24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6126 í B-deild Alþingistíðinda. (4191)

371. mál, jöfnun á orkuverði

Flm. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka þær umræður sem hér hafa orðið um þáltill. og sýna náttúrlega ljóslega að mönnum er ljóst að hér er um alvörumál að ræða. Það hefur einnig verið staðfest hér að þörf sé umræðu um slík mál.

Ég vil í byrjun taka fram að auðvitað er ekki um neina sýndartillögu að ræða. Þetta mál er búið að vera eitt heitasta umræðuefni í þingflokki framsóknarmanna frá því að þing kom saman sl. haust og við höfum að sjálfsögðu tekið tillit til þeirra efnahagsaðgerða sem núv. ríkisstjórn þurfti að gera í sambandi við fjárlög. Hins vegar má viðurkenna það að auðvitað hefði verið ástæða til að gera uppreisn í þessu máli við afgreiðslu fjárlaga. Hins vegar völdum við þann kostinn að gera það ekki, en óskuðum eftir því að ríkisstjórnin sýndi í verki að hún væri með ákveðnar aðgerðir til framhaldsaðgerða í þessu máli sem ekki hafa komið fram.

Ég vil frábiðja mér þeim ásökunum sem hér hafa komið fram um það að hér sé um sýndarmennsku og óeðlileg vinnubrögð að ræða. Það er náttúrlega frjálst hverjum þm. hvort sem það er einn eða fleiri að koma inn í þingið með áherslupunkta í sambandi við þessi mál og þegar ekki er sterkar kveðið á en það að flytja það í þáltill. væri það skrýtið ef það frelsi ætti ekki að vera til staðar.

Ég vil einnig geta þess í sambandi við það sem hæstv. iðnrh. sagði áðan varðandi þá nefnd sem hann hefur skipað að þessi nefndarskipun kom aldrei inn á borð til þingflokks framsóknarmanna og þingflokkurinn hafði ekki hugmynd um það að í þriggja manna embættisnefnd ætti að skipa sérstakan fulltrúa frá þingflokknum eða Framsfl. með hinum embættismönnunum í nefndina þannig að út af fyrir sig er óþarfi að vera að blanda því saman. Hins vegar höfum við ekki á neinn hátt á móti því að það sé túlkað þannig af hæstv. iðnrh. eða ríkisstjórninni að þetta sé fulltrúi Framsfl. Það er alveg sjálfsagður hlutur því að þessi mæti maður sem þarna er einn af embættismönnunum í þessari nefnd er að sjálfsögðu mikilhæfur á þessu sviði og við treystum honum fullkomlega. En það er óþarfi að vera að blanda því saman við þessa framlagningu þáltill. því að það er hægt að fá staðfestingu á því í bókun þingflokksins.

Í sambandi við málið almennt er náttúrlega númer eitt og tvö í þessu máli að hægt sé að finna grundvöll til þess að standa saman um aðgerðir sem koma að gagni. Og af því að hér hefur komið fram í umræðunum að þessi till. til þál. loki fyrir aðgerðir vil ég undirstrika að það sem við viljum segja í þessari stuttu tillgr. er einvörðungu það að við viljum að það sem gert er núna sé gert strax, en eigi að síður sé gert ráð fyrir því í undirbúningi fjárlaga að taka tillit til þeirra útgjalda sem ríkið þarf þar að leggja fram. Ég tók fram í minni framsöguræðu að við skiptum þessu í þrennt í raun og veru.

Í fyrsta lagi aðgerðir strax til að mæta þeim vanda sem blasir við í dag og verður ekki gert nema með auknum niðurgreiðslum. Þar á ég við að jafna hið almenna raforkuverð til húshitunar.

Í öðru lagi að finna út möguleika gegnum Landsvirkjun, að setja jaðarverð á orkuverðið, heildsöluverðið til upphitunar, miðað við 40 ára tíma í staðinn fyrir 10 ára tíma sem núverandi orkuverð frá Landsvirkjun er aðallega miðað við. Það yrði atriði sem kæmi strax inn í umræðurnar um þetta mál. Það er hægt að gera það með ákvörðun í Landsvirkjun.

Í þriðja lagi, sem er náttúrlega stóra málið, hvaða ráðstafanir er hægt að gera til þess að jafna þennan aðstöðumun í landinu í sambandi við orkuverðið sem allir flokkar hafa lýst fylgi sínu við að gera. Þarna blandast inn í það sem ég lagði áherslu á í framsöguræðu, að ég tel að endurskoða þurfi lögin um Landsvirkjun. Jafnvel þó það væru formaður Alþb. og formaður þingflokks framsóknarmanna í stjórn Landsvirkjunar, þá ráða þeir ekki stefnunni í þessari virðulegu stofnun sem er Landsvirkjun. Það virðist svo að mínu mati, eftir þeim upplýsingum og miðað við þau gögn sem fram hafa komið, að þessi ágæta stofnun hlýði ekki einu sinni ríkisstjórn í aðalatriðum. Ég hef þá skoðun að það sé lykilatriði að þetta mál sé skoðað frá grunni hvort ekki sé eðlilegt að taka lögin um Landsvirkjun til endurskoðunar og taka þar inn í málefni Rafmagnsveitna ríkisins sem greinilega ráða ekki lengur við þetta verkefni sitt að halda niðri raforkuverði í landinu. Það er alveg útilokað miðað við þann rekstur og þar inn í kemur einnig Orkubú Vestfjarða. Ég held því að þetta mál þurfi að skoða frá grunni og auðvitað er það aðalmálið í þessu.

