24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6132 í B-deild Alþingistíðinda. (4193)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Hér hefur nú staðið allmikil og mjög skiljanleg umræða um raforkuverð í landinu. Það er að vonum að menn ræði það óviðunandi ástand sem er og ég tel að fyrst og fremst liggi í því misrétti, þeim mismun sem er á kostnaði til að mynda í húshitun annars vegar á þeim landsvæðum sem ódýrustu hitaveiturnar eru og hins vegar þar sem menn búa við dýrustu hitaveiturnar eða kynda með mjög dýru rafmagni. Það hefur að mínu mati fyrst og fremst fræðilegt gildi í þessu sambandi að þrátta um raunverð raforkunnar til lengri tíma litið. Hvort það hefur farið eitthvað upp eða eitthvað niður skiptir í mínum huga ekki höfuðmáli. Það sem veldur fyrst og fremst óánægju og er að kalla fram hörð viðbrögð víða í landinu núna er þessi mikli mismunur. Eins og ævinlega þegar um mikið misrétti og mikinn mismun í lífskjörum er að ræða á einu sviði eða öðru í litlu samfélagi, þá verður slíkt til ófarnaðar. Hvort raforkuverðið eða „absolútt“ gildi raforkuverðsins hefur hreyfst upp eða niður skiptir í raun og veru minna máli.
Ég hygg að menn muni búa við áframhaldandi óánægju og áframhaldandi vandamál þangað til menn ráðast í það verkefni sérstaklega að jafna út þennan mismun. Því er svo auðvitað við að bæta að ef allt væri með felldu í landinu þá ættum við að geta boðið fólki hvar sem er upp á tiltölulega hóflegt verð fyrir orku því að Ísland á mikið af ódýrri orku. Og það er mikil ógæfa ef þessi þjóð heldur þannig til langframa á sínum málum að geta ekki nýtt sér í formi ódýrs orkuverðs þá miklu og auðbeislanlegu orku sem við eigum.
Ég ætla ekki að fara hér út í umræður um það hvort till. hv. þm. Framsfl. sem hér er á dagskrá sé sýndarmennskuplagg eða ekki. Það á varla heima ef menn vilja reyna að ræða efnislega um það mál sem hér er til umræðu og fjalla um það með einhverjum rökum. Menn geta gamnað sér við það einhvers staðar annars staðar að spekúlera í því hvort svona tillöguflutningur sé undirstrikun á áhrifaleysi þessara þm. innan stjórnarliðsins eða einhverju öðru, en ég vil gjarnan taka viljann fyrir verkið og trúa því að þeir séu í einlægni að leita leiða til að bæta hér úr misréttinu.
Í því sambandi vil ég hins vegar segja við hv. flm. að mér finnst skjóta ofurlítið skökku við að vísa þessu verkefni til þeirrar sömu ríkisstjórnar sem auðvitað er hér sökudólgurinn að vissu marki. Ég hefði talið það eðlilegra og í raun og veru rökréttara í framhaldi af ræðum hv. 1. flm., 1. þm. Vesturl. hér áðan, að þessir ágætu framsóknarmenn og ágætu þm. hefðu einfaldlega staðið upp hver um annan þveran og lýst yfir stuðningi við tillögu alþýðubandalagsmanna um að setja niður nefnd í þinginu til að endurskoða skipulag raforkumála í landinu. Hv. 1. flm. margendurtók að þar lægju ákveðnar meinsemdir sem þyrfti að bæta úr. Um það höfum við þm. Alþb. flutt tillögu og ég held að það væri rökréttara að þingið tæki á þessum málum þannig að setja niður nefnd sem færi í að skoða þessa hluti, en ekki vísa því verkefni til ríkisstjórnar, á hverja tillöguflutningur af þessu tagi er auðvitað gagnrýni. Það er mótsögn í sjálfu sér og best að ræða hlutina eins og þeir koma fyrir, að það er m.a. lök frammistaða hæstv. núv. ríkisstjórnar og þeirrar sem sat næst á undan henni í þessum málum sem kallar á aðgerðir af þessu tagi.
Málið er í mínum huga mjög einfalt. Það sem þarf að gera er tvennt. Í fyrsta lagi þarf að auka niðurgreiðslur og koma til hjálpar verst settu hitaveitunum strax. Í öðru lagi að skoða málið í heild sinni, skipulag orkumálanna, með varanlega úrlausn í huga. Það er fyrst og fremst þetta tvennt sem menn eiga að horfa á. Það eru tafarlausar aðgerðir sem verða að koma til á meðan menn eru að skoða möguleikana á varanlegri lausn í þessum efnum. Það stendur ekki á þm. Alþb. að standa að flutningi þó það kunni að kosta fjáraukalög, eða hvað annað sem það mun kalla á, að grípa þegar í stað á þessu þingi til aðgerða, afla tekna og verja þeim til þessara verkefna. Ég treysti mér til að lýsa því hér yfir fyrir hönd þingflokksins því það hefur verið rætt þar.
