24.03.1988
Sameinað þing: 66. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6146 í B-deild Alþingistíðinda. (4202)
371. mál, jöfnun á orkuverði
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir það að athugasemdin þarf ekki að vera örstutt. En það er fyrst til að taka að hv. 3. þm. Vestf. vissi vissulega að það er hægt að vinna hraðar í málinu, en það byggist á því að landsbyggðin eigi velviljaðan fjmrh. Þannig er nú ekki ástandið í dag. (Gripið fram í: Það er nú hægt að skipta um.) Ef ekki fæst lækkun á verðinu frá Landsvirkjun, þá verður annaðhvort að fara í það að nota annan orkugjafa og auðvelda fólki að komast yfir slík kyndingartæki sem þarf til þess að gera þá breytingu eða þá taka Landsvirkjun eignarnámi. Og þyki hv. 3. þm. Vestf. of hægt unnið í málinu, þá vil ég vekja athygli hans á því að hann var kosinn á þing fyrir Vestfirði á undan mér og er þó ekki kominn lengra.