma til starfa að breyttum lögum í þessa átt. Einnig er nauðsynlegt að gefa sjúkraliðum kost á meira viðbótarnámi en verið hefur og er það mál einnig í athugun, en þar þarf líka að koma til samstarf við bæði menntmrn. og fjmrn.

Það er ýmislegt fleira sem vinna þarf að í þessum málum og mun ég reyna að fylgja því eftir. Hins vegar verður að hafa það í huga að ekki verður komist hjá því að loka sjúkradeildum eitthvað áfram að sumrinu eða draga úr vinnu hjúkrunarstéttanna. Það er augljóst að ekki er hægt að reka sjúkrastofnanir eins þann tíma er gefa þarf starfsfólki allt að 6 vikna sumarleyfi eins og að vetrinum. Það er enginn sérmenntaður hópur eða varasjóður sem grípa má til í 3–4 mánuði á vorin og senda síðan heim á haustin er sumarleyfum lýkur. En við getum ekki lokað okkar stofnunum alveg vegna sumarleyfa eins og margar aðrar stofnanir, t.d. skólarnir, og sums staðar er það jafnvel svo að þjónustuþörfin vex yfir sumarmánuðina, hvað hjúkrunarstofnanir varðar.

Ekki mun þetta sem ég hef hér upp talið leysa vandamálin í einni svipan, en sýnir þó að yfirvöld reyna að leggja sitt af mörkum til að hafa áhrif á þróun mála.