Hvað skipulagshliðina varðar þá væri fróðlegt að ræða hana nokkuð. Í mínum huga er þar einnig um mjög einfalda hluti að ræða sem á ekki að standa lengi í mönnum eða vefjast lengi fyrir mönnum að gera upp hug sinn til. Þær breytingar hafa verið að eiga sér stað á undanförnum árum að einu fyrirtæki, Landsvirkjun hf., hefur smátt og smátt verið falin nánast öll raforkuframleiðsla í landinu, ákveðinn hluti dreifingarinnar. Síðan eru milliliðir eins og Rafmagnsveitur ríkisins, Orkubú Vestfjarða, Rafmagnsveita Reykjavíkur og ýmsir smærri dreifingaraðilar sem kaupa rafmagnið, orkuna af Landsvirkjun og dreifa henni út til kaupenda.
Og hvað Rafmagnsveitur ríkisins varðar þá held ég að það megi orða þetta ósköp einfaldlega þannig að lappirnar hafa verið sagaðar undan fyrirtækinu svona ein og ein eða rifnar undan því, en allar byrðarnar setið eftir á herðum fyrirtækisins. Smátt og smátt - með því að kippa undan Rafmagnsveitunum möguleikanum á því að framleiða ódýra orku til að selja síðan öðrum og í öðru lagi að reyta af Rafmagnsveitunum hagkvæmustu orkusölusvæðin — eru mjólkurkýrnar eða lappirnar teknar undan fyrirtækinu en byrðarnar skildar eftir. Þetta er ósköp einfalt mál og þarf að mínu áliti ekki að þrasa þar um. Hefðu Rafmagnsveitum ríkisins verið skildar eftir einhverjar hagkvæmar vatnsaflsvirkjanir eða virkjanir sem í fyllingu tímans hefðu getað orðið uppspretta tekna, hefði það komið á móti, staðið á móti þeim miklu útgjöldum sem orkudreifing á óhagkvæmu sölusvæði hlýtur að vera eðli málsins samkvæmt.
Þetta þarf að stokka upp. Í tillögu okkar þm. Alþb. er bent á mögulegar leiðir í því sambandi, annars vegar breytta verkaskiptingu þessara aðila eða samruna eða samstarf fyrirtækjanna í enn þá meira mæli eigi þetta fyrirtæki, Landsvirkjun hf., að nálgast það að standa undir nafni, sem það hefur í raun aldrei gert, vegna þess að í fyrsta lagi er það ekki nema hluti landsmanna sem á það og í öðru lagi þá sinnir það ekki nema takmörkuðum verkefnum. En spurningin er kannski um það: Eigum við að láta þetta fyrirtæki, Landsvirkjun hf., standa undir nafni og vera eiginlega landsvirkjun allra landsmanna sem aflar og dreifir raforku um allt land? Að mínu mati kemur það ekki til greina nema að breyta eignarhlutföllum í því fyrirtæki. Annaðhvort þannig að öll sveitarfélög landsins komi þar inn eða hlutur ríkisins vaxi í fyrirtækinu í samræmi við aukið landshlutverk þess.
Tíma mínum er víst lokið og læt ég þá máli mínu að sjálfsögðu einnig lokið innan tíðar. En að lokum vil ég segja að það horfir í mikið óefni með afkomu Rafmagnsveitnanna. Þar var rekstrartapið 300 millj. kr. á sl. ári og stefnir í allt að hálfum milljarði á þessu ári. Og mönnum er það væntanlega ljóst að við svo búið má ekki lengi standa.
Á sama tíma er Landsvirkjun að afskrifa skuldir sínar hraðar en eiginlega nokkurt annað fyrirtæki í landinu. Þannig að þar er auðvitað svigrúm til að breyta til. Þarna verður að koma á jafnvægi í afkomu annars vegar Rafmagnsveitnanna og hins vegar Landsvirkjunar. Það er ekkert því til fyrirstöðu að á næstu 10–15 árum sé hægt að stórlækka raforkuverð hér í landinu ef guð og góðir menn forða okkur frá þeirri ógæfu að asnast út í nýjar stóriðjuframkvæmdir sem munu kosta óheyrilega fjárfestingu og hærra orkuverð til innlendra notenda, eins og slík gönuhlaup hafa yfirleitt gert. Lendum við ekki út í því feni þá eru allar forsendur fyrir því með endurskipulagningu þessara mála að unnt sé að jafna og stórlækka orkuverðið í landinu á næstu árum.