24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6123 í B-deild Alþingistíðinda. (4189)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég held ég geti tekið undir flest það sem fram kemur í þessari till., bæði tillgr. sjálfa og grg. Hitt er svo annað mál að maður er nokkuð hissa á því að það skuli vera sex stjórnarþm. sem flytja þessa till., yfirlýsingu um það að starf núv. ríkisstjórnar og starf fyrrv. ríkisstjórnar hefur ekki gengið upp í þessum málum, yfirlýsingu um það að þeirri ríkisstjórn sem þessir menn fylgja og þeirri ríkisstjórn sem þeir studdu og hv. 1. flm. þessarar till. var ráðherra í tókst ekki að laga þessa stöðu sem verið hefur á undanförnum árum. Þetta er því miður ekki alveg nýtt. Og ég tek undir með hv. síðasta ræðumanni að önnur eins sýndartillaga frá stuðningsmönnum eins stjórnarflokksins og fyrrv. stjórnarflokks og þessi tillaga er hefur varla sést hér á Alþingi. Margar eru þær framsóknartillögurnar sem hafa komið fram hér á hv. Alþingi á svipaðan máta og þessi, en ég held að engin komist í hálfkvisti við þessa.
Inni í grg. eru ýmsir hlutir sem flm. benda á að þurfi að leiðrétta og flestir eru þeir á þann veg að það á að fara að leiðrétta það sem ríkisstjórn eða fyrrv. ríkisstjórn hefur verið að gera. Ég nefni t.d. þann þátt að dregið hefur verið úr niðurgreiðslum. Hverjir skyldu hafa staðið að því? Hverjir skyldu hafa staðið að því að fella niður verðjöfnunargjald og draga úr því? Var það ekki Framsfl. í fyrrv. ríkisstjórn? Og svo koma þessir menn og býsnast yfir því að þessir hlutir skuli vera á þennan veg sem þeir eru. (Gripið fram í: Með heilagri vandlætingu.) Með heilagri vandlætingu, rétt. Og við megum alveg búast við því, þm. Vesturlands, að þegar farið verður að ræða um hlutina fyrir vestan og í kjördæminu verði vandlætingin enn þá meiri en hún er hér á hv. Alþingi, að það verði sagt að framsóknarmenn, baráttuhópur, eins og hv. 1. þm. Vesturl. sagði hér áðan, baráttufólk í flokki framsóknar, hefðu beitt sér fyrir hér á Alþingi að breyta nú þessari stöðu sem ríkisstjórnin hefur leitt yfir landsbyggðina. Mikið skal til mikils vinna til að fá einhvern pappír til þess að mikla sig af.
Það kom fram hér í ræðu hv. síðasta ræðumanns að inni í lykilstofnun í sambandi við raforkuverð, Landsvirkjun, situr hv. þm. Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsfl. (EG: Formaður Alþb, situr þar líka.) Alveg rétt. Ég ætla einmitt að fara að bjóða hv. þm. Alexander Stefánssyni að beita sér fyrir því að þessir tveir þm. tækju nú upp samstarf inni í Landsvirkjun um það að stefnu Landsvirkjunar yrði breytt á þann veg sem hv. þm. var að benda á að þyrfti að gera. Ætli það sé nokkurt vit að Landsvirkjun stefni að því núna að borga niður meginhluta sinna skulda fyrir aldamót, á næstu 10–12 árum? Og ætli það sé nokkurt vit, á meðan þannig stendur á að orkuverð er á þann veg sem hér hefur verið lýst, að þessi stofnun sé að borga tugmilljónir í tekjuafgang til eigenda sem hefur nú verið gert á þessu ári og á því síðasta?
Við skulum gera bandalag og leita eftir því að þessir höfðingjar geri bandalag í stjórn Landsvirkjunar og komi þar ákveðnum leiðréttingum til skila, m.a. út frá því að þegar Landsvirkjun er að semja um sölu á orku er hún að tala um að semja um það til 40 ára. Ætli væri ekki meira vit að lán Landsvirkjunar væru greidd niður á 40 árum en á 10 árum?
Það er svo líka nokkuð sérstakt að framsóknarþm. skuli tala um það að verið sé að íþyngja atvinnuvegunum í landinu með háu orkuverði. Og þó að kannski sé svolítið mikið sagt í grg., að orkukostnaðurinn sé orðinn fyrirferðarmesti liðurinn í rekstri fyrirtækja, er það rétt að orkukostnaðurinn er mjög íþyngjandi liður og aukinn liður. En ætli hefði ekki verið rétt að flokksmenn flutningsmanna, hæstv. ráðherrar sjávarútvegs og landbúnaðar, hefðu á undanförnum árum, undanförnum mánuðum, beitt sér fyrir leiðréttingu á þessu sviði, svo og ýmsum öðrum sviðum sem eru að kollkeyra þessa tvo undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Þó að illa sé nú farið víða í iðnaðinum er það náttúrlega ekki í neinum samjöfnuði við þá stöðu sem málin eru í hjá hinum hæstv. ráðherrunum sem ég nefndi áðan. Það virðist a.m.k. heldur vera að rofa til í sambandi við útflutningsgreinar iðnaðarins, en því miður er það frekar á hinn veginn hjá hinum atvinnugreinunum.
Vitaskuld tek ég undir þær áskoranir sem hafa komið vítt og breitt um landið og eru að benda á hvað mismunur orkukostnaðarins er mikill og hefur farið vaxandi. En því miður verður að taka undir það sem hæstv. iðnrh. sagði áðan að nokkur sök þessa er sú eða það hvetur til þess að olíuverðið hefur verið að lækka og mismunurinn er enn þá meiri en hefur verið áður. En á undanförnum árum var orkukostnaðarmunurinn á landsbyggðinni og hér í Reykjavík mjög mikill. Ég hef því miður ekki neinar tölur til að bera fram. En umræðan var á svolítið sérstökum vettvangi tvö, þrjú sl. ár. Hún var fyrst og fremst á þeim vettvangi að verið var að reyna að bjarga og verið að ræða um önnur orkusölufyrirtæki, þ.e. hitaveiturnar út um landið, á Akranesi, Akureyri, Vestmannaeyjum og víðar. Þar voru stærstu vandamálin og þar var mestur mismunurinn. Upphitunarkostnaður hjá þessum hitaveitum var orðinn meiri en af raforku. Og það var verið að bera saman hitakostnað raforku og hitaveitnanna þessara.
Í hita þessarar umræðu gleymdist það, því miður, að mismunurinn á milli suðvesturhornsins og landsbyggðarinnar var eftir sem áður mikill. En sú staða sem er komin upp núna vekur þá umræðu sem hér er og hún er þörf. Hún er þörf á þann veg að það er ekki hægt að bíða til næstu áramóta og til ársins 1989, heldur þarf að leysa þessi mál strax. Þess vegna tek ég undir það sem hv. þm. Karvel Pálmason sagði áðan og hv. 2. þm. Austurl. reyndar líka að þessi tillaga er ekki um það að fara að leysa þennan vanda. Hún er um það að fresta aðgerðum til næsta árs. Frá þeirri stefnu þarf að hverfa og ég held að framsóknarmennirnir sem flytja þessa tillögu hafi heldur mikið verið að flýta sér þegar þeir voru að semja hana til að koma henni til umræðu inn á hv. Alþingi ef þeir hafa ekki tekið eftir þessum grunnpunkti sem er í tillögunni að lagt er til að það verði ekki farið að leysa þessi mál fyrr en á næsta ári og það verði fjárlög ársins 1989 sem eigi að fá fjármagn til þess að jafna stöðuna.