24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6118 í B-deild Alþingistíðinda. (4184)

371. mál, jöfnun á orkuverði

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Mér finnst hæstv. ráðherra vera farinn að túlka nokkuð frítt þingsköpin. Hann ætlar sér undir örstuttri athugasemd við lok umræðna að afgreiða fyrirspurnir sem væntanlegar séu til hans. Það er ekki aðeins að hæstv. ráðherra fari meira en tvöfalt yfir ræðutíma sinn heldur ætlar hann sér að flytja ræðu undir liðnum um örstuttar athugasemdir.

Ég ætla mér ekki að fara að stjórna þingfundum, en ég vek athygli á þeirri stefnu sem hér er verið að taka og ég tel að það sé aldeilis óeðlilegt að hæstv. ráðherra sé hleypt öðru sinni, og það er gagnrýni á fundarstjórn, inn í umræðuna meðan einn ræðumaður kemur inn á milli. Ég held að það séu alveg undantekningar að þannig sé haldið á málum og ég skil ekkert í hæstv. ráðherra að taka sér það vald, ef hann telur sig hafa þann rétt, taka sér þann rétt að haga málflutningi sínum með þeim hætti.