En ég endurtek: Ég tel að miðað við þær aðstæður sem núna blasa við og ekki síst að fram undan er í ráðagerð hækkun 1. maí frá Landsvirkjun, hún er boðuð, sé útilokað annað en að gera ráðstafanir strax til að jafna þennan mun. Hins vegar vil ég segja við hv. þm. sem hér hafa verið að tala um að það sé verið að loka fyrir aðgerðir með þáltill.: Þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin þarf að gera milli fjárlaga verður að tryggja í fjárlögum næsta árs. Það vita allir menn sem nálægt þeim málum hafa komið þannig að við skulum ekki vera að deila um þetta atriði.

Aðalatriðið er það að koma fram með þetta mál og fá um það umræður og reyna að finna sameiginlega lausn og ég get sagt það við hæstv. iðnrh. að ég er algjörlega tilbúinn og við, allur þessi hópur og meira til í okkar flokki, að styðja við hverja þá hugmynd sem hægt er að koma auga á að sé hægt að framkvæma í þessum málum. Við skulum taka höndum saman um lausnir í málinu.

Ég vil aðeins segja það í sambandi við olíuna að auðvitað er það rétt að olían hefur lækkað sem betur fer og það hefur verið talið að stöðugleiki sé á olíuverði í dag og hefur verið um langt skeið og er spáð í næstu framtíð. En í verðlagningu á upphitun með raforku hefur verið tekið mið af olíuverðinu í heiminum og það verður að sjálfsögðu gert áfram. Þessir útreikningar sem voru gerðir á rafveitunni í Búðardal standast alveg þetta próf. Ég vil leiðrétta hæstv. iðnrh. sem sagði hér áðan að tilvitnunin í íbúðaverðið, verðmiðunin á olíu og rafmagni í Dalasýslu miðað við íbúðarhúsnæði er 34,6% en ekki 80% eins og ráðherra sagði. (Iðnrh.: Það er líka rangt.) Við skulum segja að það sé hægt að miða við aðrar tölur. En það skiptir ekki öllu í þessu máli, það er ákveðið fyrir fram. (Iðnrh.: Það skiptir máli hvað er rétt og hvað er rangt.) Það er nákvæmlega útskýrt hvað viðkomandi rafveita leggur til grundvallar. (Gripið fram í.) Það má deila um það hvort þær forsendur eru réttar, en dæmið er rétt. Mismunurinn er viðurkenndur í öllum þessum tilfellum og ég ætla ekki að tefja umræðurnar um það við að lesa þessar útskýringar, þær eru opinbert plagg. Ég hef hérna í höndunum upplýsingar um 130 m2 hús þar sem greitt er 16 024 kr. fyrir upphitun í 61 dag, núna eftir áramótin í raforkuhitun. Sams konar hús hér í Reykjavík, nákvæmlega sama stærð, borgar 4318 kr. fyrir 61 dag. Þetta er það sem snýr að fólkinu, hæstv. iðnrh., og við skulum ekki gera lítið úr því. Við skulum segja að það geti verið mismunandi forsendur, og allt í lagi með það, og það sé þess vegna ekki rétt að draga alveg línurnar um það að þetta sé nákvæmlega svona í öllum samanburði. En svona eru dæmin sem við fáum sem fólkið er með í höndunum. Það er hins vegar ekki aðalatriðið, heldur það að snúast til varnar og fá fram leiðréttingar í þessu máli. Og við skulum alveg sleppa öllum umræðum um það hvað menn hafa gert áður eða eru að gera á ýmsum sviðum. Við sem tökum þátt í ríkisstjórnum, samstjórn fleiri flokka, við verðum að gera ýmislegt til samkomulags sem þm. eru ekki sáttir við, gera tilraun til breytinga en flestallir a.m.k. sætta sig við það í stjórnarsamstarfi að samþykkja þá niðurstöðu sem fengin er.

En ég vil bara segja það að lokum að ég treysti því þó að ég hafi efasemdir um það að þessi þriggja manna embættismannanefnd ráði við það verkefni þannig að við getum vænst þess að niðurstaða komi um aðgerðir sem séu fullnægjandi núna næstu vikur - það tel ég vera útilokað að geti verið til staðar. En alla vega fagna ég því að þessi nefnd er að hefja störf og ég vonast til þess að niðurstöður verði a.m.k. þannig að við fyrsta áfanga komi jöfnun á því augljósa misrétti sem núna er komið við síðustu hækkun og næstu hækkun á verði í raforkugeiranum og framhaldið verði síðan á þeim nótum sem við erum að tala um. Ég skal fyllilega taka þátt í því að endurskoða lögin um Landsvirkjun og reyna að koma því til leiðar að a.m.k. verði þessu stórvirka fyrirtæki okkar og öfluga, sem það á að vera, breytt á þann veg að það taki fullt tillit til þess mismunar í orkukostnaði sem er í landinu og við getum a.m.k. notað Landsvirkjun til þess að gera breytingar á þessu misvægi. En það má vel vera að dæmið sé stærra og það þurfi að gera breytingar til þess að auka tekjur ríkisins til að standa fyrir þessu. Við verðum þá að mæta því. En það verða að koma róttækar tillögur í þessu máli og ég endurtek, og það skulu vera mín síðustu orð, að þetta verður ekki leyst til frambúðar nema með því að endurskoða orkukerfið í heild. Það kemur að því sem a.m.k. hefur verið stefna okkar flokks að það verði eitt orkuöflunar- og orkudreifingarfyrirtæki í landinu sem selji raforkuna til allra þarfa á sama verði hvar sem er á landinu. Það er framtíðin og það verður ekki unað við annað í þessu litla þjóðfélagi okkar. Við verðum að ná þeirri stefnu fram.