24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6139 í B-deild Alþingistíðinda. (4197)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Þetta var vissulega ekki neitt mjálm, kattarmjálm mælt í desibel sem gekk hér fram úr ræðustólnum áðan. Og það var kannski ósköp eðlilegt þegar þar standa menn sem felldu tillögur við fjárlagagerð hér í desember sl. þegar allar þær hækkanir og ókjör blöstu við í þessum efnum sem menn eru hér að ræða. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson — sem ég efa ekkert að skilur þann vanda sem hér er við að fást, þekkir hann frá umbjóðendum sínum í Vestfjarðakjördæmi - hann stimplar orð manna, ég hygg einnig sinna samstarfsmanna í stuðningsliði ríkisstjórnar, sem mjálm. En ég vil láta menn dæma um hvaða einkunn þessi texti á skilið sem hann er hér flm. að ásamt hv. 1. þm. Vesturl., með því að lesa hann, með leyfi forseta, till. sem hér er til umræðu:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja fyrir næsta þing tillögur um aðgerðir til jöfnunar á orkuverði í landinu.
Sérstök áhersla verði lögð á jöfnun kostnaðar við upphitun húsa. Í fjárlagafrv. fyrir árið 1989 verði gert ráð fyrir fjármagni til slíkra aðgerða.“
Þetta er tillögutextinn. Væri nokkuð fjarstætt að láta sér detta í hug orðið „mjálm“ í sambandi við flutning af þessu tagi nú skömmu eftir að búið er að fella tillögur hér á Alþingi um raunhæfar aðgerðir í þessum efnum til þess að draga sárasta broddinn úr þeim hækkunum sem um er að ræða? Við hljótum að vænta þess hér — stjórnarandstæðingar sem höfum borið slíkar tillögur fram nú ár eftir ár og tillögur um endurskoðun stefnunnar, skipulags í orkumálum o.fl. — við hljótum að vænta þess nú þegar stjórnarliðar eru komnir í hár saman að vega hver annan, hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson og hæstv. iðnrh. og margir fleiri og ætla að sannfæra menn um það hvor sé meiri maður, við hljótum að vænta þess að þm. stjórnarliðsins taki undir hvatningarorð stjórnarandstöðu um aðgerðir nú þegar. Það er jú hægt að bæta um mistökin við fjárlagagerð með ofur einföldum hætti. Fjárlög hafa verið tekin upp nú nýverið fyrir forgöngu ríkisstjórnar og það er hægt að gera í þessu máli og menn geta varla beðið veturinn á enda, þær vikur sem eftir eru, eftir því að slíkar aðgerðir nái fram að ganga. Menn hljóta að sameinast um að tryggja það að slíkar aðgerðir nái fram að ganga því að ef marka má orð manna og frýjunarorð hvers í annars garð þá ætti að vera vilji til þess arna hér á hv. Alþingi.
Virðulegur forseti. Ég vildi aðeins minna á það að þessi mál voru rædd á nýafstöðnum ársfundi Orkustofnunar sem nokkrir alþm. sátu. Þar fjallaði orkumálastjóri m.a. um þessi efni, var með ábendingar sem ég tel ástæðu til að koma hér á framfæri mönnum til íhugunar, ég er ekki að leggja mat á hans hugmyndir, en leyfi mér að vitna hér í hans ræðu þar sem hann segir:
„Orkufyrirtækin þurfa að hugsa sinn gang ef þau ætta ekki að verðleggja sig út af húshitunarmarkaðinum. Fyrir hitaveitur kæmi þar einkum til álita að hækka verulega fastagjald en lækka orkugjald samsvarandi þannig að orkugjaldið verði samkeppnisfært við olíuna. Margir eiga enn nothæfar olíukyntar miðstöðvar í húsum sínum en mundu líklega fæstir vilja aftengjast hitaveitunum til að losna við fastagjaldið. Þessi gjaldskrárbygging með tiltölulega háu fastagjaldi en lægra orkugjaldi er líka í samræmi við framsetningu kostnaðarins hjá hitaveitum.
Fyrir rafhitunarmarkaðinn“, segir orkumálastjóri, „er það ekki eins ljóst hvað er til ráða. Ein hugsanleg ráðstöfun er sú að hvetja alla rafhitanotendur, sem eiga nothæfar olíumiðstöðvar, til að setja þær í gott stand, koma fyrir í þeim hitöldum og gefa þeim kost á ótryggðu rafmagni á lágu verði á hitöldin. Þegar nóg er til af rafmagni í landinu eins og nú fengju þeir rafmagnið það ódýrt að það ryður burt olíunni. Í annan tíma þegar minna er um rafmagn væri olía notuð og rafmagnið gæti þá farið til verðmætari nota. Stýringin á notkuninni færi þannig fram í gegnum rafmagnsverðið sem væri breytilegt eftir stöðunni í raforkumálum hverju sinni. Þetta hefur þann kost að skapa sveigjanleika á rafhitunarmarkaðinum sem er mikilvægt þegar óvissa ríkir um þróun olíuverðs og búast má við miklum sveiflum. Jafnframt mundi þetta stækka markaðinn fyrir ótryggt rafmagn hér á landi en á því er mikil nauðsyn eins og oft hefur verið rætt um vegna vatnsrennslissveiflna milli ára og til að brúa bil milli virkjana. Fyrir notendur með beina rafhitun kemur þessi leið ekki að haldi. Gagnvart þeim virðist helst koma til álita svipuð leið og minnst var á fyrir hitaveiturnar, þ.e. hærra fastagjald með svo lágu orkuverði að það keppi auðveldlega við olíuna.“
Þetta var tilvitnun í ræðu Jakobs Björnssonar. Ég minni einnig á það að á þessum fundi talaði stjórnarformaður Orkustofnunar, Jónas Elíasson, sem ég hygg að sé nokkuð tengdur hæstv. iðnrh. í pólitíkinni, og hann ræddi sérstaklega um að það þyrfti að finna leiðir til að nýta þá miklu umframorku sem er í kerfinu til þess að bjóða raforku til sölu til húshitunar til beinnar rafhitunar á viðunandi kjörum. Og hann ræddi einnig um möguleikana á samtengingu rafhitunar olíustöðva við núverandi aðstæður eða við svipaðar aðstæður og nú eru varðandi verð á olíu. Þetta taldi ég ástæðu til að nefna hér til viðbótar við það sem ég kom að í mínu máli hér fyrr við umræðuna.
Ég vil svo að endingu aðeins hvetja mjög eindregið til þess að menn hér á Alþingi sameinist um aðgerðir nú þegar á yfirstandandi þingi til þess að bæta úr því gífurlega misrétti sem hér blasir við og er mjög ríkur þáttur í þeirri upplausn í byggð landsins sem blasir við, þeirri gífurlegu og réttmætu óánægju sem er hjá fólki víða um landið vegna misréttis í undirstöðuþáttum sem varða lífsafkomu hverrar einustu fjölskyldu, hvers einasta manns.