24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6137 í B-deild Alþingistíðinda. (4196)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Mér skilst að þessi till., sem hér liggur frammi til þál., hafi komið róti á suma stjórnarsinna hér í salnum og jafnvel værukærir ráðherrar hafi vaknað. (SJS: Það er bara einn ráðherra ...) Ætlar hv. 4. þm. Norðurl. e. að halda því fram að hinir hafi ekki sofið á verðinum í þessu máli? Það er vel að hann hefur tekið undir það álit mitt að hinir sváfu líka.
Hér var verðjöfnunargjald á raforku. Hér voru í gildi lög um söluskattsviðauka sem átti að fara til að jafna upphitunarkostnað í landinu. Verðjöfnunargjaldið var lagt niður. (SkA: Hverjir samþykktu það? Hver gerði það?) Aftur verður að beina spurningum til þm. í salnum. Hv. 4. þm. Vesturl. spyr: Hverjir gerðu það? Einn af þeim sem stóðu að þeirri samþykkt er sá sem hér stendur. Og þess vegna er hann kominn hér upp í ræðustólinn nú og væri ráð að hlusta. Upplýsingarnar, sem þá komu úr iðnrn. um afleiðingarnar af þessu tiltæki, voru alrangar. Alrangar. Alþingi Íslendinga var stórkostlega blekkt um afleiðingarnar af þessu tiltæki. En hvað var þá gert við ákvæðið um söluskattinn? Jú, það var hirt. Það var hirt. (Gripið fram í.) Það var ákveðinn hluti af söluskattinum sem átti að fara í það að greiða niður orkukostnaðinn. (Gripið fram í: Orkujöfnunargjald.) Orkujöfnunargjald, en hluti af söluskattinum engu að síður. Svo standa menn hér upp og tala um að það sé sýndarmennska að þessum tillöguflutningi og ritarar tolla ekki einu sinni í stólnum. Mér blöskrar, gjörsamlega blöskrar. Þeir mega skjálfa sem vilja. En er mönnum ekki ljóst að það kostar stjórnarslit ef þetta mál verður afgreitt eins og það hefur verið? Það skal kosta að Framsfl. klofni eða stjórnarslit verði stefnan sú sama!
Ég ætla ekki að liggja hér undir því að þessi till. sé sýndartillaga. Þeir sem telja að verkhraðinn eigi að vera snigilsins, mega hafa þá skoðun. Starfsmenn iðnrn. hafa fengið nægan tíma til að meta það hvað þeir voru að gera með því að leggja niður verðjöfnunargjaldið. Og þaðan verður tillaga að koma. Mér er aftur á móti ljóst að ég greiddi atkvæði með fjárlögum eins og þau voru samþykkt. Það er mín ábyrgð. Þess vegna þýðir ekki hjá mér að koma upp í dag og hrópa: Við eigum að breyta fjárlögunum. En ég vil fá stefnu í málið. Í fyrsta lagi er búið að blekkja íslenska þjóð með því að segja við hana: Þið eigið að nota innlendan orkugjafa. Og það hefur haft þær afleiðingar að út um land allt er búið að fleygja olíukyndingartækjum. Í annan stað blasir það við að ríkisstjórnin virðist ekki hafa á því nokkurn áhuga í framkvæmd að tryggja það að sambærilegt orkuverð sé í landinu. Sú stefna hefur ekki komið fram. Svo kvarta menn yfir því að það sé verið að rugga undir þeim ráðherrastólunum! Við hverju geta menn búist?
Ég er ekki búinn að sjá það að hæstv. ráðherrar Reykjavíkur héldu sig mikið hér á götum úti ef það hefðu verið framkvæmdar álíka hækkanir handa alþýðu manna hér á stór-höfuðborgarsvæðinu. Ætli þeir færu ekki með veggjum? (Iðnrh.: Það eru miklu hærri hækkanir hér.) Kemur eins og kattarmjálm utan úr salnum: „Miklu hærri hækkanir hér.“ En hver er grunnurinn? Það vita allir hvað verið er að tala um. Það vita það allir.
Það gengur ekki að standa að þessum orkusölumálum eins og gert hefur verið. Ef það er yfirlýst að Landsvirkjun ætli sér ekki að selja raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis í landinu nema á þessum kjörum þá er ekki um annað að ræða en að hætta að nota raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis. Þá er ekki um annað að ræða því að valkosturinn er miklu dýrari en olíukynding, miklu dýrari en kolakynding og það hefur enginn efni á því úti á landi að búa við þann mismun sem á sér stað í dag.
Ég hygg að þegar menn leyfa sér að halda því fram að hér sé um sýndartillögu að ræða þá þurfi þeir vissulega að búa sig undir það að þeir fái örlítið á trýnið. Væri það ekki sýndartillaga ef við stæðum hér upp og heimtuðum greiðslur úr ríkissjóði í allt öðrum hlutföllum en fjárlögin greina til um, nýbúnir að samþykkja fjárlögin? Væri það ekki sýndarmennska? Það væri sýndarmennska. Það sýndi nú lítil heilindi í stöðunni. En kannski erum við að upplifa svipaða hluti og á dögum viðreisnar þegar ráðherragengið héðan af suðvesturhorninu hafði ekki skyggni nema upp að Esjunni og út að Straumsvík. Kannski erum við að upplifa svipaða stöðu.
Ef menn þola ekki að það sé rætt um þessi mál á þeim nótunum að við viljum aðgerðir en ekkert mjálm utan úr salnum að það eigi að fara að gera eitthvað í málinu, að það sé verið að vinna í málinu - það er þá verkhraði. Hvað skyldu þeir borga á tímann fyrir svona vinnubrögð? Ætli þeir séu ekki greiddir yfirvinnutímarnir án þess að vera unnir hjá því liði sem telur að það þurfi ekki að skila þessu af sér? (Forseti hringir.) Hæstv. forseti hefur barið í bjölluna og ég ætla ekki að reyna á hans þolinmæði. Ég veit fullvel að hæstv. iðnrh. reynir nægilega mikið á hans þolinmæði hvað orkuverðið varðar.